Síða 1 af 1
cherokee
Posted: 05.maí 2011, 19:39
frá Vardi
getur einhver sagt mér hvort passar milli kassi og fram hásing úr 88 cerokee litla .í grand 97
Re: cherokee
Posted: 05.maí 2011, 21:25
frá Stjáni
Fer aðeins eftir því hvaða vélarstærð þú ert með því td. ef þú ert með 4 cyl bíl þá gengur ekki millikassi úr honum aftan á td 6 cyl 4.0 þó kassarnir heiti það sama ég lennti í þessu með np 231 kassann en með hásinguna að þá er ég nokkuð viss um að hún gangi á milli en þó getur verið einhver munur á bremsum í þessum hásingum einsog td. misdjúpir diskarnir og álíka þannig ef þú ætlar ekki að fara blanda hásingunum mikið saman þá gæti þetta alveg hugsanlega gengið....
ef ég fer með rangt mál þá endilega leiðréttið það :)
Re: cherokee
Posted: 06.maí 2011, 00:03
frá Freyr
Millikassinn passar ekki nema með breytingum, a.m.k. annar rillufjöldi á input öxlinum
Hásingin passar á milli (m.a.s. sterkari því drifið er revers en öxlarnir eru veikari því þeir eru með 27mm krossum en í grand eru 30mm krossar) en þú þarft væntanlega að færa liðhúsin og tilheyrandi (allt fyrir utan spindilkúlur) á milli til að halda sömu bremsum áfram.
Freyr