Síða 1 af 1

LAST ! pósturinn

Posted: 03.jún 2020, 09:46
frá jongud
Þetta er nú aldeilis orðið meira skíta-okur fyrirtækið!!
Pantaði sérstakan bor gegnum Ebay á Bretlandi sem kostaði 1.136 krónur með sendingarkostnaði.
Svo var bankað upp á í gærkvöld og þar stóð póstmaðurinn með pakka sem auðveldlega hefði komist inn um bréfalúguna.
OG RUKKAÐI MIG UM 1200 KRÓNUR !!
Ég borgaði af því að mig vantaði borinn.
En ég er sko búinn að kvarta til Neytendasamtakanna OG Póst- og fjarskiptastofnunar.

Reglugerð um alþjónustu og framkvæmd póstþjónustu segir að "Póstsending sem ekki ber gjald samkvæmt alþjóðasamningum skal einnig vera gjaldfrjáls
hér á landi."
Þetta hlýtur að vera lögbrot skv. EES samningnum.

Re: LAST ! pósturinn

Posted: 06.jún 2020, 23:03
frá Axel Jóhann
Þetta fyrirtæki er orðið gjörsamlega óþolandi!!! Það er alltaf eitthvað tómt helvítis vesen eða aukagjöld núorðið, svo ég tali nú ekki um skertu þjónustuna varðandi afgreiðslutíma allavega hérna á Landsbyggðinni. Hér á Selfossi er opið frá 9:30 - 17:00 og hefur verið lokað milli 13-14 undanfarið svo maður hefur engann séns til að komast þangað ef maður er í vinnu fyrir utan bæinn.

Re: LAST ! pósturinn

Posted: 06.jún 2020, 23:04

Posted: 25.nóv 2021, 08:18
frá jongud
Og ENN bæta þessi erkifífl við og skíta í lastabælið!
Ég pantaði nokkra hluti frá bretlandi og það vantaði í sendinguna.
Sendandinn var ekkert nema liðlegheitin og sendi það sem vantaði (lítinn plasthring!) umsvifalaust í litlu umslagi.
Pósturinn hér tók sendinguna og heimtaði reikning. þrátt fyrir að það stæði utan á umslaginu Value = 0
Ég reyndi ÞRISVAR að koma því inn í ferkanntaðann þverhausinn á þessum drónum hjá póstinum að þetta hefði vantað í sendingu.
Á endanum borgaði ég.
Og það ALVERSTA er að allar kvartanir varðandi póstþjónustu fara nú í gegnum BYGGÐASTOFNUN !
Skítaapparat sem aldrei hefur getað gert neitt af viti!