Hetta á bremsunippil
Posted: 13.júl 2011, 21:55
frá HaffiTopp
Veit einhver hvar maður getur nálgast litlu gúmmí/plasthlífarnar (hetturnar) sem koma yfir loftnipplana á bremsum á flestum bílum sem maður umgengst? Er einhver verslun með þetta hjá sér á lager eða álíka.
Kv. Haffi
Re: Hetta á bremsunippil
Posted: 13.júl 2011, 22:15
frá Sævar Örn
Gefins á partasölu, asíu og evrópubílar eru nánast alltaf með þetta, en kaninn er latur að brúka þetta.
Besta lausn væri auðvitað að baða nippilinn og eins nipplana sem bremsurörin tengjast með í koppafeiti. Þá stíflast þetta aldrei né festist vegna ryðs eða drullu.