Síða 1 af 1
VIDEO FRÁ DREKUM. STÓRFERÐ 2012
Posted: 26.apr 2012, 23:05
frá Brynjarp
http://www.youtube.com/watch?v=k53atiGd ... e=youtu.behérna er video frá drekum.
takk fyrir.
[youtube]k53atiGd63U&[/youtube]
Re: VIDEO FRÁ DREKUM. STÓRFERÐ 2012
Posted: 27.apr 2012, 00:09
frá olei
Þetta er ljómandi videó, takk fyrir það!
Re: VIDEO FRÁ DREKUM. STÓRFERÐ 2012
Posted: 27.apr 2012, 01:16
frá -Hjalti-
loksins :)
Re: VIDEO FRÁ DREKUM. STÓRFERÐ 2012
Posted: 27.apr 2012, 12:20
frá Árni Braga
Flott hjá þér.
Re: VIDEO FRÁ DREKUM. STÓRFERÐ 2012
Posted: 27.apr 2012, 21:12
frá jeepson
Flott video :)
Re: VIDEO FRÁ DREKUM. STÓRFERÐ 2012
Posted: 27.apr 2012, 21:22
frá Brynjarp
held að árni sé kominn með 16mm
Re: VIDEO FRÁ DREKUM. STÓRFERÐ 2012
Posted: 27.apr 2012, 21:32
frá Freyr
Það er eitthvað verulega mikið að fyrst svona margir boltar fóru. Jafnvel þó miðjustýringuna vanti (bara hugmynd) þá er þetta ekki eðlilegt, margir bílar eru án miðjustýringar algjörlega án vandræða. Í mínum huga eru sverari boltar einir og sér ekki lausnin (þó þeir hjálpi vissulega). Það er e-ð að sem þarf að laga, dettur í hug að rærnar séu lokaðar í endann og náð að herðast fastar á endann á boltunum án þess að setja rétta spennu á felgumiðjurnar eða þá að það sé allt annar kónn á rónum heldur en á felgumiðjunum.
Kv. Freyr
Re: VIDEO FRÁ DREKUM. STÓRFERÐ 2012
Posted: 28.apr 2012, 01:08
frá Brynjarp
það nátturulega gæti vel verið. kannski best að Árni svari þessu. en ef ég hef heyrt rétt þá skilst mér að 14 mm boltarnir séu liklegri til að brotna og séu ekki að þvola svona stór dekk. en ég veit ekki meir
Re: VIDEO FRÁ DREKUM. STÓRFERÐ 2012
Posted: 28.apr 2012, 09:06
frá Árni Braga
Sælir strákar.
Ég er komin með 14mm bolta .
það sem var að hjá mér var það að
miðju gatið var of lítið á felguni .það munaði 4mm .
þannig að hún náðist ekki að herðast rétt á .
Re: VIDEO FRÁ DREKUM. STÓRFERÐ 2012
Posted: 28.apr 2012, 10:42
frá Hjörturinn
Er rosalega ánægður með þessa lensku að gera video úr svona ferðum, alltaf gott að geta skroppið í 10 min fjallaferð þegar maður er í útlandinu :)
En annars með þessa felgubolta þá verðum við að athuga það að þetta er gert fyrir 31" dekk á max 10" breiðum felgum, auðvitað gerist eitthvað þegar því er skipt út fyrir 46" 18" felgu....
Löngu kominn með 14mm bolta sjálfur og bara á 38"
Re: VIDEO FRÁ DREKUM. STÓRFERÐ 2012
Posted: 28.apr 2012, 11:39
frá Hagalín
Ég er með 14mm hjá mér undir patta á 44tommu.
Lenti í því að það losnaði upp á róm að framan hjá mér og allt í skralli, naf,felgumiðja,legustútur,legur,felguboltar og rær allt ónýtt en boltarnir brotnuðu ekki. Var reyndar ekki á mikilli ferð en þeir héldu. Er nokkuð viss um að ég hefði misst dekkið undan með tilheyrandi viðbótarkostnaði ef ég hefði verið með 12mm.