Síða 2 af 3

Re: Algrip lásar.

Posted: 02.jan 2014, 18:43
frá Sævar Örn
Þá þarf einhver að taka á skarið með ágæta lausafjársstöðu og halda lager utan um smíðuðu hlutina, ég efast stórlega um að rennismiðurinn fari sjálfur að standa kostnað af því að eiga hlutina tilbúna uppi í hillu hjá sér þar til einhver kemur og kaupir.

Re: Algrip lásar.

Posted: 02.jan 2014, 18:55
frá Hr.Cummins
Skil fullkomlega að hann sé ekki tilbúinn að fjármagna þetta sjálfur, enda var ég ekki með það í huga.

Ef að hann getur framleitt AAM læsingarnar og líka læsingar í stærri Dana hásingar þá á ég carrier í bæði til að smíða eftir... á reyndar ekki D70 carrier því miður...

en ég á eftirfarandi til þess að smíða eftir:
D44 carrier
D60 carrier
D80 carrier
AAM9.5 carrier
AAM11.5 carrier

gæti mögulega reddað D70 carrier...

Ég hafði hugsað þetta þannig að það yrði group-buy, menn leggja í púkkið og svo staðgreiðist þetta þegar að allir eru búnir að borga...

Yfirleitt hefur þetta gengið þannig fyrir sig á þeim þremur stöðum sem að ég er að kanna áhugann að menn gera það þannig og yfirleitt eru 80-90% sem að standa við sitt ef að verðið reynist þeim mun betra.

Fyrirspurnirnar eru t.d. núna orðnar 57 talsins, og enn 15 sem að eru "nokkuð ákveðnir" í að kaupa!

Margir tala um að ARB sé að klikka með boltana, nokkrir gagnrýna þetta líka og segjast halda sig við ARB... vacuum sé ónothæft... þetta verði að vera "undir þrýsting"...

Skjótið þessu allavega á kallinn og sjáið hvað hann segir...

*edit*

segjum að 57 segist kaupa og 52 kaupa í raun og veru... þá er það samt "52 unit sale" !

gefum okkur að hann fái 70.000kr til sín fyrir hverja selda einingu... þá er það strax 3.640.000kr til hans !

Re: Algrip lásar.

Posted: 02.jan 2014, 19:37
frá Izan
Sælir

Borgar sig ekki að fara að heyra í þessum manni til að sjá betur hvernig landið liggur, þessir lásar voru ekki ekki gefnir þrátt fyrir að vera íslensk hönnun og smíði.

Kv Jón Garðar

Re: Algrip lásar.

Posted: 02.jan 2014, 19:53
frá Stjáni Blái
Mér finnst þetta allavega alveg sprenghlægileg umræða. Talandi um þessar læsingar sem svakalega útfluttnigsvöru og hvað eina án þess að hafa svo mikið sem hringt í manninn og borið það undir hann hvort hann sé til í þetta.

Ég veit til þess að umræddur Kári smíðaði líka milligíra fyrir jeppamenn ásamt þessum læsingum. Og hann hætti þessu ekki vegna lítillar eftirspurnar ef það er það sem þið haldið.

Eina sem hefur komið með viti hér er í raun svarið frá Vopna, sem virðis vera nokkuð jarðbundinn í skrifum.

Byrjunin er klárlega að tala við Kára, bera þetta undir hann og sjá hvort það sé grundvöllur fyrir þessari smíði. Miðað við fjöldan sem um ræðir í þessum þræði er þetta orðin ansi mikil vinna fyrir mann sem er ekki með sitt eigið verkstæði.

Gangi ykkur vel !

Re: Algrip lásar.

Posted: 02.jan 2014, 20:00
frá StefánDal
Hr.Cummins wrote:Skil fullkomlega að hann sé ekki tilbúinn að fjármagna þetta sjálfur, enda var ég ekki með það í huga.

Ef að hann getur framleitt AAM læsingarnar og líka læsingar í stærri Dana hásingar þá á ég carrier í bæði til að smíða eftir... á reyndar ekki D70 carrier því miður...

en ég á eftirfarandi til þess að smíða eftir:
D44 carrier
D60 carrier
D80 carrier
AAM9.5 carrier
AAM11.5 carrier

gæti mögulega reddað D70 carrier...

Ég hafði hugsað þetta þannig að það yrði group-buy, menn leggja í púkkið og svo staðgreiðist þetta þegar að allir eru búnir að borga...

