Síða 1 af 1
EGR kerfi á 22re
Posted: 02.okt 2011, 18:53
frá draugsii
haffa einhverjir hérna aftengt þetta egr kerfi sem er á 22re vélinni og hvernig er það þá að koma út?
Hef heyrt að menn hafi eitthvað verið að aftengja þetta
Re: EGR kerfi á 22re
Posted: 02.okt 2011, 19:44
frá Einar Örn
afsakið fáfræði en hvað er þetta EGR kerfi...? og hvað á að breitast efað þú aftengir það..?
Re: EGR kerfi á 22re
Posted: 02.okt 2011, 21:06
frá Svenni30
Einar Örn wrote:afsakið fáfræði en hvað er þetta EGR kerfi...? og hvað á að breitast efað þú aftengir það..?
EGR er mengunarbúnaður sem hitar loftið inná vélina til þess að minnka NOx og með því að fjarlægja hann fær vélin bara kaldara loft og því meiri kraft.
ER það ekki rétt annars
Re: EGR kerfi á 22re
Posted: 02.okt 2011, 21:11
frá Einar Örn
sensagt litla kopar stikkið semað er við hvalbakinn semað far inní inspítingar kerfið....
en það er líka önnur leið til að fá kaldara loft inní þessa mótor það er að færa loftsíu boxið þar semað rafgeimirinn er og öfugt því að þá fer loftið ekki yfir vatnskassann og mótor í einthverju plast röri semað hitnar heldur fer það stittri leið beint inní inspítinguna..:)
allavega er þetta næst á dagskrá hjá mér og ath hvort þetta breiti ekki einthverju..
Re: EGR kerfi á 22re
Posted: 02.okt 2011, 22:09
frá Stebbi
EGR hleypir smá pústi inn á soggrein aftur til að breyta brunahita og ef ég man rétt þá virkar EGR aðallega þegar bíllinn er í lausagangi. Ef þú fjarlægir EGR kerfið þá þarftu eflaust að mappa tölvuna uppá nýtt eða lóða eitthvað af dóti við hana svo að það komi ekki Check engine ljós og svoleiðis fjör.
Re: EGR kerfi á 22re
Posted: 02.okt 2011, 22:33
frá draugsii
Þetta er áhugaverð hugmynd með loftsíuboxið útheimtir að vísu pínu lengingar á raflögnum en ætti ekki að vera neitt mál að öðru leiti.
í sambandi við egr kerfið þá leiðist mér afskaplega þetta rör sem liggur yfir pústgreininni og afturfyrir mótorinn og var að spá eins og áður hefur komið fram hvort einhver hafi tekið þetta úr og hvort það hafi þá haft einhver áhrif á eiðslu í aðra hvora áttina, og eins hvort aflið hafi breyst eitthvað
Re: EGR kerfi á 22re
Posted: 03.okt 2011, 01:47
frá Örn Ingi
Ég átti v6 toyotu sem var búið að gelda egr ...eina vandamálið sem fylgdi því var útblástursmengunn í skoðun.
Fékk aldrey check engine á þetta!