Síða 1 af 1

Hvar er best að láta smíða púst

Posted: 23.mar 2012, 13:41
frá Cruserinn
Hvar hafa menn verið að láta smíða púst. Var að spá í 3" undir lc 90

Re: Hvar er best að láta smíða púst

Posted: 23.mar 2012, 14:42
frá stjanib
Ég lét Smára í Betra púst sérsmíða fyrir mig púst og get mælt með honum. Góð þjónusta og sanngjarnt verð...

Re: Hvar er best að láta smíða púst

Posted: 23.mar 2012, 14:43
frá Svenni30

Re: Hvar er best að láta smíða púst

Posted: 23.mar 2012, 15:07
frá MattiH
Sammála fyrri ræðumönnum,
Hann smíðaði 2.5" undir minn, flott vinna og sanngjarnt verð ..

Re: Hvar er best að láta smíða púst

Posted: 23.mar 2012, 22:39
frá frikki
Hjá smára í betra púst flottur drengur þar á ferð
simi 555 7070

Re: Hvar er best að láta smíða púst

Posted: 24.mar 2012, 21:25
frá Cruserinn
Hvað á maður að setja svert á 3l mótor og opið alla leið eða?

Re: Hvar er best að láta smíða púst

Posted: 25.mar 2012, 08:55
frá rabbimj
Smári smíðai einnig 2,5" púst undir minnn fyrir stuttu. Flott gert,góð þjónusta og gott verð

kv
Rabbi

Re: Hvar er best að láta smíða púst

Posted: 25.mar 2012, 12:07
frá Groddi
þeir eru góðir í Betrapúst, smíðuðu fyrir mig undir Grodda

Re: Hvar er best að láta smíða púst

Posted: 25.mar 2012, 13:34
frá Stebbi
Cruserinn wrote:Hvað á maður að setja svert á 3l mótor og opið alla leið eða?


Pústið þarf ekki að vera í yfirstærð alla leið, það sem mestu máli skiptir er að hafa downpipe sem sverast og svo er hægt að minka rörið ca. frá enda gírkassa og afturúr. Afgasið er heitast og tekur mest pláss á þessum fyrsta meter og svo kólnar það frekar hratt og tekur minna pláss eftir það.
Ég mæli með því að setja eina opna túbu á kerfið til að taka mesta hávaðan úr því, annars fer það svolítið eftir því hvað túrbínan nær að drepa mikið niður hávaðan í vélini.