Yfirleitt hefur þetta gengið þannig fyrir sig á þeim þremur stöðum sem að ég er að kanna áhugann að menn gera það þannig og yfirleitt eru 80-90% sem að standa við sitt ef að verðið reynist þeim mun betra.

Fyrirspurnirnar eru t.d. núna orðnar 57 talsins, og enn 15 sem að eru "nokkuð ákveðnir" í að kaupa!

Margir tala um að ARB sé að klikka með boltana, nokkrir gagnrýna þetta líka og segjast halda sig við ARB... vacuum sé ónothæft... þetta verði að vera "undir þrýsting"...

Skjótið þessu allavega á kallinn og sjáið hvað hann segir...

*edit*

segjum að 57 segist kaupa og 52 kaupa í raun og veru... þá er það samt "52 unit sale" !

gefum okkur að hann fái 70.000kr til sín fyrir hverja selda einingu... þá er það strax 3.640.000kr til hans !


ókei Ólafur Ragnar... Hvernig gengur annars með ferðagufuböðin?

Re: Algrip lásar.

Posted: 02.jan 2014, 20:10
frá Hr.Cummins
Heyrðu, pulsan þín...

Það er markaður fyrir þetta, og ég hef einungis gert markaðskönnun á þessu...

Þetta er vel söluvæn vara þar sem að þetta sparar þeim sem að hafa vacuum að setja upp loftdælu og það sem að því fylgir...

Það er enginn búinn að selja neitt ennþá, en ég er að biðla til þess aðila sem að er í sambandi við Kára og mér sýnist vera Gísli "jeepson" að kanna hvort að þetta er möguleiki...

Ef að möguleikinn er fyrir hendi get ég mögulega fjármagnað kaup á umræddum lásum, en það þarf að vera komið vilyrði fyrir því að þetta sé möguleiki...

Enginn rætt meira en bara möguleikann á þessu...

Re: Algrip lásar.

Posted: 02.jan 2014, 22:29
frá gunnarb
Það var svona lás í LC120 sem ég átti (og var breytt af Aroni). Lásinn virkaði ekki fyrstu tvö árin af þeim fjórum sem ég átti bílinn. Hann brotnaði hinsvegar í einni ferðinni við lítil átök. Ég sel það ekki dýrara en ég keypti það en það sagði mér það maður sem vinnur við jeppabreytingar að það séu bara til tvær tegundir af þessum lás - þær sem eru búnar að brotna og þær sem eiga það eftir. Hann vildi meina að hugmyndin að lásnum hefði verið góð, en þegar gallar komu í ljós vantaði að klára projectið. Ég setti ARB í í staðinn og hann hefur eins og aðrir ARB lásar sem ég hef notað verið 100% solid.

Re: Algrip lásar.

Posted: 02.jan 2014, 23:04
frá Baldur Pálsson
gunnarb wrote:Það var svona lás í LC120 sem ég átti (og var breytt af Aroni). Lásinn virkaði ekki fyrstu tvö árin af þeim fjórum sem ég átti bílinn. Hann brotnaði hinsvegar í einni ferðinni við lítil átök. Ég sel það ekki dýrara en ég keypti það en það sagði mér það maður sem vinnur við jeppabreytingar að það séu bara til tvær tegundir af þessum lás - þær sem eru búnar að brotna og þær sem eiga það eftir. Hann vildi meina að hugmyndin að lásnum hefði verið góð, en þegar gallar komu í ljós vantaði að klára projectið. Ég setti ARB í í staðinn og hann hefur eins og aðrir ARB lásar sem ég hef notað verið 100% solid.

Tengihjólið sem læsti var borað fyrir pinnum og það var ekki nógu góður búnaður þeir vildu bogna og brottna.

Re: Algrip lásar.

Posted: 02.jan 2014, 23:29
frá jeepson
Jæja. Ég sagðist ætla að tala við Kára og þessi umræða átti að snúast um hvort að menn hefðu áhuga á þessum lásum ef að það væri hægt að halda veðrinu í hófi. Það þýðir lítið að tala við mannin og biðja um einn lás. En ég tala við hann á morgun og forvitnast hjá honum. Ef að það voru gallar í þessum lásum þá þarf klárlega að vinna úr þeim áður en farið að smíða þessa lása. En fyrst skulum við nú halda okkur á jörðinni og sjá hvort að hann vilji smíða þessa lása aftur :)

Re: Algrip lásar.

