Dodge ram 1500 2006, 38” breyting

Fyrir allt sem fram fer í skúrnum eða eftir atvikum, úti á stétt.

Höfundur þráðar
g2024
Innlegg: 2
Skráður: 24.jan 2024, 18:32
Fullt nafn: Gabríel Ásgeir Ellenarson

Dodge ram 1500 2006, 38” breyting

Postfrá g2024 » 27.jan 2024, 14:13

Mig langar að 38” breyta ram 1500, hvað þarf ég að gera? Hef heyrt það sé erfiðara/flóknara en að segja



User avatar

Kiddi
Innlegg: 1160
Skráður: 02.feb 2010, 10:32
Fullt nafn: Kristinn Magnússon
Bíltegund: Wrangler 44"

Re: Dodge ram 1500 2006, 38” breyting

Postfrá Kiddi » 31.jan 2024, 17:40

Það á náttúrlega við flest að það er erfiðara að gera það en að segja það.
Þú kemst sennilega af með að klippa úr og gera lítið annað. Það er samt ólíklegt að þú komir 15" felgum undir útaf bremsunum þannig að ég myndi þá frekar skoða 39-40" dekk.
Ef þú getur skorið úr og soðið þá ætti þetta ekki að vera neitt stórmál.

User avatar

íbbi
Innlegg: 1453
Skráður: 02.feb 2012, 04:02
Fullt nafn: ívar markússon

Re: Dodge ram 1500 2006, 38” breyting

Postfrá íbbi » 01.feb 2024, 09:47

ég myndi gera ráð með að það þurfi að skera vel úr afturpartinum á frambrettunum, og yrði ekki hissa þótt það þyrfti að gera við hurðastafinn líka.
1500 bíllinn er á klöfum að framan þannig að maður færir hjólin ekki framar svo auðveldlega eins og á 2500/3500

ég myndi reikna með að þetta sé lítil vinna að aftan, upphækkun og hugsanlega smá skurður, mesta vinnan er í kring um svæðið sem ég nefni að ofan, það er búið að breyta þónokkrum 2500/3500 bílum, þannig að það ætti að vera hægt að finna menn sem hafa skorið úr þessum bílum upp á upplýsingar.
1996 Dodge Ram. 38" á breitingaskeiðinu
2004 Ford F150 .
1991. Toyota 4Runner 44" einnig á breytingaskeiðinu.


Til baka á “Breytingar, viðhald og viðgerðir”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 52 gestir