Síða 1 af 1
Turbina í Hilux.?
Posted: 13.feb 2011, 02:09
frá Kölski
Er með Toyota Hilux extra-cab 2,4 turbo disel. Langar í smá meira power en nenni eiginlega ekki að standa í vélarskiptum. Var að pæla hvaða túrbína er í þessu orginal og hvort það væri eitthvað vit í því að skella einhverju betra á þetta. T25 eða T5 eða eitthvað. Er ég að tala út í bláinn eða er eitthvað vit í þessu. (Er með intercooler og 2,5" púst.)
Re: Turbina í Hilux.?
Posted: 15.feb 2011, 11:13
frá LFS
sæll eg á til original turbinu handa þer !
Re: Turbina í Hilux.?
Posted: 15.feb 2011, 21:15
frá Refur
Original túrbínan heitir næstum örugglega Toyota CT20.
Það er til aragrúi af túrbínum úti í hinum stóra heimi, nöfnin á túrbínum segja varla hálfa söguna, t.d vantaði mig túrbínu sem heitir CT 12-B í toyota og ætlaði að vera sniðugur og finna bara bínu á ebay, það var ekki eins einfalt og ég hélt, flestar voru ætlaðar fyrir celicu og einhvern Hiace með 4,1 bensín(held ég)vél.
Annars myndi ég ráðleggja þér að tala við hann Ísleif sem var einu sinni með fyrirtæki sem hét túrbó ehf, hann vinnur hjá Stillingu núna. Ef hann getur ekki frætt þig eitthvað um þetta þá er ekkert um að fræðast :)
Re: Turbina í Hilux.?
Posted: 15.feb 2011, 22:08
frá ellisnorra
Ef þú ferð útí það þá væri gaman að fá að heyra hvað Ísleifur sagði um þetta mál :)
Re: Turbina í Hilux.?
Posted: 16.feb 2011, 22:10
frá Kölski
Ætla setja mig í samband við hann. Var bent á að skoða turbinu úr 3.0 120cruiser. Þyrfti mögulega að skoða eitthvað stéttina jafnvel að skipta um pústgrein en ætla skoða þetta og læt vita. Annars eru allar ábendingar vel þegnar.
Re: Turbina í Hilux.?
Posted: 16.feb 2011, 22:26
frá JonHrafn
Keyptum túrbínu af ebay frá kína í 3.0 4runner vélina, 52þús komið inn á gólf til mín á 7 dögum. Búin að rúlla tæpa 2þús km og virkar ennþá, verður fróðlegt að sjá hvernig hún endist. Minnir að hún heiti CT 12 B
Re: Turbina í Hilux.?
Posted: 16.feb 2011, 22:34
frá ellisnorra
Hvenær byrjar sú að blása og hvernig valdiru hana?
Re: Turbina í Hilux.?
Posted: 16.feb 2011, 22:44
frá JonHrafn
Sýnist þetta vera samskonar , frá sama seljanda.
http://cgi.ebay.com/ebaymotors/ws/eBayI ... OTORS:1123Fatta ekki alveg hvað þú meinar með hvenær hún byrjar að blása, en wastegatið virðist vera stillt á 14psi.
Re: Turbina í Hilux.?
Posted: 16.feb 2011, 22:47
frá LFS
Refur wrote:Original túrbínan heitir næstum örugglega Toyota CT20.
Það er til aragrúi af túrbínum úti í hinum stóra heimi, nöfnin á túrbínum segja varla hálfa söguna, t.d vantaði mig túrbínu sem heitir CT 12-B í toyota og ætlaði að vera sniðugur og finna bara bínu á ebay, það var ekki eins einfalt og ég hélt, flestar voru ætlaðar fyrir celicu og einhvern Hiace með 4,1 bensín(held ég)vél.
Annars myndi ég ráðleggja þér að tala við hann Ísleif sem var einu sinni með fyrirtæki sem hét túrbó ehf, hann vinnur hjá Stillingu núna. Ef hann getur ekki frætt þig eitthvað um þetta þá er ekkert um að fræðast :)
já passar þettað er toyota ct 20
Re: Turbina í Hilux.?
Posted: 16.feb 2011, 22:47
frá JonHrafn
Gaurinn er með hellings úrval.
http://stores.ebay.com/High-Performance-TurbosEn, þetta dót frá kína getur verið svakalega misjafnt, rennismíðin er nú ekki mikið fyrir augað og wastegate slangan var úr blá og hörð og brotnaði bara þegar við vorum að tengja boost mælinn inn á , skiptum henni bara út.
En ef þetta dugir 30-40þús km þá er þetta búið að borga sig meðan ný túrbína í Toyota kostar 360.000
Re: Turbina í Hilux.?
Posted: 16.feb 2011, 23:00
frá Refur
Það passar Jón Hrafn, CT 12 B, ég var einmitt að vandræðast með svona túrbínu, fékk hana að lokum í gegnum Ísleif, þorði ekki að taka Kína túrbínu, tímdi ekki að borga fleiri hundruð og fimmtíuþúsund í umboðinu fyrir nýja, bínan sem hrundi hjá mér var hinsvegar búin að rúlla ca 1200km þegar hún fór gjörsamlega í drasl eftir "upptekt" hjá Framtaki Blossa fyrir meiri en helmingi hærri upphæð en þú borgaðir fyrir Kínabínuna, þannig að það hafa s.s. verið 4x betri kaup í Kínabínunni heldur en upptekt hjá F.B :)
Og auðvitað vildu þeir ekki bæta neitt en það tók sorglega langann að fá það á hreint, svosem ekkert út á einstaka starfsmenn þar að setja. Mér finnst eiginlega rétt að koma þessu á framfæri svona í þessari umræðu.
En í sambandi við að velja réttu bínuna, þá eru tvö 5 stafa númer minnir mig (t.d 35086-26877) einhversstaðar á bínunni, ég bara hreinlega man ekki nr-ið af bínunni sem ég fékk á endanum (fyrir 3,0TD úr 4runner), en það má sjálfsagt grafa það upp.
Hún kemur svosem ekkert sérstaklega snemma inn í 3ja ltr vélinni, og það er óvíst að hún geri eitthvað mikið meira fyrir 2,4 vélina. Hinsvegar var algengt að menn settu túrbínur frá Garrett á Hilux ´89+ sem komu snemma inn. Ég bendi enn og aftur á hann Ísleif í sambandi við það.