Síða 1 af 4
Einfari fær uppgerð - uppfært 7 sept 2022
Posted: 31.aug 2020, 10:43
frá Óskar - Einfari
Jæja, ég ætla að taka Hiluxinn í gegn í vetur. Númerin voru lögð inn nú fyrir stuttu og byrjað að rífa. Hann er búinn að standa sig vel og reynst ótrúlega traustur. En margt hefur legið of lengi á hakanum en það er fyrst og fremst rið sem er farið að segja doldið til sín í undirvagni og grind. Þar sem ég vill eiga þennan bíl eitthvað lengur var ákveðið að fara í uppgerð. Pallur og body fer af grindinni. Þar þarf að skipta um þverbita, sandblása og mála til að fyrirbyggja frekari riðskemmdir. Flest gúmmí og pakkdósir eru orðin þreytt. Einn dempari farinn að leka, einhverjar legur og krossar farið að heyrast í, spíssa mælast utan marka og svo eru allskonar fleiri hlutir sem hafa safnast upp sem þarf að fara í. Að öllum líkindum verður bílnum breytt fyrir 44" í leiðinni með smá bodyhækkun og hásingafærslu. Aukarafkerfi tekið í gegn og ætli maður fari ekki í úrhleypibúnað til að vera nýmóðins.
Grind og botn fá sennilega raptor húðun. Hvað body varðar hef ég doldið verið að velta fyrir mér rauðu tintable raptor. Svosem ekki ákveðið ennþá og nokkuð í það að það verði farið í málun.
Planið er að reyna að taka myndir af öllusaman eins og ég mögulega man. Ég mun setja það hérna inn en sennilega er ég duglegri við að uppfæra story á instagram:
https://www.instagram.com/oskar.andri/

- 116428747_10224001740820348_8315598653662158563_o.jpg (90.41 KiB) Viewed 49510 times

- 91894857_10222755779192086_5395695864104615936_o.jpg (150.12 KiB) Viewed 49510 times
Re: Einfari fær uppgerð
Posted: 31.aug 2020, 11:02
frá Óskar - Einfari
Fyrstu 3 kvöldin í að rífa

- Kominn inn og númerin komin í innlögn.
- 20200827_211629.jpg (3.54 MiB) Viewed 49506 times

- Pallurinn og pallhús komið af
- 20200827_222840.jpg (3.83 MiB) Viewed 49506 times

- Næst er það frammendin
- 20200827_223937.jpg (3.83 MiB) Viewed 49506 times

- Húdd, grind, stuðari og brettakantar farnir af
- 20200828_000310.jpg (3.83 MiB) Viewed 49506 times

- Næsta kvöld var frekar stutt en snorkel, bretti og hurðar komið af.
- 20200828_232237.jpg (4.02 MiB) Viewed 49506 times

- Maður reynir að halda smá skipulag þar sem bíllin á nú að fara saman aftur.
- 20200828_232303.jpg (3.62 MiB) Viewed 49506 times

- og svo var ágætis kvöld í gær. Mest allt komið innan úr bílnum fyrir utan mælaborð og loftklæðningu.
- 20200830_231657.jpg (3.78 MiB) Viewed 49506 times

- Búið að tína slatta úr vélarsalnum og tæma flesta vökva. Loftdælur, lofthreinari, vatnskassi, air-con kælir, olíukælir, geymir, aukarafkerfi o.fl komið úr
- 20200830_231720.jpg (4.31 MiB) Viewed 49506 times

- Slatti af dóti á leiðinni í geymslu. Fini dælan er búin að vera í notkun í 15-16 ár og búin að vera í húddinu á þessum bíl í 13 ár. Aldrei, ALDREI klikkað!
- 20200830_231731.jpg (4.19 MiB) Viewed 49506 times

- Gólfið bílastjóramegin. Þarna er ekkert komið í gegn ennþá en tilgangurinn er að koma í vegfyrir að það gerist. Báðir innri sílsarnir eru hinsvegar skemmdir... á eftir að skoða hveru mikið.
- 20200830_231806.jpg (4.35 MiB) Viewed 49506 times
Re: Einfari fær uppgerð
Posted: 31.aug 2020, 11:20
frá Járni
Spennandi, flott að byrja á þessu áður en allt er farið í skrúfuna!
Það verður gaman að fylgjast með
Re: Einfari fær uppgerð
Posted: 01.sep 2020, 11:49
frá Óskar - Einfari
Jæja það voru nú engin stór afrek í gærkvöldi. Ég var aðalega að ganga úr skugga um að allt væri aftengt milli grindar og body. Þetta er nokkuð tímafrekt, elta/aftengja allar víra, bremsulagnir, handbremsu, eldsneytisleiðslur, klára tæma allskonar vökva. Bodyið er núna laust, allir bodyboltar komnir úr þannig að næsta vinnukvöld verður að hífa bodyið af.

