Síða 2 af 4
Re: Ram 3500 - Lúlli - prufutúr
Posted: 05.aug 2019, 12:14
frá dadikr
Re: Ram 3500 - Lúlli - búinn að prófa
Posted: 06.aug 2019, 14:58
frá Óskar - Einfari
dadikr wrote:Jæja. Búið að fara prufutúr. Ég er mjög sáttur. Vottar ekki fyrir hoppi eða jeppaveiki. Þrælgóður í stýri. Eyðslan minni en ég óttaðist.
20190713_145019.jpg
Snilld! þetta fer honum ótrúlega vel og þessir kantar að framan koma mjög vel út!
Re: Ram 3500 - Lúlli - búinn að prófa
Posted: 08.aug 2019, 19:05
frá dadikr
Óskar - Einfari wrote:dadikr wrote:Jæja. Búið að fara prufutúr. Ég er mjög sáttur. Vottar ekki fyrir hoppi eða jeppaveiki. Þrælgóður í stýri. Eyðslan minni en ég óttaðist.
20190713_145019.jpg
Snilld! þetta fer honum ótrúlega vel og þessir kantar að framan koma mjög vel út!
Já, þetta kemur bara vel út. Ég á aðeins eftir að ákveða hvernig ég sker hjólskálarnar að framan.
1100 km um verslunarmannahelgina. 600 á malbiki norður í Öxarfjörð með 16.5 á hundraði og 500 km til baka gegnum Öskju, þaðan í Nýjadal og suður með um 20 á hundraði.
Næst er 5.13 hlutföll og læsingar og klára frágang fyrir sprautun.
Re: Ram 3500 - Lúlli - prufutúr
Posted: 08.aug 2019, 19:09
frá dadikr
Ein mynd úr síðustu ferð
- received_380835862841091.jpeg (173.17 KiB) Viewed 21019 times
Re: Ram 3500 - Lúlli - prufutúr
Posted: 15.sep 2019, 19:25
frá Axel Jóhann
Það er nú mikill afgangur af plássi þarna á milli steinanna! :) Flottur bíll!
Re: Ram 3500 - Lúlli - prufutúr
Posted: 14.okt 2019, 11:36
frá dadikr
Ég er búinn að vera svakalega latur í sumar. Bara búinn að jeppast. Samt þokast þetta. Það eru komin drifhlutföll (5.13) og læsingar. Svo er ég aftur kominn í trebban. Fékk gamla brettakanta af ram sem ég nota í frágang á brettunum að framan.
- kantar1.jpg (1.79 MiB) Viewed 20355 times
Svona er þetta með neðsta hluta kantana steypta við brettið.
- kantar2.jpg (2.16 MiB) Viewed 20355 times
Re: Ram 3500 - Lúlli - brotið framdrif
Posted: 27.okt 2019, 16:59
frá dadikr
Jæja. Um leið og bíllinn sá krapa brotnuðu báðir krossarnir framöxlunum. Er ég fantur, óheppinn eða er þetta veikleiki?
- 20191027_163806.jpg (3.64 MiB) Viewed 20011 times
Re: Ram 3500 - Lúlli - brotið drif í fyrsta krapa :-(
Posted: 28.okt 2019, 01:09
frá íbbi
Þetta er vel þekkt í eldri ram með d44, hélt að d60 væri laus við þetta, eða er aam undir þessum?
Minn virðist hafa margt brotið þetta, veit að kaninn sýður bjargir utan á, ég ætla mér að reyna eh slíkt
Re: Ram 3500 - Lúlli - brotið drif í fyrsta krapa :-(
Posted: 28.okt 2019, 01:26
frá Kiddi
Ég fletti upp stærðinni á þeim og þeir virðast svipaðir og D60, örlítið styttri á samt eða 73.9 mm á móti 76.2 mm en sömu bjargir, 34.9 mm. Miðað við það hefði maður haldið að þetta myndi hanga ef krossinn er ekki eitthvað drasl. Hann virðist nú svosem heldur ekki glænýr...
