Síða 1 af 1

rafgeymar???

Posted: 15.sep 2011, 09:34
frá Brynjarp
hvernig rafgeyma á maður að fá sér. ? hvað eru bestu geymarnir? er með 2,4 hilux disel turbo interxooler

Re: rafgeymar???

Posted: 15.sep 2011, 12:07
frá halldorm
Hann Kristján í Rafgeimasölunni í Hafnarfirði hefur alltaf reynst mér gríðarlega vel. Hann mælir allt í bak og fyrir og ef það er hleðslan sem er að trufla þig, þá færðu allar upplýsingar um að, án þess að borga krónu.

http://www.rafgeymar.is/

Hann fær topp meðmæli frá mér.

kk

Halldór

Re: rafgeymar???

Posted: 15.sep 2011, 12:28
frá Dodge
Ég veit bara að þessir rauðu tvítóla Banner geymar sem allir eru að selja núna er ekki góðir.

Re: rafgeymar???

Posted: 15.sep 2011, 12:29
frá Polarbear
ég er einmitt með ársgamalt sett af banner geymum sem eru steindauðir. greinilega rusl rafgeymar.

Rafgeymasalan hefur reynst mér vel, ég keypti þessa ekki þar en ætla klárlega að kaupa hjá þeim næsta sett. eftir stutta könnun er Rafgeymasalan ódýrust hvort eð er sýnist mér.

Re: rafgeymar???

Posted: 15.sep 2011, 17:25
frá Stebbi
Polarbear wrote:ég er einmitt með ársgamalt sett af banner geymum sem eru steindauðir. greinilega rusl rafgeymar.


Banner eru ekkert rusl rafgeymar frekar en annað, aðilarnir sem selja þér Banner rafgeyma eru í flestum tilfellum hægt að setja í ruslflokk þegar kemur að geymslu og umhirðu á nýjum rafgeymum. Þegar þú kaupir rafgeymir hjá N1 þá er hann alveg örugglega búin að standa í einhverja mánuði í hillu án þess að fá hleðslu. Þetta er meginástæðan fyrir því að menn eiga að kaupa rafgeyma af þar til gerðum rafgeymasölum eins og köllunum í Hafnarfirði eða hjá Skorra, þar eru menn meðvitaðir um hvað þeir eru með í höndunum og flytja oftast inn þurra geyma og setja sýruna á sjálfir.

Re: rafgeymar???

Posted: 15.sep 2011, 17:45
frá Eiður
Ég er með einhvern spes "jepparafgeymi" frá tudor sem að skorri er að selja ég er mjög sáttur með hann...

Re: rafgeymar???

Posted: 15.sep 2011, 18:53
frá jeepcj7
Ég myndi líka skoða geyma hjá jlt.is gaur sem hefur verið að auglýsa hérna annað slagið er að mér sýnist með ac delco sem er að ég held gott merki og mjög gott verð líka sýnist mér.
Annars verslaði ég banner í grand caravan sem ég átti og notaði í 2 ár og seldi svo virkaði vel þann tíma fannst þessi 4 ra póla fídus alveg snilld.

Re: rafgeymar???

Posted: 15.sep 2011, 19:21
frá Grétar
Haustið 2007 keypti ég isuzu crewcab disel. í honum var, og er ennþá 4ra póla Banner rafgeymir. Ég er núna búinn að nota bílinn í fjóra vetur með þessum geymi án vandræða. síðasta vetur startaði hann létt í 15 stiga frosti. Þannig að ég er ekki sammála því að banner geymar séu rusl. Ég er hins vegar sammála því að það skiptir máli hvernig söluaðilinn meðhöndlar geymana fyrir sölu.

Re: rafgeymar???

Posted: 15.sep 2011, 20:06
frá Startarinn
Geymar byrja að "eldast" um leið og sýran fer á þá, ég kaupi helst ekki geyma þar sem ég sé ekki sjálfur þegar sýran er sett á, en aftur á móti þá flutti ég inn, með hjálp frá Shopusa, nýjan gulan Optima geymi í jeppann. Ég var með rauðan optima þar til síðasta haust þegar jeppinn stóð inn í skúr óhreyfður í 3 mánuði með geyminn tengdan og hann tæmdist, hann hélt ekki hleðslu eftir það. En ég keypti þennan geymi haustið 2000 í Nissan laurel sem ég átti þá, ég gleymdi ljósi á í þeim bíl vorið 2002 þegar ég var á sjó, geymirinn tæmdist og fraus. Ég þíddi geyminn upp og hlóð og notaði svo vandamálalaust í 8 ár í viðbót, þar af 4 í jeppanum. ég hef tröllatrú á þessum geymum svo ég borgaði talvert meira en fyrir venjulegan geymi til að fá svona geymi aftur.

Bílabúð Benni hætti því miður að flytja þessa inn

Re: rafgeymar???

Posted: 15.sep 2011, 21:06
frá spámaður
var einu sinni með optima þurrgeymi hjá mér í bíl,gott stuff.er með deka geyma núna þeir virðast vera fínir enda nýlegir.

Re: rafgeymar???

Posted: 16.sep 2011, 11:09
frá Dodge
Við sjáum bara á verkstæðinu þar sem ég er að vinna að rafgeymakarið er alltaf fullt af 3 - 4 ára gömlum banner geymum úr nýlegum brúksbílum.

Almennilegur rafgeymir endist léttilega 10 ár í venjulegum brúksbíl.

Re: rafgeymar???

Posted: 17.sep 2011, 16:36
frá snowflake
Og hvaða geyma á þá að kaupa, er einmitt að fara að kaupa geymi í ravinn minn sem er orðinn ónýtur.

Re: rafgeymar???

Posted: 17.sep 2011, 16:47
frá HaffiTopp
Þarft ekki endilega nýjann rafgeymi þótt bíllinn sé ónýtur ;) hehe
Kv. Haffi

Re: rafgeymar???

Posted: 18.sep 2011, 11:31
frá snowflake
Átti svo sem von á svona svari;) þar sem ég fattaði þetta ekki fyrr en ég var búinn að ýta á send. hehe :)