Posted: 03.jan 2014, 03:55
frá íbbi
jeppaspjalls dekk, jeppaspjalls lásar,

ég heyrði fyrir nokkrum misserum að það væri að leka silikon brjóstapúðar hjá gellunum, ættum við ekki að reyna græja jeppaspjalls brjóstapúða líka. við gætum nýtt hugvitið úr jeppunum og græjað úrhleypi búnað, slöngu í afturendan og klemmu í nærbuxnastrenginn og þær geta pumpað úr/í "on the go"

Re: Algrip lásar.

Posted: 03.jan 2014, 10:17
frá andrig

Re: Algrip lásar.

Posted: 03.jan 2014, 12:01
frá Offari
Er ekki hægt að framleiða þetta í Kína? Ég held að þessi vara þurfi að vera framleidd í þúsundum ef ekki tugþúsundum stykkja til að hægt verði að ná samkeppnishæfu verði til útflutnings. En treysti hannsér til að gera15- 20 stk á viðráðanlegu verði til markaðs og reynslu hérlendis ættuð þið að kíla á þetta. Því það gæti verið upphaf á stærra dæmi og svo er bara svo fjandi gott að fá varahluti í innlenda vöru.

Re: Algrip lásar.

Posted: 03.jan 2014, 12:12
frá Hr.Cummins
Þið verðið að hugsa þetta með gjaldeyrisverð í huga...

70.000kr er t.d. ~550$... það er helmingur af því sem að læsing kostar í USA ef að keypt er t.d. detroit locker...

Re: Algrip lásar.

Posted: 03.jan 2014, 12:28
frá Victor
bjarni95 wrote:Um að gera að safna í góða pöntun og hafa samband við Kára


Hefur þér ekki dottið í hug að láta kallin smíða handa þér í súkkuna ?
eru ekki allar súkkur landsins lás lausar, kannski er markaður þar ? eða hvað ?
kv

Re: Algrip lásar.

Posted: 03.jan 2014, 12:39
frá Hr.Cummins
Victor wrote:
bjarni95 wrote:Um að gera að safna í góða pöntun og hafa samband við Kára


Hefur þér ekki dottið í hug að láta kallin smíða handa þér í súkkuna ?
eru ekki allar súkkur landsins lás lausar, kannski er markaður þar ? eða hvað ?
kv


Er hægt að kaupa hlutföll í Suzuki hásingarnar ??

Myndi halda að markaðurinn væri lítill einmitt þeirra saka vegna...

Re: Algrip lásar.

Posted: 03.jan 2014, 13:03
frá Victor
Hr.Cummins wrote:
Victor wrote:
bjarni95 wrote:Um að gera að safna í góða pöntun og hafa samband við Kára


Hefur þér ekki dottið í hug að láta kallin smíða handa þér í súkkuna ?
eru ekki allar súkkur landsins lás lausar, kannski er markaður þar ? eða hvað ?
kv


Er hægt að kaupa hlutföll í Suzuki hásingarnar ??

Myndi halda að markaðurinn væri lítill einmitt þeirra saka vegna...


jú það er eitthvað til en erfitt að nálgast það og er í takmörkuðu upplagi ,en 5:13 hlutföll virðast duga mér allavega á 35" og þessir bílar sem eru breittir eru yfirleitt 33-35" breittir, á 5:13, eða kallast víst 5:125 held ég, það eru seldir arb lásar í þetta frá calmini og fleirum, en kosta handlegg,
spurning hvort kallin geri frumgerð af lásum í bílin hjá stráknum og auglýsi svo inná Sukka.is, ath með viðbrögðin þar.
ég myndi allavega skoða að kaupa mér lása ef þeir væru í boði á mannlegum kjörum
kv

Re: Algrip lásar.

Posted: 03.jan 2014, 14:36
frá Svopni
Það er engin smá pressa orðin á þessum Kára. Karlinn sefur eflaust ekki dúr en veit ekkert afhverju.

Re: Algrip lásar.

Posted: 03.jan 2014, 14:58
frá Hr.Cummins
Svopni wrote:Það er engin smá pressa orðin á þessum Kára. Karlinn sefur eflaust ekki dúr en veit ekkert afhverju.


Um hvað ert þú að tala væni :?:

Það er bara verið að viðra hugmyndir um þetta, og mögulega skapa markað fyrir manninn...

