Síða 1 af 1

Hraðamælaskynjari dana 300

Posted: 24.maí 2023, 16:50
frá tommi3520
Daginn

Er að fara setja hraðamælaskynjara frá autometer á dana 300 millikassa. Kassanum var hent undir jeppa og hann notaður eitthvað og þetta hefur staðið svona opið eins og sést a myndinni. (Það fylgir pinninn með) á að setja einhverja feiti þarna eða taka í sundur og þrifa eða bara skrúfa þetta á. Ekki veit ég en spurning hvað þið segið.

Re: Hraðamælaskynjari dana 300

Posted: 24.maí 2023, 18:16
frá jongud
Það er hægt að losa skrúfuna sem er þarna til hliðar og losa hraðamæladrifið úr kassanum, en ég held að það sé óþarfa fyrirhöfn. Það ætti að vera nóg að þrífa þetta vel.