Það er byrjað að leka meðfram leguni og pakkdósini hjá mér á lc 70, að aftan.. þeir hjá stál og stönsum segja þetta erfitt að pressa hana ur og nyja í..
hefur eitthver gert þetta... er þetta svaklalegt vesen?
takk
Legur í 70 krúser hásingum
-
- Innlegg: 116
- Skráður: 07.feb 2011, 18:05
- Fullt nafn: Hilmar Örn Smárason
- Bíltegund: 44" 4Runner
- Staðsetning: Kópavogur
Re: Legur í 70 krúser hásingum
Ég hef aldrei skoðað aftur hásingu í lc70 en ef þetta er eins og hilux og 4runnner þá er þetta ekkert mál.
Ef þetta er bara pakkdós þá er nóg að kippa öxlinum út og þá gerurðu skipt um pakkdósina í endanum á hásingunni. þarft ekkert að eiga við leguna eða henni tengdri.
Ef þú þarft að skipta um drullusköfuna sem er utan við leguna þá er hægt að gera það með því að taka
1. splitið af öxlinum
2. Slípa í krumphólkinn til að veikja hann, þegar hann er orðinn nógu þunnur þá koma sprungur í hann og hann brestur í sundur eða veitir minna viðnám þegar legan er pressuð af (passa að slípa ekki í öxulinn eða leguna).
3. pressa leguna af. Ef þetta gengur vel geturðu notað legunna aftur en þarft nýjan krumphólk og splitti.
Einnig er hægt að pressa leguna og krumphólkinn sama af í einu en það fer ekki eins vel með leguna.
Þetta á við með Hilux og 4 runner, finnst líklegt að þetta sé eins í lc 70 ef hann er með 8" drifi.

- Innlegg: 1697
- Skráður: 01.feb 2010, 08:46
- Fullt nafn: Hrólfur Árni Borgarsson
- Bíltegund: F-250 Powerstroke
- Staðsetning: Akranes
Re: Legur í 70 krúser hásingum
Í allflestum tilvikum þegar pakkdós út í hjól fer að leka er legan orðin ónýt og þessvegna fer dósin að leka.
Heilagur Henry rúlar öllu.
-
- Innlegg: 1929
- Skráður: 31.jan 2010, 19:27
- Fullt nafn: Sævar Örn
- Bíltegund: Hilux
- Staðsetning: Reykjavik
- Hafa samband:
Re: Legur í 70 krúser hásingum
hæhæ, er ekki fullfloat öxlar í 70 cruis að aftan??
Samband Íslenskra Suzukijeppaeigenda
http://sukka.is
Skúra- og ferðablogg ásamt öðrum fróðleik
http://sabi.is
http://sukka.is
Skúra- og ferðablogg ásamt öðrum fróðleik
http://sabi.is
-
- Innlegg: 2098
- Skráður: 31.jan 2010, 22:59
- Fullt nafn: Stefán Stefánsson
- Bíltegund: Eitthvað blátt
- Staðsetning: Hafnarfjörður
Re: Legur í 70 krúser hásingum
Sævar Örn wrote:hæhæ, er ekki fullfloat öxlar í 70 cruis að aftan??
Það fer eftir því hvað þú kallar 70 krúser. Íslendingar eiga það til að kalla alla krúsera með þessum framenda 70 krúser þegar um ræðir að minsta kosti 3 bíla.
Hilux DC 2.4 dísel úrbræddur
Jeep Grand Cherokee 4.7 Seldur
MMC Pajero 2.5TDI 38" Seldur
Ford Econoline 44"
Jeep Grand Cherokee 4.7 Seldur
MMC Pajero 2.5TDI 38" Seldur
Ford Econoline 44"
Re: Legur í 70 krúser hásingum
reif þetta i sundur.. tók mig akkurat 10 mínótur að fá leguna upp á borð til mín :D ætla svo að láta pressa nyja á..
legan var farinn að skaga sér heilmikið.. búinn bara... skipti um þetta
þetta er auðveldara heldur en að skipta um framljósaperu í vw golf :)
Takk
legan var farinn að skaga sér heilmikið.. búinn bara... skipti um þetta
þetta er auðveldara heldur en að skipta um framljósaperu í vw golf :)
Takk
Land Cruiser 70 1989 í uppgerð
Hyundai Terracan 38"
Hyundai Terracan 38"
Til baka á “Breytingar, viðhald og viðgerðir”
Tengdir notendur
Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 1 gestur