- búinn að hreinsa allt sem ég held að verði mögulega fyrir í vélarsalnum
- 20200831_234302.jpg (3.92 MiB) Viewed 49385 times

- Ekki mikið sem kom af bílnum þetta kvöld enda var þetta aðalega að eltast við víra og lagnir og losa allt vandlega án þess að skemma.
- 20200831_234311.jpg (4.3 MiB) Viewed 49385 times
Re: Einfari fær uppgerð
Posted: 01.sep 2020, 12:40
frá íbbi
Hörku gangur í þessi, gaman að fylgjast mep
Re: Einfari fær uppgerð
Posted: 02.sep 2020, 09:38
frá Óskar - Einfari
Re: Einfari fær uppgerð
Posted: 02.sep 2020, 10:01
frá Óskar - Einfari
Ég var eitthvað að fikta við að taka time lapse video. Það tókst ágætlega nema ég hefði kanski mátt hafa styttra á milli ramma. En þetta var aðalega til gamans gert :)
Ég næ ekki að láta þetta opnast sjálfkrafa í glugga þannig að þið verðið bara að elta linkinn
https://youtu.be/wms2E8Tu_VE
Re: Einfari fær uppgerð
Posted: 03.sep 2020, 06:27
frá Óskar - Einfari
Re: Einfari fær uppgerð
Posted: 03.sep 2020, 17:44
frá hobo
Glæsilegt, algjört dekur á lúxanum!
En svakalegt að sjá hvernig SV hornið fer með bíla :o/
Re: Einfari fær uppgerð
Posted: 03.sep 2020, 18:28
frá juddi
Gaman að sjá svona metnaðarfullar fyrirbyggjandi aðgerðir
Re: Einfari fær uppgerð
Posted: 04.sep 2020, 16:16
frá Óskar - Einfari
hobo wrote:Glæsilegt, algjört dekur á lúxanum!
En svakalegt að sjá hvernig SV hornið fer með bíla :o/
Takk :)
Já það er grátlegt hvernig bílar fara hérna SV horninu og mér skilst að bílafremleiðendur skilji ekki hvað við kaupum af varahlutum út af riðskemmdum. Þetta er orðið nokkuð algengt í Hilux, LandCruiser, Pathfinder, Navara, Pajero, Sorent o.fl o.fl. Breyttu bílarnir eru sérstaklega slæmir.
Ég hef séð göturnar hérna kryddaðar í 3-4 stiga hita. Af þessu má svosem líka læra að bílar sem eru að einhverju leyti notaðir hérna á suðurlandi verður að riðverja. Hiluxinn hefur aldrei verið riðvarinn, það voru stór mistök.
juddi wrote:Gaman að sjá svona metnaðarfullar fyrirbyggjandi aðgerðir
takk, já eins og ég segi. Þessi bíll hefur reynst vel og mig langar að eiga hann lengur. Vonandi tekst mér að bjarga honum og gera góðan bíl :)
Re: Einfari fær uppgerð
Posted: 07.sep 2020, 09:46
frá Óskar - Einfari
Re: Einfari fær uppgerð
Posted: 07.sep 2020, 21:41
frá BrynjarHróarsson
