Síða 1 af 1

Fjöðrun í hilux

Posted: 06.jún 2011, 14:07
frá Hfsd037
sælir, ég er með hilux sem er á klöfum að framan og 4-link að aftan
klafarnir eru frekar slakir en grjóthastur að aftan
hvort hafið þið verið að skipta um dempara eða gorma til að mýkja fjöðrunina?
getið þið sagt mér hvernig ég nái góðri og mjúkri fjöðrun í jeppann??

Re: Fjöðrun í hilux

Posted: 06.jún 2011, 14:34
frá StefánDal
Áttu pallhús á hann? Ef svo er, skelltu því á og prufaðu.

Re: Fjöðrun í hilux

Posted: 06.jún 2011, 20:00
frá Hfsd037
stedal wrote:Áttu pallhús á hann? Ef svo er, skelltu því á og prufaðu.


Nei ég á ekki pallhús á hann því ég seldi það, en eftir að ég tók það af honum fann ég lítinn mun í fjöðrun að aftan

Re: Fjöðrun í hilux

Posted: 08.jún 2011, 23:01
frá arni hilux
vinur minn er með runnara á rangerover gormum og 80 cruser dempurum ættir að prófa það hann er þræl mjúkur og teygir svakalega, en það er kanski svoldið mikill munur á þyngd sem legst á hásingarnar, en það skaðar ekki að prófa:)

Re: Fjöðrun í hilux

Posted: 09.jún 2011, 01:24
frá Þorsteinn
settu 4 sandpoka á pallinn á honum þá ætti hann að vera fínn. annars er líka hægt að setja í hann aukatank í rassgatið á honum og vera með olíu í honum.

kv. Þorsteinn

Re: Fjöðrun í hilux

Posted: 09.jún 2011, 10:32
frá Hfsd037
Þorsteinn wrote:settu 4 sandpoka á pallinn á honum þá ætti hann að vera fínn. annars er líka hægt að setja í hann aukatank í rassgatið á honum og vera með olíu í honum.

kv. Þorsteinn


sælir, ég er með 120 ltr. aukatank mjög aftarlega en það breytir ekki miklu en hann er samt skárri..
vill helst hafa pallinn tóman svo ég sé ekki að þyngja bílinn fyrir ferðalög

vitið þið lengdina á patrol gormum og eru þeir of stífir fyrir afturhásingu á pallbíl?