Volvo B20

Fyrir allt sem fram fer í skúrnum eða eftir atvikum, úti á stétt.

Höfundur þráðar
BiIng
Innlegg: 1
Skráður: 22.nóv 2022, 22:06
Fullt nafn: Birgir Þór Ingólfsson
Bíltegund: Sukka

Volvo B20

Postfrá BiIng » 22.nóv 2022, 22:13

Vinur minn er að vandræðast með Volvo B20 vél. Hún gengur fínan hægagang en nær ekki upp snúning eða afli.
Búið að skipta um kerti og þræði, kveikju, blöndung og bensíndælu. Nýlegt pústkerfi. Er einhver með uppástungu hvað gæti verið að?




aevara
Innlegg: 23
Skráður: 17.maí 2011, 08:36
Fullt nafn: Ævar Ágústsson

Re: Volvo B20

Postfrá aevara » 24.nóv 2022, 13:14

Í gamla daga þegar ég var að eiga við B20 vélar - passaði þessi lýsing nokkurn veginn við membruna í blöndungnum - eða gorminn / olíuþykktina sem er ofan á membrusettinu. Lítið gat á membru = virkaði illa. Man að þessi samsetning gat verið smá "trikky".


Til baka á “Breytingar, viðhald og viðgerðir”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 15 gestir