Síða 1 af 1

Óhljóð í nýlegum Hilux.

Posted: 04.feb 2012, 21:11
frá ssjo
Var að taka þátt í skoðanakönnunni og komst að því að ég þarf að nota 25% tímans í skúrnum til að allt sé satt og rétt. Fyrst þarf þó að kanna hvað er bilað. Þannig er að þegar bíllinn er settur í gang hef ég upp á síðkastið heyrt ískur og óhljóð úr vélasalnum. Ég opnaði húdduð í morgun og fannst hljóðið koma reimar-rás (nýyrði) bílsins og hjómaði eins og ónýt lega eða eitthvað i þeim dúr. Mér fannst hljóðið vera í kringum AC-dæluna (sem er AC-dæla og notuð sem slík) og stillti miðstöðina á kulda og setti AC á. Þegar segulkúplingin fór á breyttist hljóðið og líklega er það sökudólgurinn. Ég gaf eina gusu af Fin-lube á hjólið og þá breyttist hljóðið aðeins. HVað er í gangi þarna, haldið þið að legan í kúplingunni sé ónýt eða hvað???.

Re: Óhljóð í nýlegum Hilux.

Posted: 04.feb 2012, 21:55
frá hobo
Já það hljómar eins og legan sé farin fyrir trissuhjólið. Þegar þú kveikir á dælunni hættir sú lega að snúast og dælan snýst í staðinn, sem útskýrir breytinguna á hljóðinu.