Re: Algrip lásar.

Posted: 03.jan 2014, 15:47
frá jeepson
Eins og ég er búinn að taka fram að þá er ekki um pöntun að ræða. Heldur er ég að kanna áhugan hjá mönnum uppá að geta sagt við Kára að það séu þó nokkuð margir sem hafa áhuga. Það kanski verður til þess ða kallinn vilji smíða þessa lása.

Re: Algrip lásar.

Posted: 03.jan 2014, 16:27
frá villi58
Bíðum bara eftir að smiðurinn gefi það svar hvort hann er tilbúinn að fara í þessa smíði og geti sagt um verð, þetta álít ég byrjunin og þarf varla að hafa marga pósta um þetta fyrr en svar fæst.
Síðan ef þetta er framkvæmalegt á skikkanlegu verði þá væri í lagi að áhugunarsamir staðfesti pöntun og geri það með að borga 50% í staðfestingargjald, jú sangjarnt svo að það verði ekkert bull í gangi þannig að reyna að koma í veg fyrir að menn hætti við og skilja smiðinn eftir með kostnað sem er ekki sangjart fyrir hann. Fyrst hvort þetta sé raunhæft þannig að við skiljum smiðinn ekki eftir í skítnum með svikum og svo staðfestingargjald sem kúnnar tapa ef þeir standa ekki við sitt. Því miður hafa allt of margir setið í skítnum fyrir svikahrappa, þeir eru margir hér á landi því miður. Annars áhugavert dæmi ef að verður. Með kveðjur um betri drifbúnað og vinnu fyrir fólk, ekki veitir af.

Re: Algrip lásar.

Posted: 03.jan 2014, 17:35
frá Hjörvar Orri
Hr.Cummins wrote:
Svopni wrote:Það er engin smá pressa orðin á þessum Kára. Karlinn sefur eflaust ekki dúr en veit ekkert afhverju.


Um hvað ert þú að tala væni :?:

Það er bara verið að viðra hugmyndir um þetta, og mögulega skapa markað fyrir manninn...


Hahahaha skapa markað fyrir kallinn. Ég starfa í sama fyrirtæki og kári, og er hann einn af öflugustu rennismiðunum á svæðinu og gæti trúað að hann hafi meira uppúr því sem hann er að gera í dag heldur en að smíða driflæsingar.

Re: Algrip lásar.

Posted: 03.jan 2014, 17:53
frá gráni
Ef hann vill ekki gera þetta sjálfur þá væri spurning um að kaupa af honum höfundarréttinn og láta smiða þetta fyrir sig, þetta eru engir galdrar , það er fullt af verkstæðum sem geta séð um svona vinnu!

Re: Algrip lásar.

Posted: 03.jan 2014, 20:34
frá Hr.Cummins
gráni wrote:Ef hann vill ekki gera þetta sjálfur þá væri spurning um að kaupa af honum höfundarréttinn og láta smiða þetta fyrir sig, þetta eru engir galdrar , það er fullt af verkstæðum sem geta séð um svona vinnu!


X2

Re: Algrip lásar.

Posted: 04.jan 2014, 12:57
frá jongud
gráni wrote:Ef hann vill ekki gera þetta sjálfur þá væri spurning um að kaupa af honum höfundarréttinn og láta smiða þetta fyrir sig, þetta eru engir galdrar , það er fullt af verkstæðum sem geta séð um svona vinnu!


Það er kannski fullt af verkstæðum, en hefur einhver starfsmaður þar tækifæri og tíma í þetta?
Miðað við allt tal um offjárfestingu í atvinnulífinu ætti að finnast CAM fræsari sem hægt er að forrita fyrir þetta en ég held að aðal spurningin sé að fá lausan tíma hjá manni sem getur unnið við þetta.

Re: Algrip lásar.

Posted: 09.jan 2014, 09:30
frá Hr.Cummins
Jæja, núna er ég kominn með yfir 100 fyrirspurnir, það hlýtur að segja okkur að það seljist allavega 20% sem að væru 20 lásar...

Fyrir utan þessar ~ 100 fyrispurnir eru menn sem að telja alvarlega líkur á því að þeir kaupi lása að því gefnu að þessi vacuum búnaður sé eins góður og menn vilja meina og sé jafn reliable og pnuematic (loft)...

