Síða 1 af 1

Teikning af rassinum á Chevy

Posted: 07.feb 2016, 16:15
frá jongud
Ég rakst á þessa mynd;
chevy-rass.jpg
chevy-rass.jpg (90.29 KiB) Viewed 12754 times

Veit einhver um samsvarandi mynd með málin í millimetrum?
Er þetta kannski einhversstaðar til á CAD-skráarformi?

EDIT; lagaði myndina

Re: Teikning af rassinum á Chevy

Posted: 07.feb 2016, 16:25
frá jongud
Ég fann reyndar CAD-teikningar af hellingi af hlutum;
http://www.trailslesstraveled.com/resources/cadlibrary/transmission/

Þarna er m.a. teikning af milliplötu fyrir tvöfaldan millikassa NP203/NP205
http://www.trailslesstraveled.com/resources/cadlibrary/file/np-203-adapter-for-doubler/

Re: Teikning af rassinum á Chevy

Posted: 08.feb 2016, 10:38
frá Kiddi
Eitthvað finnst mér það hæpið að þetta finnist í mm máli þar sem þetta er stykki sem er hannað í tommum og málsetningarnar einmitt svona skemmtilega rúnnaðar í tommunum :-)

Re: Teikning af rassinum á Chevy

Posted: 08.feb 2016, 21:06
frá snöfli
Það eru AKKÚRAT 25,4mm í tommu.

Tomman er skilgreind nú orðið með tilvísun í meterinn.

"a unit of length, 1/12 (0.0833) foot, equivalent to 2.54 centimeters."

Meterinn var skilgreindur samkæmt einhverri málmstöng í París en er nú með tilvísun í ljóshraða:

"the fundamental unit of length in the metric system, equivalent to 39.37 U.S. inches, originally intended to be, and being very nearly, equal to one ten-millionth of the distance from the equator to the pole measured on a meridian: defined from 1889 to 1960 as the distance between two lines on a platinum-iridium bar (the “International Prototype Meter”) preserved at the International Bureau of Weights and Measures near Paris; from 1960 to 1983 defined as 1,650,763.73 wavelengths of the orange-red radiation of krypton 86 under specified conditions; and now defined as 1/299,792,458 of the distance light travels in a vacuum in one second."

Margfaldaðu öll málinn með 25,4 og þá er það eins rétt í mm og það verður:)

mbk. Lárus

Re: Teikning af rassinum á Chevy

Posted: 19.feb 2016, 17:21
frá jongud
Ég var að fletta upp í .pdf-skrá sem ég átti um 4.3 Chevy og haldiði að ég hafi ekki fundið málteikningu þar af sama afturenda í millimetrum.
chevy-rass-mm.jpg
chevy-rass-mm.jpg (103.61 KiB) Viewed 12452 times

Re: Teikning af rassinum á Chevy

Posted: 19.feb 2016, 21:57
frá íbbi
Image

Re: Teikning af rassinum á Chevy

Posted: 21.feb 2016, 14:32
frá jeepson
jongud wrote:
Þarna er m.a. teikning af milliplötu fyrir tvöfaldan millikassa NP203/NP205
http://www.trailslesstraveled.com/resources/cadlibrary/file/np-203-adapter-for-doubler/

Stæðsti ókosturinn við þessar teikningar er að það eru engin mál á þeim.

Re: Teikning af rassinum á Chevy

Posted: 21.feb 2016, 15:12
frá jongud
jeepson wrote:
jongud wrote:
Þarna er m.a. teikning af milliplötu fyrir tvöfaldan millikassa NP203/NP205
http://www.trailslesstraveled.com/resources/cadlibrary/file/np-203-adapter-for-doubler/

Stæðsti ókosturinn við þessar teikningar er að það eru engin mál á þeim.

Mér sýnist að þetta sé í tommum, þannig að þá er nóg að skilgreina skránna sem tommur þegar hún er opnuð, ekki satt?

Re: Teikning af rassinum á Chevy

Posted: 21.feb 2016, 17:35

Ég náði í 30daga prufu af autocad til að geta opnað þetta og málin koma ekki upp á teikningunum.

Re: Teikning af rassinum á Chevy

Posted: 22.feb 2016, 08:17
frá jongud
jeepson wrote:
Stæðsti ókosturinn við þessar teikningar er að það eru engin mál á þeim.

Æjá,
þú átt við að teikningarnar eru ekki MÁLSETTAR ! (eins og það kallast)
Ég opnaði skrá og mældi þvermálið á gatinu fyrir fremri leguhaldaran á NP205, fékk upp ca. 5 og gaf mér að þetta væri í tommum.

Hérna er eitthvað um hvernig hægt er að breyta tommuskrám í millimetramál í autocad;
http://www.cad-notes.com/how-to-convert-autocad-drawing-units-from-one-to-another/

Re: Teikning af rassinum á Chevy

Posted: 23.feb 2016, 16:59
frá grimur
AutoCrap er nú líka algert fornaldar dót, hægt að teygja og toga til línur og setja svo inn málsetningar sem eru ekki í neinum tengslum við raunveruleikann.
Hitt er líklega rétt að skissa sem er rétt gerð og óhreyfð á AutoCrap formi gæti verið rétt í einhverri einingu.

kv
Grímur