hvernig er úrklippan að framan, er hún farinn að ryðga og hvernig var gengið frá henni á sínum tíma ?
Re: Einfari fær uppgerð
Posted: 08.sep 2020, 12:15
frá Óskar - Einfari
BrynjarHróarsson wrote:hvernig er úrklippan að framan, er hún farinn að ryðga og hvernig var gengið frá henni á sínum tíma ?
Það var mjög vel gengið frá henni á sínum tíma og er nú ástæðan fyrir því að þessi bíll er ennþá eigulegur. Ekkert sprungið í suðum og bæturnar allar til staðar ennþá. Úrklippurnar eru bara í svipuðu ástandi og restin af bodyinu. Það sem er í hvalbak og innri brettum að aftan þarf að vinna upp allt aftur einfaldlega út af riði sem er þar í boddíinu. Það gerir svosem ekki til þar sem þetta verður allt hvort sem er skorið í burtu til að koma fyrir 44"
Re: Einfari fær uppgerð
Posted: 10.sep 2020, 01:38
frá grimur
Uppfari fær Eingerð!
Það er nú ekki seinna vænna að bjarga þessari grind, varla að sjá óryðgaðan blett. Skelfilegt hvernig þetta fer í þessu salti og umhleypingum á íslandi. Er þetta kannski frá vandræðaárunum þegar allar grindur nema Terracan voru framleiddar ónýtar? Hvað skyldi ný kosta frá Toyota?
Fallegur bíll og um að gera að taka í gegn áður en það er algert rugl að hugsa sér að kíkja á það. Ekki allir sem hafa fyrirhyggju á því.
Kv
Grímur
Re: Einfari fær uppgerð
Posted: 15.sep 2020, 23:50
frá TF3HTH
Sæll, ég sé að þú ert með Patrol afturhásingu. Má ég spyrja hvernig þú græjaðir handbremsu? Rakst nefnilega á eftirfarandi um daginn og fannst áhugavert:
https://www.patrol4x4.com/threads/gq-ha ... ff.346962/-haffi
Re: Einfari fær uppgerð
Posted: 16.sep 2020, 08:14
frá jongud
Re: Einfari fær uppgerð
Posted: 16.sep 2020, 10:35
frá Óskar - Einfari
Ég er búinn að vera með subaru bremsudælur undanfarin ár og ég þoli þær ekki. Uppgerðar svona dælur endast stutt, annaðhvort festast eða byrja að leka. Búið að kosta óþolandi marga diska og klossa sem eyðileggjast samhliða þeim. Handbremsan gerir ekkert nema komast í gegnum skoðun. Barkarnir eru eilífðarvesen og þarf að laga 1-2 á ári eða allavega fyrir skoðun.
Þannig að núna er búið að panta Tesla rafmagnsbremsu. EPB eða electric parking brake og er planið að setja svoleiðis í millikassan. Ég pantaði þetta um helgina og á von á bremsunum eftir 2-3 vikur.

