Nú bara verður maður aðeins að blása út!
Fór með jeppann í skoðun hjá frumherja í hádegismóum.
Fékk athugasemd út af útrunnu slökkvitæki og svo gátu þeir ekki fengið öryggisbeltið í miðjusætinu afturí til að smella saman.
Og svo bentu þeir mér á að það vantað rær á tvo af boltunum sex sem festa pallinn við grindina.
Ég nagaði mið auðvitað í handarbakið fyrir að hafa trassað slökkvitækið, en það var auðleyst úr því að ég keypti það hjá Ólafi Gíslasyni. Koma með gamla tækið, rétta það yfir borðið og svo fær maður eins tæki strax í skiptum. (Frábær þjónusta)
En svo galla ég mig upp í frostinu, gref upp ryðolíu, fína króka og lítil skrúfjárn og fer út á hlað til að athuga öryggisbeltið.
OG ÞAÐ ER EKKERT AÐ ÞVÍ !
Ég veit ekki hvaða erkiklaufi var að skoða bílinn!
Og til að toppa þetta, þá kaupi ég seinna rær á boltana fyrir pallinn, skríð undir hann í krapinu og ætla að skrúfa rærnar á boltana tvo.
OG HVAÐ SÉ ÉG?
Það eru soðnar rær í grindinni ! Og boltarnir vel festir í þeim.
Mér fannst þetta eitthvað skrýtið frá upphafi.
Allavega ætla ég að fara á einhverja aðra skoðunarstofu þegar ég læt endurskoða jeppann.
Frumherji
-
svarti sambo
- Innlegg: 1275
- Skráður: 15.okt 2013, 19:45
- Fullt nafn: Elías Róbertsson
- Bíltegund: F350 38,5"
- Staðsetning: Ólafsvík
Re: Frumherji
Ég hef oftar en einu sinni fengið athugasemd út á atriði sem voru í lagi. Maður spyr sig stundum að því. Eru þetta einstaklingarnir sem fá ekki vinnu á almennu verkstæði. Lenti einusinni í því að kaupa bíl sem var skoðaður sama daginn og ég keypti hann. En hann fékk fulla skoðun, þrátt fyrir að það hafi vantað bremsuklossana í öðru megin að aftan.
Fer það á þrjóskunni
-
Sævar Örn
- Innlegg: 1943
- Skráður: 31.jan 2010, 19:27
- Fullt nafn: Sævar Örn
- Bíltegund: Hilux
- Staðsetning: Reykjavik
- Hafa samband:
Re: Frumherji
jongud wrote:Nú bara verður maður aðeins að blása út!
Fór með jeppann í skoðun hjá frumherja í hádegismóum.
Fékk athugasemd út af útrunnu slökkvitæki og svo gátu þeir ekki fengið öryggisbeltið í miðjusætinu afturí til að smella saman.
Og svo bentu þeir mér á að það vantað rær á tvo af boltunum sex sem festa pallinn við grindina.
Ég nagaði mið auðvitað í handarbakið fyrir að hafa trassað slökkvitækið, en það var auðleyst úr því að ég keypti það hjá Ólafi Gíslasyni. Koma með gamla tækið, rétta það yfir borðið og svo fær maður eins tæki strax í skiptum. (Frábær þjónusta)
En svo galla ég mig upp í frostinu, gref upp ryðolíu, fína króka og lítil skrúfjárn og fer út á hlað til að athuga öryggisbeltið.
OG ÞAÐ ER EKKERT AÐ ÞVÍ !
Ég veit ekki hvaða erkiklaufi var að skoða bílinn!
Og til að toppa þetta, þá kaupi ég seinna rær á boltana fyrir pallinn, skríð undir hann í krapinu og ætla að skrúfa rærnar á boltana tvo.
OG HVAÐ SÉ ÉG?
Það eru soðnar rær í grindinni ! Og boltarnir vel festir í þeim.
Mér fannst þetta eitthvað skrýtið frá upphafi.
Allavega ætla ég að fara á einhverja aðra skoðunarstofu þegar ég læt endurskoða jeppann.
Þetta er afar leitt að heyra, við hljótum að geta gert betur.
Öllum geta orðið á mistök og ég held að það væri gott að fá þig aftur til að geta leiðrétt þetta, hafir þú kost á því mun ég að sjálfsögðu hafa milligöngu um að þú greiðir ekki fyrir skoðunina.
Skrifaðu mér endilega á Facebook(við erum félagar þar) eða símaðu til mín ef þér hugnast þetta kv. Sævar Örn
Samband Íslenskra Suzukijeppaeigenda
http://sukka.is
Skúra- og ferðablogg ásamt öðrum fróðleik
http://sabi.is
http://sukka.is
Skúra- og ferðablogg ásamt öðrum fróðleik
http://sabi.is
Re: Frumherji
Ég sé að þetta er gamall þráður en langar að segja frá hrauni sem ég fékk í Aðalskoðun í Hafnarfirði. Ég kom þar á opnum bíl, Engin toppur og engin veltigrind. Ég fékk samstundis hraun yfir mig þar sem skoðunarmaðurinn setti út á óöryggi og skoðanahæfni bílsins.
Á endanum opnaði ég símann og sýndi viðkomandi myndir af samskonar bíl af sömu árgerð framleidda án topps, veltigrindar og öryggisbelta.
Mér finnst nú alveg í lagi að menn kynni sér sögu bifreiða og öryggisbúnaðar (þróunarsögu) í eldir bílum.
Ég keyrði svo bílinn út úr stöðinni með aksturs bann :/
Fór á aðra skoðunarstöð eftir smá lagfæringar. Engin veltigrind, og ekkert þak. En full skoðun eftir eðlilegt tékk

Tengdir notendur
Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 1 gestur