Síða 1 af 1

Hásingauppgerð? :S

Posted: 15.apr 2010, 10:19
frá SverrirO
Hvernig er best og hagsæðast að ditta að hásingu ? er það bara rokkurinn og skipamálning eða hvað eru menn að gera án þess að missa handlegg?

Re: Hásingauppgerð? :S

Posted: 15.apr 2010, 22:48
frá lukku.laki
svoleiðis ætls ég að gera það

Re: Hásingauppgerð? :S

Posted: 16.apr 2010, 23:08
frá JonHrafn
Sakar ekki að hringja í sandblástursfyritæki og fá tölu í blástur + grunnur .. sprautun. Gæti ímyndað mér að það kosti 20-40þús. Það væri besta leiðin held ég.

Ég hreinsaði hásingarnar hjá mér með rokk, vírbusta og flipaskífu, allt byrjað að ryðga og ógeð aftur. Ég læt sandblása næstu hásingu sem ég tek í gegn.

Re: Hásingauppgerð? :S

Posted: 17.apr 2010, 00:22
frá SverrirO
ekkert sem góður grunnur getur ekki gert :)

Re: Hásingauppgerð? :S

Posted: 17.apr 2010, 09:31
frá JonHrafn
Ég málaði þær með Rust-Olem frá húsasmiðjunni sem átti að vera eitthvað svaka mega gott dæmi .....

Re: Hásingauppgerð? :S

Posted: 17.apr 2010, 09:37
frá Stebbi
Gamli góði æti grunnurinn er alltaf lang bestur á svona. Leyfa honum bara að þorna mjööööög vel áður en það er málað yfir með níðsterku vélalakki. En ef að menn vilja fá það besta þá held ég að Ari í USH geti blásið þetta og málað með svartri epoxy málingu sem er ætluð fyrir olíuborðpalla. Hann hefur tvisvar tekið fyrir mig felgur og þetta virðist vera ódrepandi eitur sem hann setur á þetta.