- s-l1600 (1).jpg (219.83 KiB) Viewed 47903 times

- s-l1600.jpg (217.55 KiB) Viewed 47903 times
Re: Einfari fær uppgerð
Posted: 16.sep 2020, 13:08
frá jongud
Óskar - Einfari wrote:Ég er búinn að vera með subaru bremsudælur undanfarin ár og ég þoli þær ekki. Uppgerðar svona dælur endast stutt, annaðhvort festast eða byrja að leka. Búið að kosta óþolandi marga diska og klossa sem eyðileggjast samhliða þeim. Handbremsan gerir ekkert nema komast í gegnum skoðun. Barkarnir eru eilífðarvesen og þarf að laga 1-2 á ári eða allavega fyrir skoðun.
Þannig að núna er búið að panta Tesla rafmagnsbremsu. EPB eða electric parking brake og er planið að setja svoleiðis í millikassan. Ég pantaði þetta um helgina og á von á bremsunum eftir 2-3 vikur.
Hvernig er þessari bremsu stjórnað? Þarf ekki eitthvað sérstakt stýribox?
Re: Einfari fær uppgerð
Posted: 16.sep 2020, 13:34
frá Óskar - Einfari
jongud wrote:Óskar - Einfari wrote:Ég er búinn að vera með subaru bremsudælur undanfarin ár og ég þoli þær ekki. Uppgerðar svona dælur endast stutt, annaðhvort festast eða byrja að leka. Búið að kosta óþolandi marga diska og klossa sem eyðileggjast samhliða þeim. Handbremsan gerir ekkert nema komast í gegnum skoðun. Barkarnir eru eilífðarvesen og þarf að laga 1-2 á ári eða allavega fyrir skoðun.
Þannig að núna er búið að panta Tesla rafmagnsbremsu. EPB eða electric parking brake og er planið að setja svoleiðis í millikassan. Ég pantaði þetta um helgina og á von á bremsunum eftir 2-3 vikur.
Hvernig er þessari bremsu stjórnað? Þarf ekki eitthvað sérstakt stýribox?
Það er hægt að fá nokkrar útgáfur af stýriboxum frá Pantera Electronics. En þetta er nú bara 12v DC mótor þannig að ég ætla að skoða aðeins hvernig þetta virkar áður en ég panta stýringu. Ég veit að þetta hefur verið sett í með bara straum á mótorinn. Mótorinn þarf síðan ekki constant straum til að bremsan virki. Þegar bremsan er komin á þá má rjúfa straum í mótorinn.
Re: Einfari fær uppgerð
Posted: 16.sep 2020, 13:53
frá svarti sambo
Flott verkefni.
En þarftu einhverja sérstaka stýringu fyrir þessa handbremsu. Er ekki bara hægt að nota ljósarofann í handbremsunni sem stýristraum fyrir relay og svo er krafturinn tekinn beint frá geymir í gegnum relayið með öryggi.
Re: Einfari fær uppgerð
Posted: 16.sep 2020, 15:28
frá Óskar - Einfari
svarti sambo wrote:Flott verkefni.
En þarftu einhverja sérstaka stýringu fyrir þessa handbremsu. Er ekki bara hægt að nota ljósarofann í handbremsunni sem stýristraum fyrir relay og svo er krafturinn tekinn beint frá geymir í gegnum relayið með öryggi.
Ég hef í rauninu litlar áhyggjur af rafmagnsveseninu og held að það verði ekkert mál að finna út úr því, ég er mjög vanur rafmagni. Ég ætla allavega ekki að kaupa stýringu fyrir 250 USD þótt það sé örugglega þæginlegt að hafa PlugNPlay. Til að byrja með þarf ég að koma þessu fyrir... græja festingu á millikassa og disk. Það er fyrsta málið áður en ég pæli í nokkru öðru.
Re: Einfari fær uppgerð
Posted: 16.sep 2020, 16:27
frá Axel Jóhann
Þú getur líka notað bremsudælur úr t.d. Vw Passat þær eru bara með 2 víra plöggi. Það eina sem gæti þurft að útfæra er sjálfvirkt stopp þegar mótstaðan eykst, þaes þegar mótorinn er búinn að klemma klossana saman, gætir reyndar örugglega leyst það með tímastilltu relay sem rífur strauminn eftir X margar sekúndur. svo þarftu bara að umpóla mótorinn til að taka bremsuna af.
Re: Einfari fær uppgerð
Posted: 16.sep 2020, 17:32
frá Kiddi
Axel Jóhann wrote:Þú getur líka notað bremsudælur úr t.d. Vw Passat þær eru bara með 2 víra plöggi. Það eina sem gæti þurft að útfæra er sjálfvirkt stopp þegar mótstaðan eykst, þaes þegar mótorinn er búinn að klemma klossana saman, gætir reyndar örugglega leyst það með tímastilltu relay sem rífur strauminn eftir X margar sekúndur. svo þarftu bara að umpóla mótorinn til að taka bremsuna af.
Teslan er með sér dælu fyrir handbremsuna sem er mikið nettari í það að mixa á millikassann eins og Óskar ætlar að gera.
