Síða 1 af 1

Pajero 2002, 3,5

Posted: 28.aug 2017, 21:04
frá StebbiHö
Góðan daginn.

Mig langar að athuga hvort að það sé ekki einhver sem geti frætt mig á því hvenær á að skifta um tímareim í þessum bílum, minn er ekinn tæp 300þ. Veit ekki hvenær skift var um síðast, eða hvort það er hreinlega búið!

Kv Stefán

Re: Pajero 2002, 3,5

Posted: 29.aug 2017, 08:16
frá jongud
Oft er talað um 100 þúsund km. eða 5 ára fresti (60 mánuði). Það gæti verið reynandi hjá þér að hafa samband við umboðið, ef þeir eru með viðgerðasögu bílsins. Toyota er allavega með flott svoleiðis. Svo eru líka mörg verkstæði sem setja miða undir húddið eða á mótorinn sem segir hvenær var skipt og kílómetrastöðuna. Ég sá miðann þegar ég þreif mótorinn.