Síða 1 af 1

Brotinn skiptigaffall?

Posted: 17.mar 2017, 21:17
frá JónP
Sælir félagar

Varð frá að hverfa í jeppaferð í dag. Allt í einu búinn að tapa kúplingunni. Allur vökvi farinn af forðabúrinu fyrir kúplingsdæluna (clutch master cylinder). Pinninn sem kúplingsþrællinn ýtir á skiptigaffalinn hékk laus og lafði í hosunni. Færslan á gafflinum alveg frí og hægt að færa hann til og frá með höndunum. Líklega brotinn skiptigaffallinn inni í kúplingshúsinu held ég. Ég þurfti að starta í gír eftir þetta og reka í gírana og keyra heim kúplingslaus niður af fjalli. Smá kúplingsvökvasmit þar sem kúplingspedalinn ýtir á kúplingsdæluna. Búin að vera að taka neðarlega þannig að það hlaut að koma að þessu.
Þetta er MMC L200 árg 1997 með 2,5 td vél. 38" bíll.

Er búinn að taka saman líklega pöntun vegna þessa á Millneroffroad sjá mynd:

Image

En það sem mig vantar er skiptigaffallinn sjálfur þá.... Hvað kallast hann á ensku og getur einhver bent mér á svona til sölu á erlendum vefsíðum?

Kveðja
Jón

Re: Brotinn skiptigaffall?

Posted: 17.mar 2017, 21:25
frá svarti sambo

Re: Brotinn skiptigaffall?

Posted: 17.mar 2017, 21:26
frá JónP
Þú ert nokkuð seigur svarti sambo. Gat verið að þessir skáeygðu ættu þetta. Takk fyrir ábendinguna !

Re: Brotinn skiptigaffall?

Posted: 17.mar 2017, 21:49
frá JónP
Svo náttúrulega datt ég inn á parts diagram af kúplingunni og fleiru hér: http://autopartmaster.com/en/?action=ca ... pic=146418

Þarna kemur þetta allt fram.

Re: Brotinn skiptigaffall?

Posted: 17.mar 2017, 22:38
frá Lindemann
Sæll vinur, það getur verið líka að kúplingslegan sé hrunin og kúplingsarmurinn nái þá ekki að ýta á neitt.

Re: Brotinn skiptigaffall?

Posted: 17.mar 2017, 23:04
frá JónP
Sæll vinur. Já það getur auðvitað líka verið. Það er best að panta bara nógu mikið í þetta. Betra að eiga en vanta í þessum bransa

Re: Brotinn skiptigaffall?

Posted: 18.mar 2017, 09:28
frá jongud
JónP wrote:Sæll vinur. Já það getur auðvitað líka verið. Það er best að panta bara nógu mikið í þetta. Betra að eiga en vanta í þessum bransa


Um að gera, sérstaklega þar sem Milner off road er með þetta á svona góðu verði.