Síða 1 af 1

loftlás að framan í hilux klafa 7,5" 2,4L 1992

Posted: 12.feb 2012, 00:15
frá gummoz
er mykið mál að koma þessu í og veit einker hvar eg get feingið hann notaðan

Re: loftlás að framan í hilux klafa 7,5" 2,4L 1992

Posted: 25.feb 2012, 01:13
frá twinturbo
Ég er með algrips lás með 4.88 hlutfalli handa þér ef áhugi er fyrir hendi.
sími:8430520 kv. Dóri

Re: loftlás að framan í hilux klafa 7,5" 2,4L 1992

Posted: 25.feb 2012, 05:51
frá Hjörturinn
Einnig skilst mér að lás úr IS200 lexus passi, það er Torsen lás, örugglega skemmtilegur búnaður að framan

Re: loftlás að framan í hilux klafa 7,5" 2,4L 1992

Posted: 25.feb 2012, 14:56
frá Haukur litli
Er IS200 mismunadrifið ekki það sama og nýrra 7,5" drifið í Hilux og 90 Cruiser og nýrri? Gamla og nýja drifið er ekki með sama lás.

Re: loftlás að framan í hilux klafa 7,5" 2,4L 1992

Posted: 25.feb 2012, 15:20
frá Bskati
Haukur litli wrote:Er IS200 mismunadrifið ekki það sama og nýrra 7,5" drifið í Hilux og 90 Cruiser og nýrri? Gamla og nýja drifið er ekki með sama lás.


nýrri hiluxar (eftir 05) og cruiserar (eftir 03) eru ekki með 7.5 heldur 8.2.

LC90 er svo með 7.5 reverse.

7.5 framdrifið í klafa hiluxum til 2005 passar í IS200, ég var búinn að skoða það einhvern tíman, að það er sama partnúmer mismunadrifs keisingu á 1993 bensín hilux og 2002 IS200. Hlutfalla kittin voru ekki með sama númer, þó þau væru bæði 4.10:1. Gæti verið að pinions legur oþh sé ekki eins. En ég held nú samt að það séu ekki allir IS200 með lás, amk er ég nokkuð viss um að svoleiðis sé ekki í mínum. Veit þó að IS200 sport í UK er með lás og held ég IS300 líka, jafnvel hér á landi.

Hins vegar er ekki stórmál að koma lásnum í, það þarf hinsvegar að vanda til verks og hafa kunnáttumann í þessu þar sem það þarf að stilla backlashið og athuga með töku.

Re: loftlás að framan í hilux klafa 7,5" 2,4L 1992

Posted: 04.mar 2012, 22:12
frá Cruserinn
Dóri passar lásinn þinn í Lc90 árg 1997???