Síða 1 af 1
vandræði með 4l ranger
Posted: 05.feb 2012, 19:48
frá olafur f johannsson
er í smá vanda með 4l v6 ranger hjá mér hann á það til að hætta að ganga á öllum þegar hann hitnar og ein virðist hann missa úr þegar ég er að keira hann í langkeislu á jöfnum hraða ef hann er keirður á um 90km á sama snúnig í ca: 10-15mín???, það er ný bensín sía ný kerti nýir þæðir nýleg háspenukefli hann þjappar vel á öllum ?????????? hefur einhver einhverja hugmynd um hvað getur verið að ég er allveg lost orðin ?????????????
Re: vandræði með 4l ranger
Posted: 05.feb 2012, 20:18
frá Sævar Örn
er stórmál að taka spíssana úr og þrífa þá ég myndi gera það næst
Re: vandræði með 4l ranger
Posted: 05.feb 2012, 20:38
frá olafur f johannsson
Sævar Örn wrote:er stórmál að taka spíssana úr og þrífa þá ég myndi gera það næst
nei það er ekki stór mál mig er eimit farið að gruna spíssa eða bensíndælu
Re: vandræði með 4l ranger
Posted: 06.feb 2012, 00:21
frá StefánDal
Þetta gerðist hjá mér á Aerostar '91 með sömu vél. Mig grunaði alltaf spíssana en ég skipti bara um vél.
Það var árið 2007....
Re: vandræði með 4l ranger
Posted: 06.feb 2012, 08:10
frá Tómas Þröstur
Gæti verið loftflæðiskynjarinn - kuppurinn áfastur loftsíuhúsinu. Reyna fyrst að hreinsa hann upp.
Re: vandræði með 4l ranger
Posted: 06.feb 2012, 11:44
frá olafur f johannsson
Tómas Þröstur wrote:Gæti verið loftflæðiskynjarinn - kuppurinn áfastur loftsíuhúsinu. Reyna fyrst að hreinsa hann upp.
er búinn að hreinsa loftflæðiskinjaran og sogspjaldið
Re: vandræði með 4l ranger
Posted: 06.feb 2012, 12:17
frá Tómas Þröstur
Gæti verið of lár þrýstingur á bensíni vegna óþétts bakflæðisventils - festur á bensíngrein með tveimur litlum boltum. Mæla þrýsting á bensíngrein - það er testnippill á henni. Líka gott að setja spíssahreinsir í bensínið ef spíssar standa á sér. Kannski óhreinindi í bensíninu. TPS skinjari á spjaldhúsi gæti líka verið málið. TPS skynjarinn er eina stykkið í stjórnkerfi vélarinnar sem ég hef þurft að skifta um í mínum Ranger og búinn að eiga bíllinn frá því hann var nýlegur.
Re: vandræði með 4l ranger
Posted: 06.feb 2012, 13:26
frá olafur f johannsson
Tómas Þröstur wrote:Gæti verið of lár þrýstingur á bensíni vegna óþétts bakflæðisventils - festur á bensíngrein með tveimur litlum boltum. Mæla þrýsting á bensíngrein - það er testnippill á henni. Líka gott að setja spíssahreinsir í bensínið ef spíssar standa á sér. Kannski óhreinindi í bensíninu. TPS skinjari á spjaldhúsi gæti líka verið málið. TPS skynjarinn er eina stykkið í stjórnkerfi vélarinnar sem ég hef þurft að skifta um í mínum Ranger og búinn að eiga bíllinn frá því hann var nýlegur.
ok takk skoða þetta næst. ég er líka búinn að setja spíssahreinsi oftar en 1sinni og það hafa ekki orðið breitingar við það og þegar ég seti hann í gang í gær var allt í himna lagi þar til hann fer að hitna