Ég er líka búinn að prófa svona Subaru mix á Patrol hásingu og get alveg tekið undir að það er mjöööög margt betra en svoleiðis handbremsa...
Re: Einfari fær uppgerð
Posted: 16.sep 2020, 18:52
frá Sævar Örn
Það þykir mér skrítið þetta með subaru handbremsuna, nú dugir hún vel til að læsa FRAMHJÓLUM á ferð á þeim bílum sem hún kemur, það þekki ég vel eigandi slíka bíla og hafandi prófað ýmislegt :)
En hvað um það, mér lýst vel á þetta með rafhandbremsuna, þar er ógnarkraftur og ekki víst að búnaðurinn verði til vandræða í frosti eins og oft vill verða með barkabremsur.
Varðandi stýringu þá segi ég einsog annar að það er auðvelt í VW Audi Skoda þar er bara tölva sem nemur ákveðinn amperfjölda og hættir þá að gefa á mótorinn, svo umpólar hún bara til að losa og þá er tímaliði, kannski 1 sek til að losa, þannig herðir handbremsan út í sig í hvert skipti sem hún er notuð.
Þessu verður áhugavert að fylgjast með hjá þér og flott að sjá vel hugsað um bílinn, jafnframt leitt að sjá hve illa hann hefur farið, mun verr en minn sem þó er 7 árum eldri.
Re: Einfari fær uppgerð
Posted: 17.sep 2020, 03:18
frá Óskar - Einfari
Sævar Örn wrote:Það þykir mér skrítið þetta með subaru handbremsuna, nú dugir hún vel til að læsa FRAMHJÓLUM á ferð á þeim bílum sem hún kemur, það þekki ég vel eigandi slíka bíla og hafandi prófað ýmislegt :)
Enda bíllin sem hún kemur í ekki nema tonn á meðan Hiluxinn er 2.2 tonn og á sirka 70% stærri dekkjum :)
Re: Einfari fær uppgerð
Posted: 18.sep 2020, 12:36
frá íbbi
Mætti èg nokkuð forvitnast um kostnaðinn við tesla bremsuna? Þetta er áhugavert
Re: Einfari fær uppgerð
Posted: 18.sep 2020, 13:56
frá Óskar - Einfari
íbbi wrote:Mætti èg nokkuð forvitnast um kostnaðinn við tesla bremsuna? Þetta er áhugavert
Par af notuðum svona dælum er að kosta í kringum 114 USD á Ebay. Það er slatti til af þessu þannig að mig grunar að þetta séu dælur sem er skilað inn til að fá "core charge" til baka. Þær eru síðan greynilega bara seldar sem notaðar. Heildarkostnaðurinn er enn sem komið er óskrifað blað.... svona eins og jeppar og jeppabreytingar eru yfirhöfuð :)
Re: Einfari fær uppgerð
Posted: 21.sep 2020, 22:12
frá íbbi
og ætlaru að setja þetta á skaptið? hvernig eru menn að útfæra það. bremsudiisk á flangs?
ég tróð demparafestingum fyrir handbremsubarkann hjá mér. og þarf einmitt að pæla í einhverju svona
Re: Einfari fær uppgerð
Posted: 22.sep 2020, 11:46
frá Óskar - Einfari
íbbi wrote:og ætlaru að setja þetta á skaptið? hvernig eru menn að útfæra það. bremsudiisk á flangs?
ég tróð demparafestingum fyrir handbremsubarkann hjá mér. og þarf einmitt að pæla í einhverju svona
Flestar útfærslur sem ég hef séð þá kemur bremsudeiskur aftan á flangsin á millikassanum. Það er náttúrulega stýring á samsetningnu á flöngsunum og ég myndi ekki vilja setja disk þar á milli nema þá að það yrði rennt fyrir stýringu í diskinn. Ég held að það sé bara auðveldara að setja diskin aftan á flangsinn og boltana þar í gegn. Diskar sem eru notaðir í þetta eru smíðaðir og virðast flestir vera 6-8mm þykkir og 200-250mm í þvermál.
Re: Einfari fær uppgerð
Posted: 24.sep 2020, 11:10
frá petrolhead
Það er talsvert verk sem þú átt fyrir höndum í grindinni, er ekki orðið eina leiðin að smíða nýja bita í hana mv hvað þetta er orðið músétið.
Verður fróðlegt að fylgjast með þessu hjá þér.
Re: Einfari fær uppgerð
Posted: 24.sep 2020, 22:32
frá íbbi
já mig hlakkar til að sjá hvernig þú útfærir þetta. og jafnvel (eða javel eins og steingrímur j segir) hnupla svo hugmyndini :D
svaka gangur í þessu hjá þér samt, ég vildi að ég hefði svona góða aðstöðu
Re: Einfari fær uppgerð
Posted: 01.okt 2020, 13:09
frá Óskar - Einfari
Jæja, kanski kominn tími á smá færslu. Það hafa svosem ekki stórir markverðir hlutir verið að gerast. Nokkur önnur verkefni hafa verið í gangi, sumt tengist þessu. Ég er kanski líka að reyna að drepa ykkur úr leiðindum með of mikið af færslum en hérna er smá samantekt á dundinu undanfarnar vikur.

