Síða 1 af 1
Demparar, hvert er hlutfall samsláttar og sundurslags?
Posted: 06.maí 2025, 16:56
frá BOI
Sælir
Hvert er hlutfall samsláttar og sundurslags?
Eg er með dempara sem eru 86sm langir í fullu útslagi en 49sm í samslagi.
Sirka 37sm munur. Er 15sm samslag of mikið?
sundurslag þá 22sm?
Re: Demparar, hvert er hlutfall samsláttar og sundurslags?
Posted: 07.maí 2025, 08:11
frá jongud
Ég held að það fari nú alveg eftir fjöðrunarkerfinu.
Dempararnir eiga að dempa útslagið sem fjöðrunin gefur. Sama hvernig lengd á sundur og samslagi er.
Þeir þurfa að vera nógu langir til að taka hvort tveggja með smá öryggismörkum. Þeir mega ekki berjast saman, og það eru fáir demparar sem mega vera notaðir til að takmarka sundurslag.
Re: Demparar, hvert er hlutfall samsláttar og sundurslags?
Posted: 07.maí 2025, 10:56
frá BOI
@jongud
Takk fyrir svarið.
Eftir umhugsun er líkasttil rétt að setja bílinn í fullt samslag og láta hann setjast á samsláttarpúða.
Festa þá dempara svo þeir eigi sirka 2sm eftir.
Er þetta ekki rökrétt?
Re: Demparar, hvert er hlutfall samsláttar og sundurslags?
Posted: 07.maí 2025, 13:08
frá jongud
BOI wrote:@jongud
Takk fyrir svarið.
Eftir umhugsun er líkasttil rétt að setja bílinn í fullt samslag og láta hann setjast á samsláttarpúða.
Festa þá dempara svo þeir eigi sirka 2sm eftir.
Er þetta ekki rökrétt?
Nokkuð rökrétt svo lengi sem samsláttarpúðinn er ekki þeim mun þykkari.