Síða 1 af 1

Brasilía 2014

Posted: 13.jún 2014, 20:56
frá Járni
Ég heyrði útundan mér að í Brasilíu keppist menn um að íþróttast harðar og fastar en næsti maður getur íþróttast. Þessi menn hópast reyndar saman eftir því hvar þeir fæddust til að íþróttast. Ekki veit ég til að endanleg niðurstaða um hvaða þjóð getur íþróttast mest, þrátt fyrir margar athuganir.

Hefur þetta víst haft áhrif á reglulega dagskrá RÚV og eru því ekki allir á eitt sáttir.

Sjálfur hef ég ekki orðið vitni að þessu enn en hvað með ykkur?

Reyndar er ég að hugsa um að banna sjaldan mig fyrir þennan póst, enda á þetta ekkert er erindi hér inni.

Góða helgi!

Re: Brasilía 2014

Posted: 13.jún 2014, 21:00
frá gislisveri
Ég færi þetta á barnaland og skammastu þín!

Re: Brasilía 2014

Posted: 13.jún 2014, 21:07
frá Polarbear
djöfull vantar læk takka núna!

Re: Brasilía 2014

Posted: 13.jún 2014, 21:58
frá ellisnorra
gislisveri wrote:Ég færi þetta á barnaland og skammastu þín!


Nákvæmlega. Skil ekki hvað maðurinn vildi með þetta á Almennt spjall. Dónaskapurinn alveg að kæfa menn hérna...!

Re: Brasilía 2014

Posted: 14.jún 2014, 02:21
frá grimur
Titillinn kom næstum í veg fyrir að ég opnaði þennan þráð.
Ég heyrði að þessi íþróttun sem þeir aðhafast þarna í Brasilíu, snúist um að hlaupa um á túni. Eitthvað kemur leðurafurð af nautgrip við sögu, íþróttamenn virðast helst snerta hana með því að pota í hana með tánum. Hvers vegna er ekki alveg ljóst, hún gæti verið heit, eða kannski eitruð.
Það virðast vera nokkrir hópar á túninu í einu. Tveir kallar eru aðallega í sitt hvoru hliðinu við gangstæða enda túnsins. Svo eru margir í eins búningum, tveir hópar einhvern veginn. Svo er alltaf að minnsta kosti einn í svörtum búning og með flautu. Stundum skiptir hann sér af hinum íþróttamönnunum og veifar höndunum, jafnvel með miða í hendinni. Þá verður oftast einhver hinna íþróttamannanna fúll.
Ég er ekki alveg búinn að finna út tilganginn, það lítur ekki út fyrir að verkið sé vel skilgreint. Það er bara skyndilega hætt hvernig sem stendur á.

Þetta er svo ruglingslegt að ég tel ekki borga sig að rannsaka atferlið frekar, það hlýtur að vera um einhvern misskilning að ræða í þessu.

Kv
G

Re: Brasilía 2014

Posted: 14.jún 2014, 10:58
frá jongud
Járni wrote:...Hefur þetta víst haft áhrif á reglulega dagskrá RÚV og eru því ekki allir á eitt sáttir...

Það er komið sumar!
Þá er engin ástæða fyrir því að hanga yfir RÚV, maður á að vera úti að bóna jeppann (eða gera við).

Re: Brasilía 2014

Posted: 14.jún 2014, 13:18
frá Kalli
Er þetta blak ?

Re: Brasilía 2014

Posted: 15.jún 2014, 22:53
frá sukkaturbo
Sælir félagar er eitthvað bilað skil ekki þennan þráð hvaða bíla framleiða Braselíumenn eitthvað sem maður þekkir???

Re: Brasilía 2014

Posted: 15.jún 2014, 23:10
frá svarti sambo
sukkaturbo wrote:Sælir félagar er eitthvað bilað skil ekki þennan þráð hvaða bíla framleiða Braselíumenn eitthvað sem maður þekkir???


Voru þeir ekki að setja saman brasilíu escort, sem var alltaf bilaður. Þýska týpan var mun betri.
En þessi brasilíu íþrótt er ekki holl fyrir bjútíblundinn yfir fréttunum, en tímalínan bjargar því.

Re: Brasilía 2014

Posted: 16.jún 2014, 08:57
frá Óskar - Einfari
Ég hef verið að reyna að átta mig á því hvað menn eru að tala um hérna. Svo fann ég þetta loksins á youtube

https://www.youtube.com/watch?v=MhJOUMGhhwE

Re: Brasilía 2014

Posted: 16.jún 2014, 12:12
frá Járni
Haha! Macaroni, spaghetti, meatballs!

Re: Brasilía 2014

Posted: 17.jún 2014, 19:40
frá sukkaturbo
Ja sæll matur þá skil ég bollur 20 bollur