Síða 1 af 1

Guðni Þór Sveinsson "sukkaturbo" - Lof

Posted: 08.des 2013, 23:21
frá Startarinn
Ég held bara að ég hafi aldrei talað við jafn hreinskilin mann um ástand á dóti sem hann var að selja

Ég hringdi í Guðna útaf dekkjum sem hann var með til sölu, útúr því samtali kom að dekkinn sem hann var með henta mér enganvegin auk þess sem ástandinu var líst án allra undanbragða og sparaði mér því óþarfarúnt á Siglufjörð til að skoða, meira að segja held ég að ég hefði aldrei séð þá galla við skoðun sem hann sagði mér frá þar sem dekkin eru ekki á felgu.

Margir aðrir hefðu bara reynt að pranga þessu inná mann til að fóðra eigin vasa

Þar fyrir utan áttum við ágætis spjall um ýmislegt jeppatengt ;)

Re: Guðni Þór Sveinsson "sukkaturbo" - Lof

Posted: 09.des 2013, 08:18
frá Tollinn
Mikið finnst mér gaman að lesa svona pósta, menn eru nú yfirleitt ósparir á lastið þegar það á við en þessir póstar virka hvetjandi fyrir heiðarleg viðskipti og jafnvel frekar en lastpóstarnir.

kv Tolli

Re: Guðni Þór Sveinsson "sukkaturbo" - Lof

Posted: 09.des 2013, 15:27
frá cocacola
Get tekið undir þetta méð þér hann Guðni er gull af manni.

kv: Ívar

Re: Guðni Þór Sveinsson "sukkaturbo" - Lof

Posted: 09.des 2013, 19:37
frá birgiring
Eðlisþyngdin staðfestir það!!!

Re: Guðni Þór Sveinsson "sukkaturbo" - Lof

Posted: 09.des 2013, 20:26
frá jeepson
Guðni er eðal maður og stál heiðalegur.