Síða 1 af 1

Upphækkunarklossar undir Benz ML árg 2000..

Posted: 25.júl 2011, 12:19
frá maxi
Er einhver sem hefur smíðað klossa í ml jeppa sem fara yfir afturgormana? Er hægt að fá þetta einhversstaðar á landinu?

M

Re: Upphækkunarklossar undir Benz ML árg 2000..

Posted: 25.júl 2011, 12:20
frá maxi
Fann þetta á netinu...kannast einhver við þetta?
http://www.flickr.com/photos/wapster/4036702377/in/photostream/

M

Re: Upphækkunarklossar undir Benz ML árg 2000..

Posted: 25.júl 2011, 12:43
frá Freyr
Þegar ég vann hjá Ræsi hækkaði ég nokkra ML bíla. Minnir að klossarnir hafi bara komið frá Málmsteypunni Hellu en ég er ekki viss.

Freyr

Re: Upphækkunarklossar undir Benz ML árg 2000..

Posted: 27.júl 2011, 14:32
frá maxi
Takk fyrir þetta Freyr. Þetta passaði.

MP

Re: Upphækkunarklossar undir Benz ML árg 2000..

Posted: 09.des 2011, 22:35
frá Burri
Þessar myndir eru frá mér. Ég framleiddi svona upphækkunar kit fyrir ml og seldi slatta til útlanda undir nafninu stardust. Lét vatnsskera þetta út í 16 mm ál . Svipað og hella er með steipt. Ekki skemtilegt að koma þessu undir. En ml á klárlega að vera á 33 tommum. Þvílík breyting a bílnum. ..

Re: Upphækkunarklossar undir Benz ML árg 2000..

Posted: 04.sep 2015, 11:42
frá sukkaturbo
Sælir félagar nú er ég að spá í svona bíl Benz jeppa--ling sirka 2000 árgerð. Ætlaði hann á 32 til 33" er þetta mikið mál að gera þetta og hvað ber að huga að þegar maður verslar sér þessa árgerð 2000 til 2002. Hvaða útfærslu mæla menn með 6cyl eða 8 cyl eða 2,7 disel. Kveðja Guðni á sigló