Síða 1 af 1

Ford f 150 Slípirokkinn á hann eða ekki???

Posted: 06.mar 2017, 16:21
frá Bubbi byggir
Ford 150.jpg
Ford 150.jpg (112.68 KiB) Viewed 5278 times


Sælir strákar.
Myndin hér að ofan er af allveg eins bíl og ég er kominn á, (en þessi mynd er fengin af netinu) Er ekki hægt að skera hann bara fyrir 38" og smella undir? Þarf nokkuð að vera standa í því að lyfta þessu ferlíki??
Það virðist vera pláss en ég veit ekki hvort þetta virkar svona.

Re: Ford f 150 Slípirokkinn á hann eða ekki???

Posted: 06.mar 2017, 16:37
frá juddi
Bara prufa lyfta ef það gengur ekki bróðir minn setti td original econoline á 37" í sumar

Re: Ford f 150 Slípirokkinn á hann eða ekki???

Posted: 06.mar 2017, 17:07
frá Bubbi byggir
Ég var að vona að það þyrfti ekki lift á hann til að þetta gengi en veit ekki hvort það er hægt. Er ekki minna vesen svoleiðis í breitingaskoðun á eftir??

Re: Ford f 150 Slípirokkinn á hann eða ekki???

Posted: 06.mar 2017, 19:33
frá biturk
Ekkert vesen meðann það þarf ekkinað sjóða í stýrisgang....þá þarf að lýsa suðurnar og maður með suðumenntun að skrifa undir

Re: Ford f 150 Slípirokkinn á hann eða ekki???

Posted: 06.mar 2017, 21:35
frá sukkaturbo
Sæll frændi hvernig leystist vesenið með gangtruflanirnar hvað var að hrjá Fordinn.

Re: Ford f 150 Slípirokkinn á hann eða ekki???

Posted: 06.mar 2017, 21:57
frá íbbi
Þegar þið segið maður með suðupróf, meiniði þá sveinspróf í málmsuðu eða dugir vélvirki/stálsmiður

Re: Ford f 150 Slípirokkinn á hann eða ekki???

Posted: 06.mar 2017, 22:05
frá Bubbi byggir
Sæll frændi. Það á sér engar eðlilegar skýringar enþá, skipti um kerti, ekki nóg, fór í gegnum öndun frá tanka, hún í lagi, bensín síja er á leiðinni núna. Ég fór suður á honum um daginn rétt áður en ég kom í bröttubrekku byrjaðði hann að truntast sem aldrei fyrr svo ég ákvað að standa hann allveg upp bröttubrekku sem ég gerði, sá fékk að snúast. Þegar niður kom aftur var bíllinn í fínu lagi og ekkert trunt, og svoleiðis var hann alla ferðina fínn og flottur en er byrjaður aftur núna, svo eins og ég sagði það er síja næst.
Eru ekki einhverjir spíssar í þessu dóti? við innspítingu?? er eitthvað svoleiðis að angra hann???

Re: Ford f 150 Slípirokkinn á hann eða ekki???

Posted: 06.mar 2017, 22:06
frá svarti sambo
íbbi wrote:Þegar þið segið maður með suðupróf, meiniði þá sveinspróf í málmsuðu eða dugir vélvirki/stálsmiður


Nei, Þá er átt við suðuréttindamann, eins og þarf t.d. í suður á hitaveiturörum o.s.fr.

Þessi réttindi voru gefin út af iðntæknistofnun og flokkunarfélögunum, eins og Det norske Veritas.

Re: Ford f 150 Slípirokkinn á hann eða ekki???

Posted: 06.mar 2017, 22:15
frá Bubbi byggir
Íbbi þegar talað eru um vottaða suðumenn hafa þeir gengið í gegnum próf hjá iðntæknistofnun í ákveðnum suðugerðum, standist þú það próf máttu sjóða suður sem þarf að votta í þeirri suðuaðferð sem þú tókst próf í. Mig minnir að vottunin gildi í 2 ár þá þarf endurmentun, var allavega svoleiðis þegar ég var að standa í þessu á sínum tíma, allt útrunnið núna :(

Re: Ford f 150 Slípirokkinn á hann eða ekki???

Posted: 07.mar 2017, 00:10
frá tryggviram
Ég á upphækunar kit í f150, þú mátt líka koma og skoða bílinn hjá mér hann er 97 árg. hann var á 41" dekkum og er á akranesi

Re: Ford f 150 Slípirokkinn á hann eða ekki???

Posted: 07.mar 2017, 00:26
frá sukkaturbo
Jamm frændi gæti verið súrefnisskynjarinn eða EGR draslið.Svo við breitingu í 38 þá vantar hlutföll og kælingu á skiptinguna kanta og smá lyft og svo skera aðeins

Re: Ford f 150 Slípirokkinn á hann eða ekki???

Posted: 07.mar 2017, 01:54
frá svarti sambo
Svo er í þeim einhver prentplata í einhverju álboxi undir bíl. kann ekki alveg nógu vel að útskýra það. Þetta er að tærast og það lýsir sér í gangtruflunum til að byrja með og síðan verður hann alveg stopp. Minnir að þetta sé fyrir bensíndæluna. Kannski það sé einhver hér á spjallinu sem veit betur um þetta.

Re: Ford f 150 Slípirokkinn á hann eða ekki???

Posted: 07.mar 2017, 12:12
frá juddi
Passar stýringin fyrir bensín dæluna er undir pallinum allavega á nýrri bílnum og hefur verið til vandræða vegna tæringu

Re: Ford f 150 Slípirokkinn á hann eða ekki???

Posted: 07.mar 2017, 12:31
frá Bubbi byggir
Ætli það sé þá ekki best að leggjast undir gamla og skoða þetta. Bensíndælan er í grindinni undir pallinum á þessum þannig að stýringinn hlítur að vera þarna líka.

Re: Ford f 150 Slípirokkinn á hann eða ekki???

Posted: 07.mar 2017, 12:41
frá Bubbi byggir
Frændi (sukkaturbo) talaði um að það þyrfti önnur hlutföll við stækkun í 38" ef vel ætti að vera, Á einhver her svoleiðis fyrir mig???? Verður maður ekki að byrja að sanka að sér því sem við á að éta.

Re: Ford f 150 Slípirokkinn á hann eða ekki???

Posted: 07.mar 2017, 12:55
frá Bubbi byggir
Þegar ég sá kommentið hjá mér um bensíndæluna ætlaði ég að skrifa bensínsía hún er undir pallinum og þar er eitthvað gismo við hana, gæti verið stýringin?

Re: Ford f 150 Slípirokkinn á hann eða ekki???

Posted: 07.mar 2017, 16:06
frá Bubbi byggir
Kominn með auka kælir fyrir skiptingu :)

Re: Ford f 150 Slípirokkinn á hann eða ekki???

Posted: 09.mar 2017, 17:56
frá sukkaturbo
settu frekar 38 undir bronco ég á handa þer dekk og flegur tek upp í 35 og felgur undir sukkuna og bara 33 undir ford

Re: Ford f 150 Slípirokkinn á hann eða ekki???

Posted: 10.mar 2017, 15:30
frá Bubbi byggir
Heyrðu frændi, ég seldi Bronco á 35 tommuni, konan gaf mér 150 fordin í sárabætur þegar ég var búinn að grenja í viku.