Síða 1 af 1

Burt með Diesel

Posted: 02.des 2016, 09:44
frá muggur
Hí á ykkur á kolatogurunum*...... Flott að vera á v6 bensínhák í bænum ;-)

http://www.ruv.is/frett/disilbilar-utlaegir-ur-storborgum-arid-2025



* Er þetta ekki annars staðurinn fyrir ómálefnalegar umræður

Re: Burt með Diesel

Posted: 02.des 2016, 12:45
frá biturk
Og ætla þeir þá að kaupa dísilbíla sem fólk á?

Þvílíkt helvítis bull

Re: Burt með Diesel

Posted: 02.des 2016, 13:31
frá bragig
Þetta eru svosem skiljanleg afstaða í stórborgum þar sem mengun er að ógna heilsu fólks. En að banna dísel bíla alfarið er alveg glórulaust. En ég bíð spenntur eftir að þessi nýja tækni kemst á laggirnar:

http://onlinelibrary.wiley.com/doi/10.1 ... 01169/full

Þar sem mönnum hefur tekist að útbúa ethanol beint úr rafmagni og CO2. Við eigum nóg af báðum hráefnum og ethanol er kjörið eldsneyti á bensínvélar. Þannig verður hægt að fara í fjallaferð með íslenska orku á tanknum.

Re: Burt með Diesel

Posted: 02.des 2016, 16:11
frá Startarinn
E85 Etanolið er blandað með 25% bensíni í USA á veturna í stað 15% til að auðvelda gangsetningu, en maður getur aukið þjöppuna verulega á E85 sem þýðir moreomph :)

En það er ekki keyrt á hreinu etanóli skilst mér

Re: Burt með Diesel

Posted: 02.des 2016, 20:41
frá StefánDal
Yes! Þá hef ég afsökun fyrir því að fara aldrei til Ruslavíkur :)

Re: Burt með Diesel

Posted: 03.des 2016, 04:22
frá íbbi
getum nú andað rólegir, ansi langt þangað til reykjavík kemst á þann stað að vera stórborg

Re: Burt með Diesel

Posted: 03.des 2016, 10:05
frá kaos
Svo er "menga meira" eða "menga minna", dálítið mikil einföldun á málinu. Ég er enginn sérfræðingur, en mér skilst að vissulega sé meira af sóti í diselútblæstrinum, og kannski líka köfnunarefnisoxíðum (NOx) (sérstaklega þegar búið er að taka EGR ventilinn úr sambandi). En, díselvélar eru almennt sparneytnari, og losa því minna af koltvísýringi, og leggja því minna til gróðurhúsaáhrifanna. M.ö.o. sýnist mér að díselvélar mengi kannski meira í nærumhverfinu, en minna á hnattrænann mælikvarða.

--
Kveðja, Kári.

Re: Burt með Diesel

Posted: 04.des 2016, 03:39
frá Victor
áfram bensín !

Re: Burt með Diesel

Posted: 05.des 2016, 10:25
frá Óttar
Kannski hægt að fá ódýran lítið ekinn diesel mótor frá þessum löndum :)

Re: Burt með Diesel

Posted: 05.des 2016, 11:43
frá Navigatoramadeus
Það er fræðsluþáttur sem heitir "under the dome" um mengun í kínverskum borgum og við erum að tala um verulega skerðingu á lífsgæðum og lífslíkum en ein af ástæðum þess að kínverjar geta framleitt ódýrar vörur er að þeir sleppa alveg kostnaðarsömum mengunarvörnum og keyra raforkuver á svartolíu og kolum af allra verstu gæðum.

Það er soldið erfitt að skilja þessar umræður þegar maður býr á klakanum. :-)

https://www.youtube.com/watch?v=MhIZ50HKIp0