Jæja, ekkert allt of mikið að gerast hérna svo í tilefni þess að rykið var dustað af gamla fjósinu finnst mér tilvalið að láta vita af færinu inn frá Hrauneyjum að Veiðivötnum.
Nokkrir skaflar á veginum að Vatnsfelli áður en hann fer endanlega á kaf við Fellsendavatn. Á laugardeginum 10. mars var mjög þungt inn að Veiðivötnum en eftir smá rigningu og frost um nóttina skánaði það svo um munaði.
6-7 tíma tók að komast inn að skálum en aðeins um klukkustund til baka. Sleðakarlarnir, sem voru hluti hópsins, voru hinsvegar mjög snöggir báðar leiðir og hringsóluðu í kringum okkur til að drepa tímann.
44", fjöldinn allur af millikössum og gríðarleg þolinmæði var það sem blívaði þessa helgina.
Læt fylgja tvö vídjól fylgja með til gamans.
En það vantaði alls ekki snjóinn!
Veiðivötn 10 - 11 mars 2012
-
- Innlegg: 277
- Skráður: 17.jan 2012, 12:40
- Fullt nafn: Björgvin Björgvinsson
- Bíltegund: LC 80
-
- Innlegg: 113
- Skráður: 12.okt 2011, 21:50
- Fullt nafn: Brynjar Hróarsson
Re: Veiðivötn 10 - 11 mars 2012
þessir patrollur voru í spotta aftan í toyotu gullinu nánast alla leið inneftir !
Til baka á “Ferðir og færð á fjöllum”
Tengdir notendur
Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 1 gestur