Síða 1 af 1

Stórt snittsett 1/4"-1"

Posted: 16.júl 2018, 18:14
frá Leifur
Stórt snittsett í voldugum trékassa.

Tommumál 1/4" - 1"

Óska eftir tilboði

Re: Stórt snittsett 1/4"-1"

Posted: 16.júl 2018, 18:25
frá sukkaturbo
Jamm hef áhuga en hvað viltu fá fyrir settið væri gott að fá verðhugmynd til að' vera ekki með einhver dónatilboð

Re: Stórt snittsett 1/4"-1"

Posted: 16.júl 2018, 19:40
frá Trident
Eru þetta withworth gengjur?

Re: Stórt snittsett 1/4"-1"

Posted: 16.júl 2018, 20:10
frá Leifur
Jamm hef áhuga en hvað viltu fá fyrir settið væri gott að fá verðhugmynd til að' vera ekki með einhver dónatilboð


Er að selja þetta fyrir tengdaföður minn og hann segir ekki undir 20þús.

Eru þetta withworth gengjur?


Þú verður að afsaka þekkingaleysi mitt í þessum efnum, en það stendur inni í kassanum ,,Fur Whitworth-Gewinde nach DIN 11"

Re: Stórt snittsett 1/4"-1"

Posted: 17.júl 2018, 09:11
frá Trident
Takk fyrir það, Þá eru þetta fyrir breskt gróft, bretinn var mest með BSF og Ww en kanin með UNC og UNF tommur eru nefilega ekki bara tommur :-)

Re: Stórt snittsett 1/4"-1"

Posted: 17.júl 2018, 17:34
frá Leifur
Takk fyrir þetta Trident. Alltaf er maður að læra eitthvað nýtt :)

Re: Stórt snittsett 1/4"-1"

Posted: 17.júl 2018, 18:12
frá svarti sambo
Trident wrote:Takk fyrir það, Þá eru þetta fyrir breskt gróft, bretinn var mest með BSF og Ww en kanin með UNC og UNF tommur eru nefilega ekki bara tommur :-)


Mig minnir nú að stigningin sé sú sama. Það er bara annar halli á gengjunni. Þ.e.a.s. UNC og UNF eru með 60° halla, en bresku eru með 55° halla.
Annars sést þetta strax í t.d. gengjutöflunni frá Fossberg.

Re: Stórt snittsett 1/4"-1"

Posted: 17.júl 2018, 20:01
frá Trident
Það er rétt 55 í Ww en 60 í unc formið á þeim er líka örlítið öðruvísi Ww er meira rúnað.