Síða 1 af 1

1kz-te vesen

Posted: 05.mar 2022, 23:13
frá draugsii
Sælir spjallverjar, nú á að fara að koma 1kz-te ofaní húddið á Hilux spurningin er hefur einhver fjarlægt immobiliserinn eða er það yfirleitt hægt á þessum vélum? þessi vél er úr 90 cruiser, eða á maður bara að finna gamaldags olíuverk á hana?
Kv Hilmar

Re: 1kz-te vesen

Posted: 06.mar 2022, 09:58
frá jongud
Mig minnir að það sé allt í tölvunni sem tengist þjófavörninni. Það þurfi að vera með rétt forritaðan lykil sem sendir boð gegnum svissin til að tölvan hleypi straum inn á mótorinn svo hann fari í gang.

Re: 1kz-te vesen

Posted: 06.mar 2022, 10:30
frá draugsii
já það gæti verið það er reyndar svona svartur kubbur merktur immobiliser á lúmminu bara spurning hvort það sé hægt að komast fram hjá þessu eða plata tölvuna einhvernvegin

Re: 1kz-te vesen

Posted: 06.mar 2022, 15:55
frá jongud
Rétti aðilinn til að leysa þetta held ég að væri Baldur Gíslason, hann rekur verslunina controls.is

Re: 1kz-te vesen

Posted: 06.mar 2022, 22:13
frá Sævar Örn
menn hafa notað oliuverk af 4runner gamla sem er þá vél sem heitir 1KZ-T, mekaniskt einsog í hilux og eins hafa einhverjir notað oliuverk úr pajero sem tiltölulega einfalt mál er að láta virka og auka kraft, ef þú ert að færa allt rafkerfi á milli til að láta tölvuoliuverkið virka þá ætti að vera nokkuð einfalt að láta kóðaðan lykil virka á þjófavörnina, það er oft öllu verra að tengja fram hjá því en ég er sammála seinasta ræðumanni að sá sem leiðbeinir þér örugglega með það er Baldur

Re: 1kz-te vesen

Posted: 22.nóv 2025, 21:44
frá axelsolva
Hvernig fór þetta hjá þér, ég er að byrja í svipuðum pakka og er að velta því fyrir mér hvort ég ætti að hafa svissinn og lykilinn úr partabílnum tengdan við immobilizerinn og fela hann bara bakvið mælaborðið, tengja svo ignition við svissinn sem er nú þegar í bílnum.

Sá það fyrir mér að ég þyrfti þá ekki að vera vesenast með tvo sitthvora bíllykla, immobilizerinn væri þá bara alltaf með “grænt ljós” frá lyklinum.