Yukon eiga öxla með Spicer krossum, það er kannski bara málið, nema þú tímir að fara í RCV?
Re: Ram 3500 - Lúlli - brotið drif í fyrsta krapa :-(
Posted: 28.okt 2019, 05:17
frá grimur
Voru menn ekki að styrkja þetta í torfærunni með því að setja fóðringar með öxlunum að innanverðu, í rörin? Annars kasta öxlarnir sér út úr línu undir átaki og stúta krossum...
Kannski er ég bara að bulla, ég kann ekkert á Dana hásingar.
Kv
G
Re: Ram 3500 - Lúlli - brotið drif í fyrsta krapa :-(
Posted: 28.okt 2019, 08:23
frá Sævar Örn
Þeir hanga yfirleitt í lagi ef átakið er í beina stefnu, um leið og beygt er má varla koma við gjöfina þá hrökkva þeir sundur.
Ýmsar töfralausnir eru til en þær duga bara svo og svo lengi, um leið og beygt er fer 30-70% af snýningsvæginu úr átakslínu og fer því einfaldlega í að reyna að brjóta liðinn, svona ram finnur ekki mikið fyrir því að snúa hann sundur :)
Þetta hafa menn gert í aldanna rás með einhverjum árangri, þó ekki mælanlegum... En ég gerði þetta sjálfur á D44 með 46" dekk og tilfinningin var að þetta entist lengur, reglan hjá mér var þó að taka aldrei neitt á bílnum nema hjólin væru bein, og þá fór þetta að endast.
Það er áhugavert að googla muninn, og styrkleikaprófanir á
Hjöruliður (UJ/Universal joint)
Sexkúluliður(CVJ/Constant velocity joint)
Re: Ram 3500 - Lúlli - brotið drif í fyrsta krapa :-(
Posted: 28.okt 2019, 08:26
frá Sævar Örn
Við þetta má bæta að kaninn notar ekki krossa sem eru smyrjanlegir ef meiningin er að taka eitthvað á þeim, þeir vilja hafa krossinn gegnheilann.
Re: Ram 3500 - Lúlli - brotið drif í fyrsta krapa :-(
Posted: 28.okt 2019, 09:41
frá jongud
Sævar Örn wrote:Við þetta má bæta að kaninn notar ekki krossa sem eru smyrjanlegir ef meiningin er að taka eitthvað á þeim, þeir vilja hafa krossinn gegnheilann.
Ætti ekki að skipta höfuðmáli ef krossinn er smurður frá endunum, en ef koppurinn er í kverkinni þá er krossinn eitthvað veikari.
Re: Ram 3500 - Lúlli - brotið drif í fyrsta krapa :-(
Posted: 28.okt 2019, 12:33
frá dadikr
Kiddi wrote:Ég fletti upp stærðinni á þeim og þeir virðast svipaðir og D60, örlítið styttri á samt eða 73.9 mm á móti 76.2 mm en sömu bjargir, 34.9 mm. Miðað við það hefði maður haldið að þetta myndi hanga ef krossinn er ekki eitthvað drasl. Hann virðist nú svosem heldur ekki glænýr...
Yukon eiga öxla með Spicer krossum, það er kannski bara málið, nema þú tímir að fara í RCV?
Þetta eru örugglega upprunalegu krossarnir
Re: Ram 3500 - Lúlli - brotið drif í fyrsta krapa :-(
Posted: 28.okt 2019, 12:34
frá dadikr
Takk fyrir góð svör. Enn er líf í jeppaspjallinu.
Ég er mikið að velta fyrir mér að taka RCV þó það kosti hvítuna úr augunum. Líst illa á að þetta geti gerst aftur.
https://www.rcvperformance.com/ultimate ... oWnUbyJSDIDaði
Re: Ram 3500 - Lúlli - brotið drif í fyrsta krapa :-(
Posted: 29.okt 2019, 11:19
frá jongud
Re: Ram 3500 - Lúlli - brotið drif í fyrsta krapa :-(
Posted: 30.okt 2019, 06:29
frá Kiddi
Ég tel það mjög góðan díl að skipta á augnhvítu og RCV öxlum. Myndi ekki hika við það!
