Vesen með rafmagn í 1999 Toyota Dobulcab disel

Fyrir allt sem fram fer í skúrnum eða eftir atvikum, úti á stétt.

Höfundur þráðar
sukkaturbo
Innlegg: 3133
Skráður: 07.feb 2010, 13:19
Fullt nafn: Guðni Þór Sveinsson

Vesen með rafmagn í 1999 Toyota Dobulcab disel

Postfrá sukkaturbo » 30.okt 2016, 16:18

Sælir hér félagar. Ég er með 1999 dobulcab disel sem ég eignaðsit fyrir skömmu og er að byrja að gera upp.Bíllinn er í fokki með rafmagnið vantar miðstöð gaumljós kvikna ekki og túrbóljós loga endalaust.Er búinn að rífa mælaborðið úr og ætla að hreinsa og þrífa eins mikið og ég get af ryki og skít og nota til þess bremsuhreinsi loft og Contackt sprey. Ég fæ ekki straum niður á miðstöðvar mótorinn og ekki einu sinni leiðni frá rofa og niður að mótstöðu. Hef grun um að einhverssatðar á leiðinni sé realy eða öryggi svo ég reif mælaborðið úr. Skipti um realy fram í húddi og fékk mér nýtt. Heyri smella í því er ég kveiki á rofanum fyrir miðstöðina en fæ engan straum niður á tengið er búinn að mæla það öll öryggi heil alstaðar eða þar sem ég finn öryggi.Í gamla hilus disel 1991 er öryggi og realy upp í hliðinni hægramegin en virðist ekki vera í þessum. Mótor snýst er ég prufa hann á geymi beint.Svo logar túrbóljósið stanslaust er ég svissa á er búinn að fara yfir og gera við tengingar fram á soggrein.Öll öryggi mælast í lagi. Svo vantar eitthvað af gaumljósum í mælaborðið er ég svissa á svo sem t-belt - oli- amp og ol+iutankamælirinn hreifist ekki þó ég gefi jörð niður á tanka, Þegar ég svissa á bílinn kemur bara með turboljósið og glóðarhitunarljósið. Bíllinn hleður vel, ég gerði við altenatorinn.Hef ekki teikningar þannig að maður er að reyna að klóra sig áfram með mæli og prufulampa svo ef einhver kannast eitthvað við svona bilanar væru upplýsingar vel þegnar. Svo er tengi niður við gólf bílstjóramegin fyrir nokkra pinna sem ég finn ekki mótstykki fyrir kanski er þetta bara aukatengi.Sjá myndir
Viðhengi
tölvutengi.JPG
tölvutengi.JPG (300.73 KiB) Viewed 2266 times
tengingar á soggrein 99.JPG
tengingar á soggrein 99.JPG (305.74 KiB) Viewed 2266 times
turbo ljósið.JPG
turbo ljósið.JPG (282.32 KiB) Viewed 2266 times
hvaða plögg er þetta stendur ótengt.JPG
hvaða plögg er þetta stendur ótengt.JPG (301.1 KiB) Viewed 2266 times
hvaða stykki er þetta.JPG
hvaða stykki er þetta.JPG (287.06 KiB) Viewed 2266 times
DSCN3649.JPG
DSCN3649.JPG (289.12 KiB) Viewed 2266 times
fæ ekki straum á miðstöðina.JPG
fæ ekki straum á miðstöðina.JPG (297.34 KiB) Viewed 2266 times
DSCN3646.JPG
DSCN3646.JPG (292.91 KiB) Viewed 2266 times



User avatar

jongud
Innlegg: 2625
Skráður: 29.mar 2012, 08:39
Fullt nafn: Jón Guðmundur Guðmundsson
Bíltegund: Toyota Tacoma

Re: Vesen með rafmagn í 1999 Toyota Dobulcab disel

Postfrá jongud » 31.okt 2016, 08:12

Var ekki eitthvað verið að skrifa um það hér á spjallinu að það vilja skemmast vírar í Hilux þar sem þeir fara gegnum hvalbakinn?
Mig minnir allavega að einhver hafi nefnt það.


villi58
Innlegg: 2134
Skráður: 10.maí 2011, 10:51
Fullt nafn: Vilhjálmur Reynisson
Bíltegund: Toyota Hilux
Staðsetning: Ittoqqortoormiit

Re: Vesen með rafmagn í 1999 Toyota Dobulcab disel

Postfrá villi58 » 31.okt 2016, 08:57

Er búið að drekkja honum í vatn og drullu ? ef svo er þá getur verið mörg tengi og rafbúnaður sem þarf að skoða.
Hef aldrei séð ryðgað brakket fyrir útvarp og fl.í Hilux.


Aparass
Innlegg: 308
Skráður: 25.sep 2011, 21:29
Fullt nafn: Guðni Þór Scheving

Re: Vesen með rafmagn í 1999 Toyota Dobulcab disel

Postfrá Aparass » 01.nóv 2016, 21:51

Finnur rafmagnsteikningar og upplýsingar um hvernig er best að finna bilanirnar hérna.
http://nude.is/stuff/Manuals/Toyota/Hil ... Manual.zip
Kv.


Höfundur þráðar
sukkaturbo
Innlegg: 3133
Skráður: 07.feb 2010, 13:19
Fullt nafn: Guðni Þór Sveinsson

Re: Vesen með rafmagn í 1999 Toyota Dobulcab disel

Postfrá sukkaturbo » 03.nóv 2016, 07:31

jæja félagar þá er þetta okmið raukk kassa öryggi fram í vél orsökin með glæru plastloki virtis vera heilt við að horfa á það. takk fyrir aðstoðina


Til baka á “Breytingar, viðhald og viðgerðir”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 18 gestir