Síða 1 af 1

Lof, BJB

Posted: 17.okt 2017, 18:32
frá helgierl
Var að kaupa General Grabber 35" gang 12,5 breidd á 15" felgur hjá Bjb í Hafnarfirði. 140 þús. komið undir (á 4x4 afslætti reyndar). Mjög sáttur við það verð miðað við það sem hefur verið í boði annarstaðar. Lítið úrval af þessari stærð (sérstaklega fyrir 15" felgurnar). Lipur og góð þjónusta.

Re: Lof, BJB

Posted: 17.okt 2017, 22:30
frá Axel Jóhann
Keypti sjálfur um daginn Cooper Discoverer STT Pro frá www.tyresdirect.is 35x12.5R15 og borgaði 129.600 með heimkeyrslu.

Re: Lof, BJB

Posted: 18.okt 2017, 07:40
frá Siggi_F
Sæll Helgi værir þú til í að panta fyrir mig :)

Ég talaði við BJB í gær og gat fengið X3 dekkin á 170 þús rúmlega (nelgd og míkróskorin) og AT2 dekkin á 195 þús nelgd, þá átti eftir að setja þau undir bílinn. Bæði verð með 4x4 afslætti.

Kv.
Siggi

Re: Lof, BJB

Posted: 18.okt 2017, 09:07
frá helgierl
Skrítið.... þeir auglýsa þessi dekk á tilboði út vikuna....129.000 4stk.

Re: Lof, BJB

Posted: 18.okt 2017, 19:31
frá Sævar Örn
Er með hiluxinn minn hjá BJB í pústi núna þeir gerðu langsamlega besta tilboð í sérsmíðina 2.5"