Síða 1 af 1

Drifloku vesen i Y60 patrol

Posted: 29.des 2011, 16:48
frá gummiwrx
Sælir spjallverjar, nú var ég að versla mer 38" patrol um daginn og er i smá vandræðum með hann

þannig er það að hægri lokan er að stríða mér, koma högg og smellir uppí bíl í tíma og ótíma i 4wd i keyrslu ekkert kemur þegar ekki i gír að renna, þá var lokan opnuð til að skoða þetta þvi talið var fyrst að hún væri brotin, en svo reyndist ekki.. tók eftir þvi strax og ætlaði fara losa hana af að aftari boltarnir voru búnir að losa duglega uppá sér og get alveg juggað henni útaf hvað var laus

en allavegannaþegar opnað var kom i ljos að splittið sem fer i skarðið i öxlinum var ekki lengur á sinum stað, svo það var reynt na þvi i eðlilegt horf og allt þrifið og ný feiti, splittið sett svo bara a sinn stað og gengið frá öllu, en ekki virtist það nu endast lengi þvi stuttu seinna byrjaði þetta bara koma aftur frá henni, hef nu ekki litið a þetta aftur (bara notað rwd) en hljómar eins og áður.. afhverju helst splittið ekki i stað? getur þetta verið gormurinn eitthvað að spila þarna inní?

allar ábendingar vel þegnar! :)

Re: Drifloku vesen i Y60 patrol

Posted: 29.des 2011, 17:55
frá jeepson
Er ekki splittið bara orðið svona lélegt? Og eitt sem að mér var sagt. Als ekki hafa feiti í lokunum. Þá klikka þær. Ég setti aðrar lokur í minn í sumar. þreif þær vel upp og púslaði saman úr gömlu lokunum. En hisnvegar setti ég sjálfskipti vökva í þær bara til að það yrði einhver smurning þannig að þetta myndi ekki styrna og festast. Ég er búinn að draga upp 2 bíla í ágætis átaki í 1 á háa drifinu og slæda nokkur skipti í framdrifinu. og lokurnar hafa en ekki svikið. Ég er með super winch lokurnar. Sem að flestum þykir vera bölvað drasl. Allavega virka þær en. Og ég ætla að láta reyna á þær þennan vetur :)

Re: Drifloku vesen i Y60 patrol

Posted: 29.des 2011, 18:01
frá gummiwrx
Jáh mér svona dettur helst i hug að splittið se bara orðið það slaft að sé ónýtt, en ég er einmitt með Superwinch lokur líka, en að setja ekki feiti í þær kannast ég ekki við en ætla ekki að mótmæla að geti verið fint að sleppa henni og setja ssk vökva, það er bara eitthvað sem ég þekki ekki nóga vel til ætla fara tjá mig um.. það var bara feiti þarna þegar opnaði og var gera þetta með honum föður minum og hann talaði bara um feiti i þetta, þetta er bara eitthvað sem þyrfti að kynna mer betur, ef einhver herna les þetta sem er með þetta alveg a kristaltæru endilega deila þeim upplýsingum :)

Re: Drifloku vesen i Y60 patrol

Posted: 29.des 2011, 19:25
frá jeepson
gummiwrx wrote:Jáh mér svona dettur helst i hug að splittið se bara orðið það slaft að sé ónýtt, en ég er einmitt með Superwinch lokur líka, en að setja ekki feiti í þær kannast ég ekki við en ætla ekki að mótmæla að geti verið fint að sleppa henni og setja ssk vökva, það er bara eitthvað sem ég þekki ekki nóga vel til ætla fara tjá mig um.. það var bara feiti þarna þegar opnaði og var gera þetta með honum föður minum og hann talaði bara um feiti i þetta, þetta er bara eitthvað sem þyrfti að kynna mer betur, ef einhver herna les þetta sem er með þetta alveg a kristaltæru endilega deila þeim upplýsingum :)


Þetta var mér sagt af þeim sem að átti pattann minn. Ég lét allavega reyna á þetta og alt virkar eins og er. Og svo ætla ég bara að láta reyna á þetta í vetur.