Síða 1 af 1

Pústefni

Posted: 12.sep 2011, 09:38
frá Bóndinn
Góðan dag

Hvar er hægt að kaupa 3,5" pústefni annarstaðar en BJB??

90° beyja 9500 kr.....er ekki alveg að gera sig!!!!!!!

Kv Geiri

Re: Pústefni

Posted: 12.sep 2011, 12:57
frá Kiddi
Sæll

N1 hafa verið með slatta af þessu á mun skaplegra verði, þó það teljist nú seint ódýrt. Það er allavega undir 5.000 kallinum. Það er að segja ef þeir eiga þetta til á lager..........

Re: Pústefni

Posted: 12.sep 2011, 14:15
frá aae
Tékkaðu á Einari Smiðjuvegi 50 5640950

kv Andri

Re: Pústefni

Posted: 12.sep 2011, 18:02
frá ellisnorra
Image
Svona gerði ég þetta, skar 15° í rörin þannig að allar beyjur eru 30° , ef ég þarf meiri beyju þá hef ég fleiri 30° beyjur í röð. Engar suðubeyjur sem kosta morð heldur bara örlítið fleiri mín í vinnu. Ég græjaði þetta í mai 2007 og þetta er í góðu lagi ennþá þó dáldið sé farið að ryðga í kringum suðurnar í dag eftir vel rúmlega 100þús km og 4 og hálft ár tæp. Það sem ég mundi gera öðruvísi í dag er að reyna að verja þetta einhvernvegin, spurning hvort zink spray eða eitthvað slíkt mundi tolla vel á.
Auðvelt er að móta þetta undir bílnum, merkja með tússi hvernig á að sjóða eða punkta saman undir bílnum og fullsjóða svo uppá borði.
Lykilatriðið svo þetta gangi vel er að hafa góða prófílsög.