Suzuki Grand Vitar 2005

Fyrir allt sem fram fer í skúrnum eða eftir atvikum, úti á stétt.

Höfundur þráðar
jakinn
Innlegg: 6
Skráður: 01.feb 2010, 00:31
Fullt nafn: Hjörtur Sævar Steinason.
Staðsetning: Reykjavík
Hafa samband:

Suzuki Grand Vitar 2005

Postfrá jakinn » 13.jan 2017, 22:25

Góðan daginn, er að spökulera maður má nú spökulera....
Er með Súkku sem ég er að hugsa um að setja á 35" dekk. Þarf ég að setja önnur hlutföll og eins er ég að spá í læsingar. Á einhver til það sem mig vantar eða getur bent mér á hvar best er að kaupa það. Jafnvel vantar mig 10" breiðar álfelgur og dekk. Þarf ég ekki burðarminstu dekkin, dekk sem eru lunga mjúk og fletjast út um allt.
Kveðja Hjörtur og JAKINN]Image
Viðhengi
WP_20160219_19_22_29_Pro.jpg
WP_20160219_19_22_29_Pro.jpg (4.88 MiB) Viewed 2595 times
WP_20160219_19_20_28_Pro.jpg
WP_20160219_19_20_28_Pro.jpg (4.19 MiB) Viewed 2595 times


Kveðja Hjörtur og JAKINN.is


kaos
Innlegg: 125
Skráður: 08.okt 2014, 22:52
Fullt nafn: Kári Össurarson

Re: Suzuki Grand Vitar 2005

Postfrá kaos » 15.jan 2017, 12:04

Gaman að þessu. Nokkrir punktar út frá minni reynslu:

1. Framdrifin virðast vera veikasti punkturinn í þessum bílum (a.m.k. mínum, en hann er reyndar '99 módel). Ég tel mig samt vera búinn að styrkja það nægilega núna, þó það vanti meiri reynslu á það. Ég fékk stál drifhús úr yngri árgerð (þinn gæti verið fæddur með svoleiðis). Festingarnar á stálhúsinu eru pínulítið öðruvísi en á álhúsinu, svo það þarf að fá þær með eða smíða nýjar, og þurfa líka að vera traustar; það eru töluverð átök þarna. Þá eru samt eftir veikbyggðar "driflokur" innbyggðar í drifið. Til að útrýma þeim fékk ég "innmat" (sjálft mismunadrifið) úr Vitara ekki-Grand. Það þarf að vera úr einhverjum yngstu árgerðunum af þeim bílum svo rílafjöldinn á öxlunum út í hjól passi. Fékk lika handstýrðar lokur úr sama bíl sem passa beint á milli. Það má líka sleppa lokunum, sérstaklega ef þetta á að verða fyrst og fremst fjallabíll. Ef þú ert að spá í læsingar og/eða önnur hlutföll er þetta auðvitað tækifærið. Ég var eitthvað búinn að Googla læsingar, og minnir að ARB gefi ekki upp læsingar í framdrif á Grand Vitara, en las einhvers staðar að læsing í Vitara (yngstu árgerðir) passi ef þú ert tilbúinn að fórna sjálfvirku driflokunum (ekki fórn í mínum huga).

2. Hlutföll. Minn er á original hlutföllum og 33" dekkjum, og er í það hæsta með gírun. Sleppur samt til, þökk sé sex strokka vélinni og sjálfskiptingunni. Ef þú ert með aflminni vél og/eða beinskiptingu og 35" dekk, myndi ég mæla með að breyta hlutföllunum. Annar möguleiki gæti verið að breyta lágadrifshlutfallinu. Original er það 1:1,9 ef ég man rétt, en ég var einhvers staðar búinn að finna 1:4 aftermarket hlutföll. Kosta dálítið ef ég man rétt, og hjálpar ekki í þjóðvegaakstri, en þar er þörfin kannski ekki heldur eins mikil.

3. Dekk. Ég hef ekki víðtæka reynslu, en fékk minn á 33x13.5" Toyo Open Country, sem mér hefur líkað mjög vel við. Hef heyrt hér á spjallinu að þau þyki í það stífasta, en þau flöttust nú samt ágætlega með því að hleypa nógu mikið úr (2-4 pund). Ég er búinn að skipta þeim út núna, en ekki kominn með næga reynslu á nýju dekkin til að meta þau.

4. Hásingafærsla. Afturhásingunni hjá mér hefur verið hnikað örlítið aftar með því að lengja stífur, án þess þó að færa gormaskálar eða demparafestingar. Ef ætti að koma 35" þyrfti að færa hana lengra, og sjálfsagt ekki komist hjá því að færa gormaskálarnar. Ef hinsvegar það er sem mér sýnist, að þú ætlir að breyta þínum í pallbíl, þá er örugglega einfaldara að klippa inn í hurðargatið.

--
Kveðja, Kári.

User avatar

Tjakkur
Innlegg: 115
Skráður: 15.nóv 2012, 15:26
Fullt nafn: Karl Ingólfsson

Re: Suzuki Grand Vitar 2005

Postfrá Tjakkur » 15.jan 2017, 14:05

Þessi Súkkudrif eru lítil og lág. Ef þú lækkar þau enn meira ertu kominn með pinjón með títiprjónsþvermál.
Nærtakara væri að nota millikassa með niðurgíruðu hádrifi úr Fox eða Rocky. -Þá lækkar lágadrifið í leiðinni.


lettur
Innlegg: 130
Skráður: 02.feb 2010, 14:24
Fullt nafn: Jóhann Stefánsson
Bíltegund: Gr Cherokee 38

Re: Suzuki Grand Vitar 2005

Postfrá lettur » 15.jan 2017, 22:45

Ég ók í 7 ár á beinskiptri 35" breyttri Grand Vitöru V6 árg. 99. Ég setti í hana arb loftlæsingar bæði að framan og aftan. Að framan þarf að skipta út framdrifinu og fá úr venjulegri vitöru. Semsagt húsið og köggulinn. Það passaði beint í festingarnar fyrir orginal stálhúsið. En það er nauðsynlegt að styrkja allar festingar. Þær eru veigalitlar og sérstaklega þegar tekið á þessu afturbak í átökum. Ég braut festingar og endaði á að láta smíða stálgjörð utanum aftanvert drifhúsið.
Að aftan þarf að fá köggul úr venjulegri vitöru og hann passar beint í hásinguna og þá er hægt að setja arb læsingu þar. Ég fékk framdrif og köggla úr sidekick sport og þá fékk ég 5:13 hlutföll. Sidekick eru allir með 5:13 hlutföllum sem er það lægsta sem hægt er að fá. Þetta brotnaði aldrei hjá mér þrátt fyrir heilmikinn hamagang.
Þessi bíll var mjög skemmtilegur, gott flot, fínn kraftur og fór allan andsk. En vantaði lægra lágadrif í þungu færi.


Til baka á “Breytingar, viðhald og viðgerðir”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 8 gestir