Síða 1 af 1

Ægis stútar í Patrol

Posted: 25.okt 2011, 22:22
frá Bóndinn
Sælir
Ég er að fara að skipta um legur hjá mér að framan og get ekki með nokkru móti lesið á ytri leguna hjá mér.
Og þar sem bíllinn er komin með Ægisstúta þá get ég ekki notað orginal málin ekki satt?
Er ekki einhver sem veit hvaða lesning á að vera á þeim.

Ég veit að ég get alveg mælt þær...hit er bara einfaldara.:-)

Svo væri gaman að vita hvar ég á að kaupa nýjar legur....

Kv Geiri

Re: Ægis stútar í Patrol

Posted: 25.okt 2011, 23:29
frá Polarbear
þú ert náttúrulega alveg svakalega öruggastur og sneggstur með að hringja hreinlega í Ægi :) renniverkstæði ægis, finnur það í símaskránni.... að vísu ekki fyrr en í fyrramálið, en legubúðir eru hvort eð er lokaðar þangað til líka svo það ætti varla að drepa neinn.

Re: Ægis stútar í Patrol

Posted: 25.okt 2011, 23:38
frá Hagalín
Er það ekki rétt hjá mér að þó að þú sért með Ægislokur/flangsa þarf ekki endilega að vera að þú sért með stærri legur???
Gæti ekki bara verið að þú sért með orginal legur og svo Ægislokurnar þar utan á?

Re: Ægis stútar í Patrol

Posted: 25.okt 2011, 23:47
frá Bóndinn
Lárus:
Það skýrir ýmislegt ég er nefnilega búinn að vera að hringja í Fálkan í allt kvöld en það hefur bara enginn svarað......


Hagalín wrote:Er það ekki rétt hjá mér að þó að þú sért með Ægislokur/flangsa þarf ekki endilega að vera að þú sért með stærri legur???
Gæti ekki bara verið að þú sért með orginal legur og svo Ægislokurnar þar utan á?


Ég hef aldrei skilið nákvæmlega hvað er gert þegar þessir ægisstútar eru settir á, er bara aukið bilið á milli leganna eða er ytri legan stækkuð líka?
Vissulega mun ég tala bara við Renniverkstæði Ægis á morg til að vera viss.

Kv Geiri

Re: Ægis stútar í Patrol

Posted: 26.okt 2011, 07:06
frá Hagalín
Bóndinn wrote:Lárus:
Það skýrir ýmislegt ég er nefnilega búinn að vera að hringja í Fálkan í allt kvöld en það hefur bara enginn svarað......


Hagalín wrote:Er það ekki rétt hjá mér að þó að þú sért með Ægislokur/flangsa þarf ekki endilega að vera að þú sért með stærri legur???
Gæti ekki bara verið að þú sért með orginal legur og svo Ægislokurnar þar utan á?


Ég hef aldrei skilið nákvæmlega hvað er gert þegar þessir ægisstútar eru settir á, er bara aukið bilið á milli leganna eða er ytri legan stækkuð líka?
Vissulega mun ég tala bara við Renniverkstæði Ægis á morg til að vera viss.

Kv Geiri


Það sem ég held er að þú getur verið með Ægisstúta/lokur og verið með orginal legurnar.
En ef þú lætur renna naf og legustúta fyrir stærri legu og meira bili þá verðuru að hafa Ægisstúta/lokur.

Re: Ægis stútar í Patrol

Posted: 26.okt 2011, 08:16
frá Brjótur
Strákar ,,,,Ægisstútar,,, þýðir stærri ytri lega og lengra á milli leganna, og það er sko ekki það sama stútur og loka :)

kveðja Helgi

Re: Ægis stútar í Patrol

Posted: 27.okt 2011, 00:05
frá Hansi
Í þessum bíl eru Ægislokur, Ægis legustútar og stærri ytri legur, sem er ekki svo langt síðan var sett í hann nýtt eða síðasta haust...... Þoldu legurnar illa 5,9 og 46"?

Re: Ægis stútar í Patrol

Posted: 27.okt 2011, 10:57
frá birgthor
Þegar þessi breyting er gerð er ekki verið að setja líka innri legur að utan? Svo allar legur eru eins að framan?

Re: Ægis stútar í Patrol

Posted: 31.okt 2011, 09:51
frá Bóndinn
Sælir
Hansi wrote:Í þessum bíl eru Ægislokur, Ægis legustútar og stærri ytri legur, sem er ekki svo langt síðan var sett í hann nýtt eða síðasta haust...... Þoldu legurnar illa 5,9 og 46"?


Ég er ekki farinn að keyra hann enn mér fannst bara rétt að skipta um legur þar sem ég var með þetta allt í höndunum,svo litu slífarnar í legunum svona út!
Kv Geiri