Síða 1 af 1

Land Cruiser 120

Posted: 12.jan 2021, 23:15
frá Emil Grettir/YD986
hvað hafa menn verið að gera til að hækka aðeins hljóðið í lc 120gx, hefur einhver hjérna inni prófað að taka hljóðkútin alveg af og setja minni hljóðkút í staðinn( held að þetta er kallað hot dog muffler í ameríku)

Re: Land Cruiser 120

Posted: 13.jan 2021, 14:19
frá jongud
Blessaður slepptu því. Njóttu þess bara að hafa aflið undir húddinu án þess að hafa jeppan fretandi einhverjum látum út um afturendann á meðan.
Það getur kannski virkað "sportlegt" að hafa eitthvað hærra hljóð þegar maður tekur af stað á ljósum, en það er þreytandi á langkeyrslu.

Re: Land Cruiser 120

Posted: 13.jan 2021, 16:47
frá Emil Grettir/YD986
ég tek þitt orð fyrir það og sleppi því