Síða 1 af 1

Bláfellsháls eða Hlöðufell

Posted: 04.apr 2012, 14:33
frá hobo
Veit einhver hvort ökuhæft sé á annan hvorn staðinn vegna bleytu?
Hvernig er t.d vegurinn að Skálpanesi, er hann burðugur í leysingum, eða er allt á kafi í snjó þarna ennþá?

Re: Bláfellsháls eða Hlöðufell

Posted: 04.apr 2012, 15:18
frá -Hjalti-
Bláfellsháls er fær öllum jeppum, og fínn snjór að Árbúðum en þegar norðar dregur minkar snjórinn.
Og ég hef ekki áhyggjur að snjóleysi við hlöðufell , það var allavega nægur snjór á Lyngdalsheiði á mánudag.

Re: Bláfellsháls eða Hlöðufell

Posted: 04.apr 2012, 15:54
frá Árni Braga
Á að skella sér á fjöll
ég er til.

Re: Bláfellsháls eða Hlöðufell

Posted: 04.apr 2012, 16:32
frá Freyr
Túristakallarnir aka í skálpanes alla daga ársins svo þú getur farið þangað hvenær sem er.

Re: Bláfellsháls eða Hlöðufell

Posted: 06.apr 2012, 18:00
frá hobo
Farið var upp á Bláfellsháls í gær en kjaftfullt er af snjó þar.
Lágskýjað var á svæðinu þannig að skyggnið var ekkert þarna uppfrá.

Við Grjótá
Image

Einhversstaðar ofarlega á leið upp á hálsinn.
Image