Sæl öll
Var að koma af Fimmvöðruhálsi. Núna er hryggurinn sem liggur í vestur frá Útivistarskálanum varasamur. Snjóhengjan sem myndast alltaf N-megin á hryggnum er að skríða fram og það er sprunga í snjónum allt að 10 metra frá brúninni. Sprungan er eiginlega akkúrat í hefðbundnu akstursleiðinni svo við keyrðum aðeins sunnar en vant er. Mætti bæta við að í kringum nýja hraunið er töluvert af holum og göngum í snjónum undir yfirborðinu.
Freyr
Varúð á Fimmvörðuhálsi
Til baka á “Ferðir og færð á fjöllum”
Tengdir notendur
Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 0 gestir