Re: Ram 3500 - Lúlli - brotið drif í fyrsta krapa :-(
Posted: 30.okt 2019, 17:24
frá dadikr
Kiddi wrote:Ég tel það mjög góðan díl að skipta á augnhvítu og RCV öxlum. Myndi ekki hika við það!
Frágengið
- man-black-eyes.jpeg (14.45 KiB) Viewed 19621 time
Re: Ram 3500 - Lúlli - rcv öxlar, olíupanna, spilbiti og vinna í stuðara
Posted: 15.des 2019, 17:32
frá dadikr
Jæja. Þetta mjakast. Búið að taka upp framhásingu: nýjar legur, spindlar og rcv öxlar, læsing og hlutföll.
- 20191215_152133.jpg (3.08 MiB) Viewed 19076 times
Spilbiti kominn. Ég ætla að breikka stuðarann. Er að pæla í hvernig ég geng frá þessu
- 20191215_152115.jpg (3.84 MiB) Viewed 19076 times
Búið að búa breikkuðu brettin fyrir sprautun.
- 20191215_152125.jpg (3.55 MiB) Viewed 19076 times
Olíupannan var öll tærð svo ég keypti nyja
- 20191215_152153.jpg (3.29 MiB) Viewed 19076 times
Re: Ram 3500 - Lúlli - bullbar
Posted: 22.des 2019, 14:49
frá dadikr
Smiði á bullbar langt komið. Ætla að vera með laust rör í sama sverleika fyrir númerið. Það verður á prófíltengi og tekið af þegar spilið fer á.
Hér er mockup
- 20191222_133913.jpg (3.71 MiB) Viewed 18795 times
Svona með spilinu
- 20191222_134128.jpg (3.34 MiB) Viewed 18795 times
- 20191222_134135.jpg (3.43 MiB) Viewed 18795 times
Re: Ram 3500 - Lúlli - bullbar
Posted: 23.des 2019, 10:51
frá dadikr
Smá endurhönnun í átt að gullinsniði
- 20191223_101728.jpg (4.22 MiB) Viewed 18704 times
Re: Ram 3500 - Lúlli - bullbar
Posted: 23.des 2019, 11:52
frá Járni
dadikr wrote:Smá endurhönnun í átt að gullinsniði
Þetta er alveg að hafast!
- sid.jpg (20.15 KiB) Viewed 18689 times
Hrikalega töff! =)
Re: Ram 3500 - Lúlli - bullbar
Posted: 23.des 2019, 15:51
frá dadikr
Járni wrote:dadikr wrote:Smá endurhönnun í átt að gullinsniði
Þetta er alveg að hafast!
sid.jpg
Hrikalega töff! =)
Takk fyrir það.
Já þetta er alveg að hafast. Það er orðinn svakalega sterkur svipur með honum og fyrirmyndinni :-D
Re: Ram 3500 - Lúlli - jólakveðja
Posted: 25.des 2019, 13:41
frá dadikr
Jólakveðjur til spjallverja
- 20191225_125932.jpg (4.69 MiB) Viewed 18510 times
Re: Ram 3500 - Lúlli - jólakveðja
Posted: 31.des 2019, 13:42
frá dadikr
Svona verður stuðarinn. Svo kemur plasthlífin ofaná og lokar bilinu upp að ljósunum.
- 20191230_150243.jpg (3.43 MiB) Viewed 18312 times
Re: Ram 3500 - Lúlli - stuð, stuð, stuðari
Posted: 02.jan 2020, 17:34
frá Startarinn
Töff breyting, ég er sérstaklega hrifinn af jólakransinum :)
Re: Ram 3500 - Lúlli - kastara kast
Posted: 05.jan 2020, 15:48
frá dadikr
Ég hef verið að dunda í ljósabúnaði. Best að ganga frá öllum festingum fyrir þau áður en stuðarinn fer í pólýhúðun.
Ég setti kastara þar sem þokuljósin voru. Ledbarið endaði innbyggt í kastaragrindina. Svo eru tveir kastarar sem lýsa til hliðanna.
