aukatankasmíði

Fyrir allt sem fram fer í skúrnum eða eftir atvikum, úti á stétt.
User avatar

Höfundur þráðar
íbbi
Innlegg: 1452
Skráður: 02.feb 2012, 04:02
Fullt nafn: ívar markússon

aukatankasmíði

Postfrá íbbi » 22.des 2017, 17:51

ég hef i hyggju að smíða mér aukatank við tækifæri.

ætla koma honum fyrir þar sem núna er varadekk, a milli grindabitanna aftan við hásingu,

hvernig dælusystem eru menn að nota til að dæla á milli tanka? hvernig er með mæla?
hvað er besta leiðin varðandi áfyllingu?


1996 Dodge Ram. 38" á breitingaskeiðinu
2004 Ford F150 .
1991. Toyota 4Runner 44" einnig á breytingaskeiðinu.

User avatar

jongud
Innlegg: 2623
Skráður: 29.mar 2012, 08:39
Fullt nafn: Jón Guðmundur Guðmundsson
Bíltegund: Toyota Tacoma

Re: aukatankasmíði

Postfrá jongud » 23.des 2017, 10:50

íbbi wrote:ég hef i hyggju að smíða mér aukatank við tækifæri.

ætla koma honum fyrir þar sem núna er varadekk, a milli grindabitanna aftan við hásingu,

hvernig dælusystem eru menn að nota til að dæla á milli tanka? hvernig er með mæla?
hvað er besta leiðin varðandi áfyllingu?


Ég hef verið skammaður fyrir að hafa bensínbrúsa aftarlega í skúffunni á pickup. Var beinlínis sagt að allur þungi ætti að vera framan við hásingu.
Ég færði brúsana fremst í skúffuna og þá var jeppinn ekki að setjast jafn oft á rassgatið.
Hins vegar er ekki oft um annað pláss fyrir aukatanka að ræða.

Fyrir nokkrum árum voru Subaru bensíndælur vinsælar til að dæla á milli tanka.
Image
Og þær eru enn fáanlegar: http://www.electricfuelpumps.com/make/Subaru.html
En það er hægt að fá helling af öðrum dælum. Það er líka hægt að fá skipti sem svissar bæði túr og retúr á tankalögnunum, og þá þarf bara eina dælu framanvið skiptinn sem dælir inn á vélina.
Hérna er einn frá Ford;
Image
Mæla er hægt að fá í öllum stærðum og gerðum, oft er hægt að fá sett og þá er stillanlegt flotholt með;
Image
Áfylling á aukatank fer svolítið eftir því hvernig jeppinn er. Það er vinsælt að smíða -Y- sem kemur í staðin fyrir upprunalega áfyllingarstútinn þannig að hægt sé að dæla á báða tankana gegnum sama stútin. Stundum er hægt að beina dælustútnum ofan í hvorn tankinn sem maður vill.
Svona eins og hérna;
Image
Annað sem er vinsælt er að kaupa er áfyllingarstútur fyrir bátadekk, og setja hann á þægilegan stað.
Image

User avatar

Höfundur þráðar
íbbi
Innlegg: 1452
Skráður: 02.feb 2012, 04:02
Fullt nafn: ívar markússon

Re: aukatankasmíði

Postfrá íbbi » 23.des 2017, 17:39

takk fyrir þetta úrvals svar.

ég held að það sé ekki margt í boði hvað staðsetninguna varðar, original tankurinn er framan við afturhásinguna út i vinstri hliðini, en pústið hinumeginn þannig að það þyrfti að fara í einhverjar æfingar með pústið ef tankurinn ætti að vera þar.

að einhverju leyti héldist þyngdardreifinin þar sem að það var 32" dekk á stálfelgu þarna fyrir
1996 Dodge Ram. 38" á breitingaskeiðinu
2004 Ford F150 .
1991. Toyota 4Runner 44" einnig á breytingaskeiðinu.


Til baka á “Breytingar, viðhald og viðgerðir”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 40 gestir