Síða 1 af 1
Hvar er best að kaupa rafgeima
Posted: 18.okt 2011, 22:18
frá kjellin
sælir , nú er komin tími á rafgeima skipti hjá mér, ég var svona spá hvortað þið hefðuð einhverja skoðun á því hvar best væri að kaupa rafgeimir uppá verð og gæði
Re: Hvar er best að kaupa rafgeima
Posted: 18.okt 2011, 22:38
frá Jens Líndal
Ég fékk geyma um daginn hjá "nýju" fyrirtæki á íslandi sem kallast Mekonomen, flottir geymar sem ég fékk á fínu verði, ég man ekki tegundina og ég veit ekki hve vel þeir reynast með tímanum, en eins og er eru þetta dúndurgeymar sem bara virka, minnir að geymarnir séu sænskir.
Re: Hvar er best að kaupa rafgeima
Posted: 19.okt 2011, 14:54
frá steinarxe
Held að þetta fyrirtæki sé norskt og ef að það er sama stjórn yfir þessu þar og heima þá vara góðu verðin ekki lengi, ægileg okurbúlla. En um að gera að nýta það sem er;) Annars get ég alveg mælt með skorra uppá höfða,þeir setja í bílinn gæðamerkið TUDOR og hjá mér skiptu þeir meiraðsegja um skónna ánþess að rukka fyrir og mældu og græjuðu og gerðu. Þetta alltsaman kostaði nokkrum krónum minna heldur en að fara í bílanaust og kaupa BANNER eða VARTA og gera allt sjálfur.Svo sérhæfa þeir sig líka í rafgeymum og það hlýtur að vera kostur.
Re: Hvar er best að kaupa rafgeima
Posted: 19.okt 2011, 18:00
frá JHG
Rafgeymasalan í Hafnarfirði hafa reynst mér mjög vel, lenti í því að geymir tæmdist hjá mér útaf útleyslu (fór niður í 6V) og tók ekki hleðslu, þeir tóku hann inn og ég fékk hann eins og nýjan daginn eftir og það kostaði ekki neitt!
Re: Hvar er best að kaupa rafgeima
Posted: 19.okt 2011, 19:31
frá arni87
Ég var að versla 2 geimasett (samtals 8 geimar) í skip.
Ég verslaði þá í geimasölunni í hafnafirði en þeir voru ódýrastir.
Svo skemmir þjónustan hjá þeim ekki fyrir, ég lenti í að bræða pól á einum geiminum og var því kipt í liðinn fyrir mig og þeir rukkuðu ekkert þar sem ég fékk vitlausan bolta fyrir pólinn.
Mæli hiklaust með þeim, frábær þjónusta og flott verð.