Síða 1 af 1

drifhlutföll 38"

Posted: 16.mar 2012, 21:40
frá helgi sveins
spurning er með hásyngar með hlutfall pinjon 8 og kambhjól 43 þaning ég er með 5,375eða5,38 jepp cj5 65 árgerð er núna á 33" en hvað get ég komist upp með að hafa stór dekk undir honum miða við hlutföll er að reyna við 38"

Re: drifhlutföll 38"

Posted: 17.mar 2012, 01:55
frá Þorri
Ef þú ert með volvo mótorinn sem var í þessum willys sem er á profilmyndinni hjá þér þá myndi ég ekkert fara í stærri dekk en ef þú setur t.d hressa 350 í hann þá eru þessi hlutföll heldur lág fyrir 38" Annars fer þetta mikið eftir notkun bílsins ef þú ert með overdrive þá væri jafnvel hægt að nota þessi drif með hressum mótor. Mér fannst hinsvegar koma fínt út að nota 4.56 fyrir 38" og er með þau í mussonum hjá mér hann er ekki sá sprækasti en þar sem hann er ekki með overdrive þá er hann að koma fínt út hvað varðar snúning og hlutföll í gírum. Cherokeeinn minn gamli var með 350 chevy 5 gíra beinskiptur (5 gír overdrive) 4.56 drif 35" dekk hann var of lágt gíraður en fínn á 38". Þetta er allt spurning um hverju þú ert að raða saman því minni sem mótorinn er því lægri drif þarftu.
Kv. Þorri

Re: drifhlutföll 38"

Posted: 17.mar 2012, 18:24
frá Stebbi
Ég var með stutta súkku með þessum hlutföllum og Volvo krami fyrir mörgum árum og hún var á 36". Þegar hún var í 4 gír úti á vegi þá var vélin á ca milljón snúningum, algjörlega ókeyrandi á þjóðvegum. Hún hefði sjálfsagt eitthvað lagast með 5 gíra kassa en þá hefði líka þurft að fara í 38" dekk.

Re: drifhlutföll 38"

Posted: 17.mar 2012, 21:02
frá RúnarA
Fínt að skoða þetta í svona reiknivél:

http://breytir.is/reiknivelar.htm

Góða skemtun
Rúnar