Síða 1 af 1
AMERTÖNG? EINHVER??
Posted: 22.apr 2011, 10:53
frá KÁRIMAGG
Sælir félgar mig bráðvantar ampertöng til að mæla og finna útleiðslu að láni í 1til 2 daga. E einhver á slíkan grip og vildi lána væri það gríðarlega vel þegið.
Kári 8987428
Re: AMERTÖNG? EINHVER??
Posted: 22.apr 2011, 11:56
frá Jónas
Ég á ampertöng sem þú getur fengið lánaða.
Jónas
849 3640
er í Rvk.
Re: AMERTÖNG? EINHVER??
Posted: 22.apr 2011, 14:30
frá Sævar Örn
Er þetta mikil útleiðsla? Flestir fjölsviðsmælar geta mælt útleiðslu upp að 10 amperum ef þú tengir hann í seríu við geymapólinn og tekur svo eitt og eitt öryggi úr í einu þar til streymið stoppar.
Re: AMERTÖNG? EINHVER??
Posted: 22.apr 2011, 21:59
frá Izan
Sæll
Rétt hjá Sævari, þú finnur aldrei útleiðsluna með ampertöng. Notaðu venjulegan AVO mæli með DC ampermælingu og gerðu ráð fyrir að hin ýmsu raftæki taki smávegis á meðan bíllinn er dauður. Útvarpið, klukkan, vélatölvan o.s.frv. þetta er allt saman vel mælanlegt og nauðsynlegt að gera ráð fyrir þessu.
Ætli samt að flest tilfelli þar sem er útleiðsla í 12V rafkerfi sem tæmir geyminn er það annaðhvort alternatorinn (díóðubrettið), geymirinn sjálfur eða skíturinn ofan á honum.
Kv Jón Garðar
Re: AMERTÖNG? EINHVER??
Posted: 22.apr 2011, 22:14
frá KÁRIMAGG
Fékk töngina lánaða mig grunaði hvar þetta væri og hafði rétt fyrir mér svo nú er það vandamál úr sögunni
Re: AMERTÖNG? EINHVER??
Posted: 22.apr 2011, 23:13
frá Polarbear
hvað var bilunin, hvernig mældirðu það út og hvernig lagaðiru það??
bara svona svo við hinir fáum að læra eitthvað af þér :)
Re: AMERTÖNG? EINHVER??
Posted: 23.apr 2011, 01:03
frá KÁRIMAGG
Setti töngina utanum jarðkapla við geymi og tók svo hvert relay fyrir sig þar til tölur á tönginni hrundu þar var bilunin fundin.