Síða 1 af 1

Hilux 2.4TDI 5.71 44" slæm uppskrift af fjallajeppa??

Posted: 25.apr 2011, 23:08
frá Pajero1
Er með Hilux með v6-3.0 og hann er á 44"dekkjum með 5.71 hlutföll. Mig langar mikið í Diesel vél í hann og get fengið 2.4TDI úr Hilux á góðu verði. Er þetta vélar swap alveg afleit hugmynd?
Eru þetta alveg stein geldar vélar og tala ég nú ekki um á 44"dekkjum með 5.71 hlutföll??
Hver gæti eyðslan mögulega verið?
Hversu mikið mál er að græja 2.4 í grind sem gerði ráð fyrir V6u? n

Re: Hilux 2.4TDI 5.71 44" slæm uppskrift af fjallajeppa??

Posted: 26.apr 2011, 01:42
frá Nóri 2
held það sé ekkert afleidd hugmynd en myndi reyna að fá 2,8 roky eða 3,0 4runner vel ef ég væri að að skipta yfir í dísel, (er með 2,4 í bílnum hjá mér á 44'' með 5,29hlutföll, og er ég nokkuð sáttur með hana ef það vantar oft meira tog)
en eyðsla á 38'' dekjum í langakstri á malbiki er svona 10-12 á þessum hlutföllum,
vélin passar í mótorfestinarnar.

gangi þér vel með breytingarnar

Re: Hilux 2.4TDI 5.71 44" slæm uppskrift af fjallajeppa??

Posted: 26.apr 2011, 05:27
frá siggi64
Sælir, Já þetta er svipað hjá mér 2,4 td og kælir 5/71 og auka millikassi eyðsla á langkeyrslu er 11,5 á 38" mudder,aðeins meira 12-13 á 38" GH. Bíllin er 44" breyttur hef ekki prufað það en gæti trúað að hann yrði svolítið latur á því, en er ekki 38 bara yfirdrifið nóg að öllu jöfnu fyrir Hilux ?

kv Siggi

Re: Hilux 2.4TDI 5.71 44" slæm uppskrift af fjallajeppa??

Posted: 26.apr 2011, 06:10
frá Hfsd037
siggi64 wrote:Sælir, Já þetta er svipað hjá mér 2,4 td og kælir 5/71 og auka millikassi eyðsla á langkeyrslu er 11,5 á 38" mudder,aðeins meira 12-13 á 38" GH. Bíllin er 44" breyttur hef ekki prufað það en gæti trúað að hann yrði svolítið latur á því, en er ekki 38 bara yfirdrifið nóg að öllu jöfnu fyrir Hilux ?

kv Siggi



Ég er sammála þér með eyðslumuninn á 38" GH vs Mudder, ég finn mikin mun á þessum dekkjum
er með 5:29 í mínum 2.4 TDI 38" og er nokkuð sáttur bara, mætti stundum vera meira tog samt..

Re: Hilux 2.4TDI 5.71 44" slæm uppskrift af fjallajeppa??

Posted: 26.apr 2011, 08:21
frá jeepson
Hafið þið pælt í muninum á á mudder og ground hawk? Ég er með mudder að aftan undir pattanum mínum og GH að framan. Gh dekkin virðast vera um tommu hærri, en mudderinn virkar breyðari. Það virðist vera að GH dekkin standist hæðina betur. Það gæti útskýrt afhverju bílarnir eru að eyða örlítið meira á GH dekkjunum. Annars hef ég heyrt að þessar tvær dekkja tegundir séu mjög sambærilegar hvað drifgetu og annað varðar.

Re: Hilux 2.4TDI 5.71 44" slæm uppskrift af fjallajeppa??

Posted: 26.apr 2011, 13:09
frá Pajero1
siggi64 wrote:Sælir, Já þetta er svipað hjá mér 2,4 td og kælir 5/71 og auka millikassi eyðsla á langkeyrslu er 11,5 á 38" mudder,aðeins meira 12-13 á 38" GH. Bíllin er 44" breyttur hef ekki prufað það en gæti trúað að hann yrði svolítið latur á því, en er ekki 38 bara yfirdrifið nóg að öllu jöfnu fyrir Hilux ?

kv Siggi


prufaðu 44" undir Hilux um vetur eftir það viltu ekki sjá 38" :)

Endilega póstið þeir sem hafa reynslu af 2,4 td swappi og eða 2,4 á 44"

Re: Hilux 2.4TDI 5.71 44" slæm uppskrift af fjallajeppa??

Posted: 26.apr 2011, 18:03
frá himnariki
Ég setti 2,4 TDI í 4runnerinn minn fyrir rúmu ári. Eina ástæðan fyrir því var að lækka eldsneytiskostnað. Það er eiginlega allt vont við þetta nema eyðslan.

Ég fékk bíl sem ég gat rifið allt úr, það passar ekkert beint á milli. Mótorfestingar þarf að smíða, rafmagn þarf að græja, Það er allt "hinu" megin, vatn, púst, startari altenator er öfugt miðað við V6 En þetta er ekkert stórmál, með góðra vina hjálp var þessi aðgerð að rífa vél og skiptingu úr 4runner - rífa vél og drifrás úr Hilux og swappa tók eina langa helgi.

En ég tæki 3VZE framyfir 2LT any day. en eyðslan minnkaði um 50%

mbk, ÞA

Re: Hilux 2.4TDI 5.71 44" slæm uppskrift af fjallajeppa??

Posted: 27.apr 2011, 14:18
frá DABBI SIG
jeepson wrote:Hafið þið pælt í muninum á á mudder og ground hawk? Ég er með mudder að aftan undir pattanum mínum og GH að framan. Gh dekkin virðast vera um tommu hærri, en mudderinn virkar breyðari. Það virðist vera að GH dekkin standist hæðina betur. Það gæti útskýrt afhverju bílarnir eru að eyða örlítið meira á GH dekkjunum. Annars hef ég heyrt að þessar tvær dekkja tegundir séu mjög sambærilegar hvað drifgetu og annað varðar.



Samkvæmt mælingum sem voru gerðar á þessum dekkjum passar þetta ekki alveg. Mudderinn á skv því að vera hærri og breiðari, að vísu sáralítill munur. Skv. þessum mælingum er Mudder og GH:

tegund ... .......... stærð ... ummál ... hæð "... hæð cm. þyngd. mæld breidd."flot".flotstuðull
Mudder Radial... 38/15.5/15... 298,5... 37,4... 95,0... 38... 15,6... 1070... 1,87
Grond HawkR...... 38/15.5/15... 298.... 37,3... 94,9... 35... 15,4... 1053... 1,90

Svo getur vel verið að dekkin hafi breyst eitthvað örlítið síðan þessar mælingar voru gerðar en þetta á ég allaveg til í einhvejru skjali í tölvunni. Mér finnst mudderinn almennt betri sem snjódekk af þessum tveim. Leggjast vel og mjög gott grip ef dekkin eru míkróskorin.

Re: Hilux 2.4TDI 5.71 44" slæm uppskrift af fjallajeppa??

Posted: 27.apr 2011, 23:25
frá siggi64
Jú sjáðu til ég á gang af mudder og annann af GH og ef þau standa hlið við hlið þá er eins og einkvur sagði um 1" munur á hæð,mín skoðun er aftur sú eftir 4 ganga af mudder og tvo af GH að GH er mun betra dekk að keyra á rásfastara og mýkra ,bíllin er um tvö tonn hlaðin og eyðir aðeins meira á GH
Kv Siggi K