Síða 1 af 1

Re: Efni í drullusokka?

Posted: 21.feb 2012, 15:48
frá LFS
alþingi kannski ?

Re: Efni í drullusokka?

Posted: 21.feb 2012, 15:59
frá Forsetinn
Prófaðu Poulsen eða Bílasmiðurinn...

eða finndu eitthvað fyrirtæki sem gæti átt gömul færibönd...

Re: Efni í drullusokka?

Posted: 21.feb 2012, 16:06
frá Magni
49cm wrote:alþingi kannski ?


nú vantar "like" takkann hehehe

Re: Efni í drullusokka?

Posted: 21.feb 2012, 18:02
frá JonHrafn
Færibandagúmmí.....?

Re: Efni í drullusokka?

Posted: 21.feb 2012, 18:15
frá Forsetinn
Jamm, menn notuð það mikið í gamla daga hehe...

Re: Efni í drullusokka?

Posted: 21.feb 2012, 19:47
frá Fálki
Ég vona að ég sé ekki að fara með rangt mál, en ég man eftir spjallþræði þar sem einhver benti á að Málmtækni væri annaðhvort að gefa drullusokka eða væri með drullusokka á gjafverði. En þeir eru merktir Málmtækni en úr alvöru þykku og fínu gúmmí.
Grunar að minnstakosti að þú fáir efni hjá þeim í þetta hvort sem þeir séu með þessa drullusokka á lager enn eða ekki.

Re: Efni í drullusokka?

Posted: 21.feb 2012, 19:51
frá MIJ
í bílabúð benna eru til þokkalega stórir drullusokkar úr mjúku gúmmí sýndist mér síðast þegar ég kom þangað, kostuðu að vísu held ég nálægt 11 þús kr parið.

Re: Efni í drullusokka?

Posted: 21.feb 2012, 20:13
frá Stebbi
Stál og Stansar hafa líka verið með þetta í jeppastærðum.

Re: Efni í drullusokka?

Posted: 22.feb 2012, 10:02
frá Magni
svopni wrote:Þetta kostar um og yfir 5000 kr stk. Þessvegna var ég að spá í færibandagúmmíi eða einhverju álíka og sníða þetta til sjálfur.Vill heldur ekki þessa stífu eins og eru í Stáli og Stönsum.


Reyndu að hafa þá eins mjúka og þú getur svo þú getir hengt þá upp þegar á fjöll er komið. Alltof algengt að þetta fari undan á fjöllum, sérstaklega í krapa. Þessir stífu er sérstaklega leiðinlegir.

Re: Efni í drullusokka?

Posted: 22.feb 2012, 19:52
frá stebbi83
Gúmmísteypa Þ. Lárussonar eiga drullusokka úr gúmmíi, þeir eru líka með færibönd ef þú vilt svoleiðis.

Re: Efni í drullusokka?

Posted: 22.feb 2012, 19:57
frá jeepson
Voru svo ekki drullusokkar að vinna hjá landsbankanum? Þeir eru kanski ekki nothæfir.