- 20200105_154100.jpg (4.1 MiB) Viewed 18028 times
Hvað segja menn? Er þetta galin hugmynd?
- 20200105_154111.jpg (3.95 MiB) Viewed 18028 times
Re: Ram 3500 - Lúlli - kastara kast
Posted: 05.jan 2020, 16:49
frá jongud
dadikr wrote:Hvað segja menn? Er þetta galin hugmynd?
20200105_154111.jpg
Ég myndi hafa áhyggjur af að kastaragrindin fylltist af drullu að innan
Re: Ram 3500 - Lúlli - kastara kast
Posted: 05.jan 2020, 17:05
frá dadikr
jongud wrote:dadikr wrote:Hvað segja menn? Er þetta galin hugmynd?
20200105_154111.jpg
Ég myndi hafa áhyggjur af að kastaragrindin fylltist af drullu að innan
Góður punktur. Ég ætla að opna hana að neðan. Svo sjáum við til.
Re: Ram 3500 - Lúlli - máluð frambretti
Posted: 13.jan 2020, 08:38
frá dadikr
Re: Ram 3500 - Lúlli - máluð frambretti
Posted: 15.jan 2020, 15:35
frá dadikr
Smá svekk. Túrbínan dó hjá mér í gær. Legurnar handónýtar. Þetta er HE351cw. Hafa fleiri lent í því?
Re: Ram 3500 - Lúlli - turbó dó:-(
Posted: 26.jan 2020, 21:37
frá dadikr
Hraustlegt hljóð í Cummins án túrbínu
https://youtu.be/p9o4Oq81zzs
Re: Ram 3500 - Lúlli - nýr turbó
Posted: 26.jan 2020, 21:48
frá dadikr
Ný túrbína komin í. Tók upp þá gömlu með þessu kitti:
http://www.ebay.com/itm/302957211622Virkar vel.
Re: Ram 3500 - Lúlli - nýr turbó
Posted: 01.feb 2020, 12:39
frá dadikr
Hver vill lítið notaðan kjarna úr túrbínu?
- 20200201_095656.jpg (2.58 MiB) Viewed 16970 times
Re: Ram 3500 - Lúlli - framendi tilbúinn
Posted: 16.feb 2020, 16:11
frá dadikr
Jæja. Þá er framendinn loksins búinn. Stuðari, kastaragrind, stuðarahlíf og innri bretti. Hlífina sauð ég saman úr tveimur.
- 20200216_160313.jpg (2.57 MiB) Viewed 16526 times
- 20200216_160305.jpg (2.89 MiB) Viewed 16526 times
https://youtu.be/5gUVEusQtfE
Re: Ram 3500 - Lúlli - fyrir og eftir
Posted: 16.feb 2020, 16:43
frá dadikr
- 20190223_105017.jpg (3.41 MiB) Viewed 16518 times
- 20200216_160313.jpg (2.57 MiB) Viewed 16518 times
Re: Ram 3500 - Lúlli - framendi tilbúinn
Posted: 16.feb 2020, 22:27
frá jeepcj7
Alltaf vígalegri að verða.
Re: Ram 3500 - Lúlli - framendi tilbúinn
Posted: 17.feb 2020, 21:14
frá ellisnorra
Mjög skemmtilegt að fygljast með, þó ég kommenti ekki alltaf, endilega haltu okkur upplýstum áfram um ævintýri Lúlla :)
Re: Ram 3500 - Lúlli - meira bras
Posted: 29.feb 2020, 16:58
frá dadikr
Jæja. Nú er næstum allt komið, ljós tengd, deep pan á sjálfskiptinguna - en... Þegar ég braut framöxlana braut ég líka tennur af kambinum :-(
- 20200229_114651.jpg (3.13 MiB) Viewed 16136 times
Kannski er ástæða fyrir því að menn nota ekki AAM 9,25?
Re: Ram 3500 - Lúlli - meira bras
Posted: 29.feb 2020, 21:21
frá Járni
:-(