Síða 1 af 1
hjálp
Posted: 21.aug 2011, 12:28
frá elfar94
það eru sennilega farnar legurnar í gírkassanum hjá mér, veit einhver hvar það er ódýrt að láta taka upp kassan? veit um einn stað sem tekur 100 þús, er það kanski bara það lægsta?
Re: hjálp
Posted: 21.aug 2011, 13:01
frá helgiaxel
Það er kanski ágætlega sloppið, er það fyrir utan verðið á legunum?
Ég myndi tala við vélaverkstæði Kristjáns í Borgarnesi, maðurinn er snillingur
437-2161
Kv
Helgi Axel
Re: hjálp
Posted: 21.aug 2011, 16:04
frá Sævar Örn
Rífðu hann úr og opnaðu hann og skoðaðu, fáðu aðgang að pressu eða fáðu félaga með þekkingu til að kíkja á þetta. Hvaða hobbýmaður sem er ætti að geta skipt um legur og jafnvel syncro í lödukassa, þeir eru einfaldasta smíð sem völ er á þegar gírkassar eru annars vegar.
Viðhengið lödukassi2.JPG er ekki lengur til staðar
ég á talsvert mikið af upplýsingum um lödurnar bæði í tölvunni og í höfðinu þannig ef eitthvað vantar máttu vera í bandi
Re: hjálp
Posted: 21.aug 2011, 18:53
frá elfar94
takk fyrir, en sævar, ekki lumaru nokkuð á viðgerðarbók fyrir lödu? eitthvað svipað þessari
http://www.downloadmanuals.com.au/images/P/3298.jpg og hvar gæti ég fengið legur sem passa í gírkassan?
Re: hjálp
Posted: 21.aug 2011, 21:56
frá Sævar Örn
ég á einhverjar bækur bæði rússnezkar og íslenzkar á tölvutæku en eina alvöru bókin sem ég á er parts reference bók með teiknuðum myndum af íhlutum ásamt partanúmerum þeirra m.a. leganna í gírkassann sem þu sjálfsagt fengir stakar í Fálkanum.
Svo er spurning hvort það séu ekki til rebuild kit í þessa gírkassa frá útlöndum...
Re: hjálp
Posted: 21.aug 2011, 22:07
frá HaffiTopp
Varstu búinn að prófa að skifta um olíu á gírkassanum og sjá hvort það hafði eitthvað að segja með óhljóð og söng í honum? Eða allavega kíkja í smurbókina og sjá hvort það hefði einhverntímann verið gert?
Kv. Haffi
Re: hjálp
Posted: 21.aug 2011, 23:00
frá Freyr
Hvað ertu búinn að eiga bílinn lengi? Ef þetta er ekki breyting sem þú hefur orðið var við heldur einfaldlega söngur frá því þú eignaðist hann þá ættir þú að fá einhvern sem þekkir þessa bíla til að prófa hann. Það syngur og hvín hressilega í þeim miðað við þá jeppa sem maður er annars vanur (allir hinir fyrir utan Land Rover, þeir hljóma eins og Ladan). Bara svona til að koma í veg fyrir annars hugsanlega óþarfa gírkassaupptekt.
Kv. Freyr
Re: hjálp
Posted: 21.aug 2011, 23:16
frá elfar94
er búinn að eiga bílinn í c.a. 2 vikur ,en t.d. þegar ég fór með hann í smurningu um daginn þá sögðu karlarnir þar að það væru sennilegast legurnar farnar hjá mér. og hann hljómar hræðilega í 5. gír.
Re: hjálp
Posted: 21.aug 2011, 23:26
frá birgiring
Láttu bílinn ganga í frígír eftir að þú hefur ekið honum og gírkssinn náð að volgna.Ef þú heyrir þá grófan leguhvin sem þagnar þegar þú stígur á kúplinguna þá er kominn tími á leguskipti. Ef að Lada Sport hvín ekki og nötrar á 70 km.hraða og þar yfir,
þá er það óeðlileg ástand.
Re: hjálp
Posted: 21.aug 2011, 23:51
frá elfar94
takk fyrir, ég prófa það