Síða 1 af 1

Smá heimskuleg spurning

Posted: 16.jan 2012, 20:50
frá jongunnar
Uhhhh sko Gírolía ef maður er með tregðulæsingu notarmaður limited slip olíu en ef að maður er með loftlæsingu skiptir þá máli hvaða olíu maður notar?
kv. Jón Gunnar

Re: Smá heimskuleg spurning

Posted: 16.jan 2012, 20:56
frá Stebbi
Gírolíuna sem framleiðandi bílsins mælir með eða 80-90 olíu ef maður er ekki viss.

Re: Smá heimskuleg spurning

Posted: 17.jan 2012, 11:40
frá Startarinn
Það breytir engu hvaða gírolíu þú notar fyrir loftlæsingu, tregðulæsingin er með diskatengi sem þarf limited slip olíuna til að virka rétt, loftlæsingin virkar bara eins og hver annar gírkassi, þ.e. það er enginn búnaður í henni sem krefst betri olíu, en ég myndi ekki hika við að nota 75W/90 olíu frekar en 80W/90, þó hún sé tvöfalt dýrari, bíllinn verður svo mikið léttari í akstri þegar hann er kaldur

Ertu ekki örugglega að pæla í að setja þetta á patrolinn?

Re: Smá heimskuleg spurning

Posted: 17.jan 2012, 21:36
frá jongunnar
Júbb Addi ég er að pæla í þessu á Patrol var meira að segja að spá í að bruðla militec á drifin í honum greyinu ;)