Er maðurinn búinn að svara spurningunni, og má ekki ætla að m.v. stuttan tíma og fjölda fyrirspurna megi selja þetta í stórum stíl úr landi ef að verðið er rétt..

Re: Algrip lásar.

Posted: 09.jan 2014, 11:07
frá jongud
Hr.Cummins wrote:Jæja, núna er ég kominn með yfir 100 fyrirspurnir, það hlýtur að segja okkur að það seljist allavega 20% sem að væru 20 lásar...

Fyrir utan þessar ~ 100 fyrispurnir eru menn sem að telja alvarlega líkur á því að þeir kaupi lása að því gefnu að þessi vacuum búnaður sé eins góður og menn vilja meina og sé jafn reliable og pnuematic (loft)...

Er maðurinn búinn að svara spurningunni, og má ekki ætla að m.v. stuttan tíma og fjölda fyrirspurna megi selja þetta í stórum stíl úr landi ef að verðið er rétt..


Er búið að athuga hvernig er með tolla og vörugjöld inn í USA?
Hvernig er með öryggismerkingar?
Þarf svona lagað ekki að vera DOT-viðurkennt eða er nóg að merkja það "for off road only"?

Re: Algrip lásar.

Posted: 09.jan 2014, 11:57
frá Atttto
jeepson wrote:Lýst vel á þetta. Ég fer í það að hafa samband við Kára í dag eða á morgun.


Hvernig kom samtaliđ ut var hann til i ađ framleiđa lásinn aftur og hvert var þá verđiđ

Kv.Atli

Re: Algrip lásar.

Posted: 09.jan 2014, 23:33
frá bjarni95
Það hefur enginn hringt ennþá...

Re: Algrip lásar.

Posted: 09.jan 2014, 23:53
frá Svopni
Hr.Cummins wrote:
Svopni wrote:Það er engin smá pressa orðin á þessum Kára. Karlinn sefur eflaust ekki dúr en veit ekkert afhverju.


Um hvað ert þú að tala væni :?:

Það er bara verið að viðra hugmyndir um þetta, og mögulega skapa markað fyrir manninn...



Viltu ekki taka málið að þér og bjalla í kauða? Það er alltaf gaman að spá í hlutunum og spjalla um þá, en það hefur enginn komist áfram á því einu saman :) þetta er flott hugmynd sem gæti alveg gengið upp ef rétt er staðið að hlutunum og vilji er fyrir hendi. En byrjum á byrjuninni.

Re: Algrip lásar.

Posted: 10.jan 2014, 02:43
frá Valdi B
bjarni95 wrote:Það hefur enginn hringt ennþá...


haha bjóst ekki við öðru, flestir eru bara kjafturinn og myndu aldrei gera neitt í þessu...

Re: Algrip lásar.

Posted: 10.jan 2014, 08:48
frá jongud
Þetta er eins og góður ræðumaður sagði í einum félagasamtökum;
Það eru tvennskonar menn í svona félagsskap:
Þeir sem tala um hlutina,
og hinir sem GERA hlutina.

Re: Algrip lásar.

Posted: 10.jan 2014, 11:16
frá Brjotur
Mer er spurn nuna , hefur engum dottið i hug að taka upp simann og tala við kallinn ? eruð þið hræddir við hann ? mer finnst þið vera að eyða tima i allskonar kjams i staðin fyrir að einaldlega fa að vita hja honum hvort hann se til i að smiða, ef hann segir ja þa er kominn timi a þessa umræðu sem a ser stað herna ekki satt ? gangi ykkur vel

kveðja Helgi Brjotur

Re: Algrip lásar.

Posted: 11.jan 2014, 15:05
frá jongud
Það er spurning hvort það sé fyrirhafnarinnar virði að byrja að framleiða þetta hérlendis, lítill markaður o.s.frv.
Ástralir eru komnir með nýjan aðila í samkeppni við ARB sem heitir TMJ
https://www.tjm.com.au/en-oceania/products/diff-locks

Re: Algrip lásar.

Posted: 11.jan 2014, 18:25
frá jeepson
jongud wrote:Þetta er eins og góður ræðumaður sagði í einum félagasamtökum;
Það eru tvennskonar menn í svona félagsskap:
Þeir sem tala um hlutina,
og hinir sem GERA hlutina.


Já svo eru þeir sem bara hafa NÓG ANNAÐ AÐ GERA :) Ég bjalla kanski á hann í kvöld. Var nú búinn að stein gleyma þessu og búið ða vera nóg annað að gera hjá mér.