- Það kom sending með einhverju smá góssi. Tesla bremsurnar og eitthvað smá af verkfærum.
- pa1.jpg (648.57 KiB) Viewed 46330 times

- Mér finnst þetta skondin hugmynd. Þetta er ekki alveg fyrst á dagskrá að láta þessar bremsur passa en mig hlakkar doldið til að sjá hvernig þetta kemur út.
- pa3.jpg (392.78 KiB) Viewed 46330 times

- litli yfirmaðurinn að kenna pabba sínum á þrístijafnara
- pa4.jpg (477.08 KiB) Viewed 46330 times

- Þetta er nú ekki á leiðinni í bílinn. En ég ákvað að smíða mér sandblásturstæki og varð mér út um þennan 11kg gaskút í verkefnið. Ákvað að deila því með ykkur þar sem þetta er allt hluti af stóru myndinni.
- s1.jpg (276.8 KiB) Viewed 46330 times

- Ég byrjaði á því að losa lokan af, fyllti hann af vatni og skildi hann eftir þannig þangað til ég fór næst að vinna í honum. Þá hreinsaði ég orginal festingar af og smíðað grindina. Fékk þessi hjól í Bausu og smíðaði öxla úr litlum rörbút og snitttein.
- s5.jpg (425.76 KiB) Viewed 46330 times

- Komið gat fyrir áfyllingu. Þarna langaði mig alveg að eiga plasmagræjur... en með slípirokk, þjölum og þolinmæði var komið gat sem passaði fyrir 2" rör.
- s7.jpg (384.13 KiB) Viewed 46330 times

- Kúturinn kominn saman svona í grófum dráttum. Næst var að finna loka, lagnir, fittings, rakaglas, þrístijafnara o.fl
- s9.jpg (234.64 KiB) Viewed 46330 times

- Klárt fyrir prufu. Ég notaði hefðbundnua 1/2" kúluloka þar sem loftið kemur inn. Síðan notaði ég orginal gatið þar sem upprunalegi lokinn var (kúturinn snýr semsagt á hvolfi) þar voru 3/4" gengjur þannig að þar er 3/4" renniloki sem virðist eiga að henta betur í að stýra magninu af sandinum. Þrístijafnari, rakaglas og byssan kemur af Ebay.
- s12.jpg (267.81 KiB) Viewed 46330 times

- Nokkuð sáttur við útkomuna. Ég fíniseraði smíðina aðeins, setti halla á handfangið og lokaði endum á profilnum. Næst er svo að splæsa kanski í smá lit á græjuna.
- s14.jpg (270.54 KiB) Viewed 46330 times

- Ég byrjaði með Garnet 20/40 frá Gastec, þeir voru með besta verðið. Ég hef fengið nokkrar tillögur með annarskonar sand til að minka rekstrarkostnað. Nú getur maður farið að gera tilraunir með svoleiðis. Ég náði rétt aðeins að prófa þetta í gærkvöldi og skemmst frá því að segja þá virkar þetta svakalega og fór framm úr því sem ég þorði að svona
- s15.jpg (336.59 KiB) Viewed 46330 times

- Næsta smíðaverkefni voru síðan pallar undir dekkin þannig að hægt var að færa grindina til. Hjólin keypti ég af Ebay en efnið var nú bara skorið úr einhverju sem var til hérna í sveitinni.
- p1.jpg (509.6 KiB) Viewed 46330 times

- Pallarnir að mestu klárir, smíðaðir úr 40x40x3 vinklum.
- p3.jpg (386.1 KiB) Viewed 46330 times

- Þetta var kanski óþarfi en voða fínt svona svart....
- p4.jpg (387.17 KiB) Viewed 46330 times

- Grindin komin á pallana. Þetta er engin léttavara að færa þetta til en mjög þæginlegt að geta fært og snúið grindinni ef ég þarf.
- p5.jpg (532.76 KiB) Viewed 46330 times

- Þá er það ljóti þverbitinn. Þarna er ég búinn að skera í burtu part sem Toyota kalla styrkingu. Þarna undir var svona hálf lokað hólf sem var bara fullt af sandi og drullu. Þannig að þetta er ekki allt saltinu að kenna, þessi lokuðu hólf eru til bölvunar!
- þ1.jpg (623.13 KiB) Viewed 46330 times

- sko... ég hefði eflaust getað stytt mér leið alveg helling með því að panta bara annan eins þverbita. En mig langaði aðeins að læra betur á cad forrit þannig að ég ákvað að nota tækifærið og teikna upp þverbitan og láta skera hann út fyrir mig. Kostaði nokkur auka kvöld en ég fékk reynsluna í staðinn.
- þ2.jpg (663.08 KiB) Viewed 46330 times

- Efnið komið, Héðinn í Járnbrennslunni sá um að skera þetta út fyrir mig úr 3mm efni og gaf mér nokkrar leiðbeiningar um hvað ég mætti gera betur næst í teikningunni.
- þ5.jpg (426.71 KiB) Viewed 46330 times

- Búið að punkta saman bútana og nýr þverbiti farinn að líkjast gamla bitanum
- þ9.jpg (478.32 KiB) Viewed 46330 times

- Búið að máta... helsti málin voru rétt en það þurfti aðeins að klappa þessu með slípirokk svo þetta myndi renna í rétta hæð upp á grindina.
- þ10.jpg (500.53 KiB) Viewed 46330 times

- Búið að sníða bitan réttan og sjóða. Þetta var staðan fyrir nokkru síðan. Ég beið aðeins með að festa bitan í því ég vildi geta sandblásið þann part af grindinni sem lokast af þegar þessi biti fer í. Þar sem sandblásturstækin eru núna tilbúin þá fer að koma að því að það gerist eitthvað meira í grindinni.
- þ11.jpg (403.1 KiB) Viewed 46330 times
Re: Einfari fær uppgerð
Posted: 01.okt 2020, 14:15
frá jongud
Notaðir þú þessa uppskrift af sandblástursgræjunni?
http://www.jeppaspjall.is/viewtopic.php?f=2&t=9362
Re: Einfari fær uppgerð
Posted: 01.okt 2020, 14:48
frá Óskar - Einfari
Þennan þráð hef ég reyndar ekki séð en þetta er sama prinsip. Ég notaði mikið leitarorðið "DIY Pressure pot sandblaster" Skoðaði mismunandi útfærslur, las mér aðeins til um prinsipin á bakvið sandblástur og skoðaði líka einhver youtube video.

- Hér er tekning af WWW sem er nánast eins og útfærslan sem ég er með
- 04d8ce9ff2e4d679b57538bdbd9b6df4.jpg (32.18 KiB) Viewed 46320 times
byssuna endaði ég með að kaupa á Ebay þar sem ég fann ekki svona "deadman" loka hérna. Flestir eru að selja könnur sem eru ekki hugsaðar fyrir pressure pot heldur siphon sem virkar aðeins öðruvísi og hægar.

- deadman valve.PNG (137.92 KiB) Viewed 46320 times
Re: Einfari fær uppgerð
Posted: 01.okt 2020, 17:43
frá Járni
Óskar - Einfari wrote:Ég er kanski líka að reyna að drepa ykkur úr leiðindum með of mikið af færslum en hérna er smá samantekt á dundinu undanfarnar vikur.
Þú þarft ekki að hafa áhyggjur af því, þrælfínt alveg! Einnig, mjög gott hjá þér að senda myndirnar beint inn á jeppaspjallið í stað þess að hlekkja á þær annarsstaðar. Það er alveg hræðilegt, því þau albúm eiga það til að hverfa!
Re: Einfari fær uppgerð
Posted: 01.okt 2020, 20:11
frá íbbi
blessaður, endilega dældu inn myndum og pælingum. við höfum allir gaman af því
svo er ég líka stopp þessi misserin og þá þurfa aðrir að halda spjallinu á lífi :D
Re: Einfari fær uppgerð
Posted: 01.okt 2020, 21:50
frá ellisnorra
Frábært að fá að fylgjast með. Gott að einhver nennir enn að setja yndisauka hér inn :)
Bíð ennþá spenntur eftir að frétta að einhver noti súrál í sandblástur :)
Re: Einfari fær uppgerð
Posted: 02.okt 2020, 15:27
frá hobo
Þetta er alveg geggjað, fagmennska út í eitt!
Re: Einfari fær uppgerð
Posted: 03.okt 2020, 06:04
frá grimur
Flottur biti.
Ertu með einhverja þumalputtareglu með breidd á raufum m.v. efnisþykkt, og sirka hvað höftin eru löng?
Ég gerði svipaða hönnun um daginn og var ekki alveg viss með það, höftin urðu helst til mikil uppá að beygja án vélar. Hafði raufarnar jafn breiðar og efnisþykkt, hefðu alveg mátt vera mjórri held ég.
Væri gaman að vita hvað virkaði og hvað ekki í þessu tilfelli.
Kv
Grímur