Re: Algrip lásar.

Posted: 17.jan 2014, 19:58
frá heimir páll
hvað er að frétta af þessu er komið eitthvað svar hvort þetta ferður að veruleika og þá kostnaðurinn við að fá svona lás í framdrifið á patrolnum

Re: Algrip lásar.

Posted: 17.jan 2014, 21:11
frá jeepson
Ég talaði við Kára og hann er búinn að skemta sér mikið yfir þessum þræði. Hann bað mig um að hringja í sig síðar þar sem hann var upptekin. En það er ákveðin áhætta í þessu. Menn vilja fá svona lása en svo er altaf spurningin hver stendur við svo við sitt. En þá væri kanski hægt að fá þá leið að lásarnir yrðu ekki framleiddir nema að menn væru búnir að borga inná þá eða jafvnel uppsett verð. Ég heyri betur í honum á sunnudags kvöldið eða jafnvel ekkert fyrr en eftir helgina. Og þá verður nú kanski komið svona sirka verð. Hann virðist vera opinn fyrir því að framleiða þessa lása gegn ákveðnum forsendum og verður það rætt betur við hann í næsta samtali. Hann hafði aðalega smíðað þetta í toyota og patrol. Og þá er spurning um að halda sig við það til að byrja með. Þetta verður vonandi komið á hreint á næstuni hvort að hann sé pottþétt til í þetta og þá vonandi verð. Vonandi er en von um að fá framlása á betra verði en ARB lásana.

Re: Algrip lásar.

Posted: 17.jan 2014, 21:30
frá Stebbi
Eitt sem ég fæ ekki skilið með ARB lásana og það er þetta verð sem er boðið uppá. Lás í 8" Toyotu kostar rúmlega 127þús út úr hillu í USA með flutningi frá Ástralíu og innanlands í USA og með álagningu söluaðila og söluskatti en litlar 215þús hérna heima. Þegar ég sé svona tölur og forsendur þá fæ alltaf á tilfininguna að það sé búið að leggja upp í massífa ósmurða saurþjöppun á litla skattborgaranum. Afhverju er ekki hægt að stilla álagninguni í hóf og selja þá fleiri einingar, er þetta eitthvað sér-íslenskt?

Ef að þessi Kári getur selt þetta á ca. USA verði og haft uppúr því þá held ég að hann sé með góðan aukabissness næstu árin.

Re: Algrip lásar.

Posted: 17.jan 2014, 21:44
frá Fetzer
"íslenskir driflásin sem virkar, passar í lc 90 og 120, Hilux 7.5, Tacoma og Tundra, Mitsubishi Pajero og L200.

þetta er í einni auglýsingu, hlýtur að vera mikil vinna á bakvið allar þessar gerðir,


helviti var þetta flott dæmi, með lowgíra í allan andskotan :)

vantar meira svona á klakan

http://wayback.vefsafn.is/wayback/20050301192320/http://www.kliptrom.is/low_gear_vorur.htm

getið skoðað.

Re: Algrip lásar.

Posted: 17.jan 2014, 21:52
frá jeepson
Fetzer wrote:"íslenskir driflásin sem virkar, passar í lc 90 og 120, Hilux 7.5, Tacoma og Tundra, Mitsubishi Pajero og L200.

þetta er í einni auglýsingu, hlýtur að vera mikil vinna á bakvið allar þessar gerðir,


helviti var þetta flott dæmi, með lowgíra í allan andskotan :)

vantar meira svona á klakan

http://wayback.vefsafn.is/wayback/20050301192320/http://www.kliptrom.is/low_gear_vorur.htm

getið skoðað.


Magnað að sjá að þarna er til 4,88 í patrol. Og ég sem hélt alla tíð að það væri bara til 5,13 og 5,42 fyrir utan orginal hlutfallið.

Re: Algrip lásar.

Posted: 17.jan 2014, 22:34
frá Brjotur
Stebbi svarið sem þu fengir hja t.d bilabuð benna væri a þa leið að ekki væri hægt að selja þetta odyrara af þvi að þeir þurfa að liggja með þetta svo lengi :) en ef þetta væri nu a skikkanlegu verði þa myndi þetta seljast og þeyr myndu ekkert liggja með þetta a lager :) en það er alkunna herna með okkar kaupmenn að þeir skilja þetta ekki :(